Fréttablaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 3. desember 2013 | SKOÐUN | 17
Þetta orðatiltæki hefur verið
notað í niðrandi tilgangi til að
gera lítið úr fólki og stríða. Það
er í sjálfu sér meiðandi og ekki
til mikils sóma fyrir þann sem
slíkt notar. Það er hins vegar
staðreynd að líkami okkar er
stöðugt að glíma við sveppi, sem
í flestum tilvikum er tækifæris-
sinnaður sýkingarvaldur. Þeir
sem eru almennt hraustir eiga
yfirleitt ekki í miklum vandræð-
um, ónæmiskerfið og hin eðli-
lega bakteríuflóra heldur svepp-
unum í skefjum, en hjá þeim
sem eru ónæmisbældir vegna
sjúkdóms, lyfja eða annarra
ástæðna geta sveppir hrein-
lega tekið yfirhöndina og valdið
alvarlegum veikindum.
Það eru margar tegundir
sveppa til og þeir valda mis-
munandi vanda, þeirra algeng-
astur og sennilega best þekktur
er candida sem veldur þrusku í
munni, sýkingum í og á kyn-
færum, í fellingum húðar, á
bleyjusvæði barna og í nöglum
svo dæmi séu tekin. Í alvarlegri
tilvikum getur þessi sveppateg-
und sýkt innri líffæri og komist
í blóðrásina með ófyrirséðum
afleiðingum. Alvarlegar sveppa-
sýkingar sem við óttumst sér-
staklega hjá þeim sem glíma við
HIV-sjúkdóm, krabbamein, eru
líffæraþegar eða ónæmisbæld-
ir af einhverjum orsökum eru
einnig vel þekktar og útheimta
öfluga meðferð greinist þær hjá
slíkum einstaklingum.
Þá má ekki gleyma þeim
sveppum sem eru í umhverfi
okkar og í samhengi við raka
geta valdið alvarlegum veik-
indum einnig eins og við höfum
fylgst með í umræðunni undan-
farin ár með sveppasýkt hús-
næði. Þar er um að ræða sam-
spil óþols, ofnæmis og eiturefna
sem sveppirnir gefa frá sér.
Enn aðrar tegundir sveppa
sem herja á okkur mannfólkið
eru svokallaðir dermatophytar
sem fyrst og fremst sýkja húð-
ina og neglur og valda klass-
ískum breytingum á nöglinni
með þykknun og litabreytingu
hennar.
Allt í kringum okkur
Það er því ljóst að sveppir eru
allt í kringum okkur og við finn-
um mismikið fyrir þeim og þá
getur verið miserfitt að eiga við
vandann. Hér á landi er mjög
algengt vandamál hjá einstak-
lingum að glíma við naglsveppi.
Tíðnin virðist meiri eftir því
sem næst verður komist en víð-
ast erlendis og helgast hugsan-
lega af samsetningu vatnsins
hér, mikilli sundlaugarmenn-
ingu og mögulega því að sjaldan
gefast tækifæri til að ganga í
opnum skóm. Undirliggjandi
sjúkdómar eins og sykursýki
og útæðasjúkdómar hafa einnig
áhrif til hins verra. Ljóst er að
margir glíma við þennan vanda
sem almennt veldur litlum ein-
kennum framan af, síðar meir
þó verkjum og óþægindum, ýtir
undir aðrar sýkingar auk þess
sem þetta er lýti þar sem nöglin
eyðileggst með tímanum.
Greiningin er tiltölulega auð-
veld, en það geta legið aðrir
sjúkdómar til grundvallar eins
og psoriasis, því er mælt með
að rækta eða taka sýni til stað-
festingar. Þegar kemur að með-
ferð eru ýmsar leiðir færar, en
vandinn er í raun sá að negl-
ur eru býsna þykkur vefur og
þéttur svo krem eiga lítið erindi
og gera almennt lítið gagn, þau
geta hins vegar virkað vel á
sveppasýkingu í húð á milli táa.
Þá eru til lyf í töfluformi sem
eðli málsins samkvæmt hafa
áhrif á allan líkamann en blóð-
flæði er með því minnsta sem
þekkist í vef eins og nöglum og
beinist meðferðin þess vegna
að naglbeðnum. Því þarf að
endurtaka slíka meðferð jafnvel
nokkrum sinnum, hún hentar
ekki öllum sjúklingahópum og
hún tekur langan tíma auk þess
sem hún hefur ýmsar auka-
verkanir í för með sér eins og
að valda útbrotum eða jafnvel
lifrarskaða. Nýlegt úrræði til
meðhöndlunar er laser-með-
ferð sem beinist gegn sveppnum
sjálfum og eyðileggur hann í
stórum hluta tilfella á einfaldan
og markvissan hátt í nokkrum
meðferðarlotum án þess að hafa
áhrif annars staðar í líkam-
anum og hentar flestum sem
glíma við slíkan vanda. Þarna
er um að ræða afar áhugaverð-
an meðferðarkost fyrir þá sem
glíma við naglsvepp og verður
spennandi að fylgjast með
árangrinum á næstu árum.
Ertu algjör sveppur?
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Það eru margar
tegundir sveppa til
og þeir valda mismunandi
vanda, þeirra algengastur
og sennilega best þekktur
er candida sem veldur
þrusku í munni, sýkingum í
og á kynfærum, í fellingum
húðar, svo dæmi séu tekin.
Hvað varst þú
að gera í febrú-
ar? Og hvað var
fólkið í kringum
þig að gera þá?
Kannski var það
venjulegur mán-
uður, kannski
mættirðu í vinn-
una eða skól-
ann. Kannski
gekk allt vel en
kannski kom
eitthvað upp á.
Kannski reifstu
við manneskju sem þér þykir vænt
um, kannski sveifstu um ástfang-
in/n á bleiku væmniskýi. Hvern-
ig sem mánuðurinn þinn var, má
örugglega ganga út frá því að ein-
hver sem þú kannast við hafi átt
erfiðan mánuð og þurft á stuðn-
ingi að halda.
Fólkið sem átti erfiðan mánuð í
febrúar fékk vonandi hlýjuna og
stuðninginn sem við þurfum öll
inni á milli. Það er alveg ótrúlegt
hvað maður kemst stundum langt
þegar allt er erfitt, á því að vita að
annað fólk hugsar til manns. Allt
verður auðveldara þegar við hjálp-
umst að og það breytir ekki endi-
lega öllu hvort fólkið í kringum
mann er stutt eða langt í burtu.
Ihar Tsikhanyuk býr langt í
burtu en þarf núna á stuðningi að
halda. Hann var laminn í febrúar.
Ihar er hommi og hafði nýlega sótt
um skráningu hinseginsamtaka í
Belarús þegar hann var lagður inn
á spítala vegna magasárs. Þang-
að komu lögregluþjónar og höfðu
hann með sér á lögreglustöð þar
sem hann var ítrekað laminn og
beittur andlegu ofbeldi og hótun-
um um meira ofbeldi fyrir að vera
hommi. Þegar honum var skilað á
spítalann neitaði starfsfólkið þar
að skrásetja áverkana. Ihar er
ekki eini þolandi svona ofbeldis
en enginn í Belarús hefur verið
dreginn til ábyrgðar. Það þýðir að
ofbeldið heldur áfram.
Við í Samtökunum ´78 tökum
stolt þátt í bréfamaraþoni
Amnesty á Íslandi. Þér og öllum
öðrum er boðið að kíkja við til
okkar á aðventukvöld þann 12.
desember og skrifa undir bréf
fyrir Ihar og ef þú kemst ekki þá
finnurðu leiðbeiningar um þátt-
töku á heimasíðu Amnesty. Orð
geta breytt öllu. Ég skora á þig!
Hver var laminn
í febrúar?
MANNRÉTTINDI
Anna Pála
Sverrisdóttir
lögfræðingur og
formaður Sam-
takanna ´78
➜ Hvernig sem mánuður-
inn þinn var, má örugglega
ganga út frá því að einhver
sem þú kannast við hafi átt
erfi ðan mánuð og þurft á
stuðningi að halda.
NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI
HLÍÐASMÁRA 9 : KÓPAVOGI : SÍMI 544 4500 : NTV.IS
Bókaranám framhald
Þú getur orðið
VIÐURKENNDUR BÓKARI!
Morgun- eða kvöldnám með vinnu
Tvö námskeið sem undirbúa nemendur undir 3 próf sem leiða til vottunar frá
Efnahags- og viðskiptaráðuneytinu með nafnbótina Viðurkenndur bókari.
Frábær námskeið fyrir þá sem hafa góða þekkingu á bókhaldi og Excel.
168 stundir - 219.000 - Byrja 6. og 7. janúar
Viðurkenndur bókari
72 stundir - 89.000 - Byrja 22. og 23. apríl
Excel við áætlanagerð – 30 stundir
Launakerfi – 24 stundir
Lánadrottnar og viðskiptamenn – 12 stundir
Fyrningar – 12 stundir
Virðisaukaskattur – 6 stundir
Lán – 18 stundir
Gerð og greining ársreikninga – 24 stundir
Lokaverkefni – 36 stundir
Skattaskil – 18 stundir
Reikninghald - viðbætur – 36 stundir
Upplýsingatækni – viðbætur – 6 stundir
Upprifjun fyrir próf – 18 stundir
Inntökuskilyrði í Viðurkenndan bókara: Að hafa lokið
Bókaranámi framhald með 7 eða hærra í maðaleinkunn.