Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 22

Fréttablaðið - 03.12.2013, Síða 22
FÓLK|HEILSA Piparkökurnar voru smá til-raun sem heppnaðist bara ansi vel. Þær eru krydd- aðar og með svolitlum appelsínu- keim en það má sleppa appelsín- unum ef þið viljið,“ segir Sigrún sem gefur hér uppskrift að pipar- kökum. PIPARKÖKUR Gerir 20-25 stykki • 1 tsk. appelsínubörkur, rifinn fínt á rifjárni • 160 g hrísmjöl (enska: rice flour) • 1 tsk. vínsteinslyftiduft • 1 tsk. kanill • 0,5 tsk. negull (enska: cloves) • 4 msk. kókosolía • 70 g rapadura-hrásykur (eða annar hrásykur) • 50-100 ml sojamjólk (eða önnur mjólk) AÐFERÐ 1. Rífið appelsínubörkinn fínt á rifjárni. Gætið þess að rífa aðeins appelsínugula hlutann, ekki þann hvíta. 2. Í stóra skál skuluð þið sigta saman hrísmjöl, lyftiduft, kanil og negul. Bætið appelsínuberk- inum út í og hrærið vel. 3. Í aðra skál skuluð þið hræra saman kókosolíu, 50 ml af sojamjólk og rapadura-hrásykri þannig að úr verði mjúk blanda. Hellið út í stóru skálina og hrær- ið vel. Ef deigið er mjög þurrt bætið þá meira af sojamjólk út í. 4. Hnoðið deigið í stóra kúlu. Skiptið deiginu í fjóra hluta og mótið pylsur í höndunum. Pakkið pylsunum inn í plastfilmu og setjið í ísskápinn. Geymið í klukkustund eða yfir nótt. 5. Setjið bökunarpappír á bök- unarplötu. Skerið pylsurnar í 1-1,5 cm bita og raðið á bökunar- plötuna. 6. Mótið bitana aðeins ef þarf (þannig að þeir verði kringlótt- ari). 7. Bakið við 180°C í um 15 mín- útur. VALHNETU- OG HUNANGSNAMMI Valhnetur eru afar hollar og hjálpa til við að sporna við hjartasjúkdómum. Sesamfræin eru kalkrík og innihalda einnig holla fitu. Skipta má út val- hnetum fyrir pekanhnetur. Gerir 10-12 stykki • 50 g valhnetur, saxaðar mjög smátt • 35 g kókosmjöl • 1,5 msk. carob • 60 ml agavesíróp eða acacia-hunang • 50 g sesamfræ eða kókosmjöl (gæti þurft meira) AÐFERÐ 1. Saxið valhneturnar mjög smátt. Setjið í skál. 2. Bætið agavesírópi og carobi út í skálina og hrærið vel. Kælið deigið í um 30 mínútur. 3. Mótið litlar kúlur í höndunum (gott að nota plasthanska). 4. Veltið upp úr sesamfræjum eða kókosmjöli. 5. Kælið. HOLLT GÓÐGÆTI FYRIR JÓLIN GÓMSÆTT Sigrún Þorsteinsdóttir heldur úti vefsíðunni Cafe Sigrún þar sem hún birtir uppskriftir að alls kyns hollustugóðgæti. Sigrún gefur hér lesendum uppskriftir að hollu góðgæti fyrir jólin. HOLLUSTA Sigrún hefur einstakt lag á að gera hollan mat góðan. HÆGT ER AÐ SKOÐA ÞESSAR UPPSKRIFTIR OG AÐRAR Á CAFESIGRUN.COM •Acacia-hunang fæst í heilsubúðum en nota má agavesíróp í staðinn. •Nota má pekanhnetur í staðinn fyrir valhnetur. •Nota má kakó í stað carobs. •Nota má carob í stað kakós. Carob hentar þeim sem eru viðkvæmir fyrir örvandi efnum kakósins og hentar því börnum vel. Carob fæst í heilsubúð- um og heilsuhillum mat- vöruverslana. Það fæst bæði sem duft (eins og kakó) og í plötum (eins og súkkulaði). GOTT AÐ HAFA Í HUGA Nýbýlavegurinn er elsta gata Kópavogs en hann var opnaður árið 1936. Á þeim tíma stóð reisulegt stórbýli við Nýbýlaveg og fyrsta þéttbýlið í Kópavogi myndaðist meðfram Nýbýlaveginum. Ásýndin er önnur í dag, því nú stendur við Ný- býlaveginn glæsileg íbúðabyggð og öflugt þjón- ustusvæði sem hefur byggst mikið upp á síðustu misserum. Nokkur fyrirtæki hafa verið á Nýbýlaveginum um árabil, má þar nefna Hárgreiðslustofuna Hárný sem hefur verið lengst núverandi fyrirtækja á Ný- býlavegi, eða í 24 ár, fjölskyldurekna gistiheimilið Lily Guesthouse, Tinnu heildverslun sem einnig rekur hannyrðaverslunina Mólý, veitingastaðinn Dominos Pizza með pitsur úr hágæða hráefni og útivistarverslunina ZO-ON sem selur útivistar- fatnað hannaðan fyrir íslenska veðráttu. Það er mikils virði að hafa þjónustu- og verslunarsvæði í alfaraleið og nauðsynlegt að aðgengi sé gott og þægilegt. Það er svo sannarlega raunin á þessum stað. Undanfarið hafa fleiri fyrirtæki bæst í hópinn og glætt svæðið lífi. Verslun og vinnustofan Evuklæði og Ísafold design með íslenska hönnun, Lyfja með lyf, heilsuvörur, snyrti- og hreinlætisvörur, Kruðerí Kaffitárs þar sem gott er að fá sér kaffibolla og gómsætt bakkelsi, garnverslunin Rósa Amma sem selur allt fyrir prjón og hekl ásamt prjónavélag- arni og fasteignasalan Domusnova sem býður upp á sérhæfða ráðgjöf í fasteignaviðskiptum. Það nýjasta í flórunni er svo CoolCos snyrtivörur og förðunarstofa Helgu Karólínu. Á aðventunni verður starfræktur jólamarkaður sem öllum er velkomið að heimsækja. Eins og sjá má á þessu hefur Nýbýlavegur gengið í endurnýj- un lífdaga með spennandi framboði verslunar og þjónustu. Verið hjartanlega velkomin á Nýbýlaveg. JÁKVÆÐ UPPBYGGING Á NÝBÝLAVEGINUM KÓPAVOGUR KYNNIR Nýbýlavegur í Kópavogi hefur breyst mikið á undanförnum árum en þar hefur staðið yfir jákvæð uppbygging. Mörg þjónustufyrirtæki eru við götuna. UPPBYGGING Áshildur Braga- dóttir, fram- kvæmdastjóri Markaðsstofu Kópavogs. MYND/DANÍEL 30.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann með Fréttablaðsappinu. Sláðu inn Fréttablaðið á Google Play, Windows store eða í App store og náðu í appið.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.