Fréttablaðið - 03.12.2013, Page 38
3. desember 2013 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26
Listaverkabókinni
fagnað með stæl
Útgáfu listaverkabókar Karólínu Lárusdóttur var fagnað með pompi og prakt
í Björtuloft um í Hörpu og skemmtu gestir sér konunglega. Í bókinni eru 146
litmyndir af verkum hennar, olíumálverkum, ætingum, akvatintum, teikning um
og steinprenti, auk fj ölda ljósmynda úr fj ölskyldualbúminu hennar. Aðalsteinn
Ingólfsson skrifar grein um Karólínu, ævi hennar og listþróun á ensku og íslensku
í bókinni en auk þess inniheldur bókin skrár yfi r helstu sýningar hennar.
PRÚÐBÚIN Karl Sigurbjörnsson, fyrrverandi biskup, ásamt
eiginkonu sinni, Kristínu Guðjónsdóttur.
TVÆR GÓÐAR Nanna Rögnvaldardóttir og Guðrún Sigfús-
dóttir létu sig ekki vanta.
LISTUNNENDUR Ingimundur Sveinsson og Pétur Ármanns-
son. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
➜ Karólína
Lárusdóttir
er fædd árið
1944 og nam
myndlist í Bret-
landi.
HRESS HJÓN Björn
Bjarnason og Rut
Ingólfsdóttir brostu
út að eyrum.
AÐDÁENDUR KARÓLÍNU Elsa María Ólafsdóttir og Bryndís
Loftsdóttir mættu með góða skapið.
„Ég átti von á að ljóðabókin eftir
Þorstein frá Hamri yrði tilnefnd.
Hann er kannski jafnvel á þeim
stað að vera hafinn yfir bók-
menntaverðlaun. Svo er ég eigin-
lega bara móðgaður yfir því að
gengið var fram hjá bók Þórunnar
Erlu og Valdimarsdóttur, Stúlka
með maga. Þórunn er bæði rit-
fær og er að segja svo skemmti-
lega og áhugaverða sögu,“ segir
Egill Helgason um tilnefningar til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna
sem tilkynntar voru á sunnudag.
Að þessu sinni gefa fáar konur út
bækur. Oft hefur verið kynjapóli-
tík í tilnefningavali að mati Egils.
„Þess vegna er það enn þá skrítn-
ara að bók Þórunnar hafi ekki
verið tilnefnd.“ Nú telur hann að
hugsanlega liggi að baki þessu ein-
hver hugsun um að eitt forlag ein-
oki ekki tilnefningar. „Ef bók Þór-
unnar Erlu og Valdimarsdóttur
hefði verið inni og einhver önnur
úti gæti hafa komið upp sú staða
að allar tilnefndu bækurnar hefðu
verið gefnar út af einu forlagi.“
- ue
Agli þykir gengið
fram hjá Þórunni
Tilnefningar Íslensku bókmenntaverð laun anna í
fagurbókmenntum koma Agli Helgasyni ekki á óvart.
SKRÍTIÐ Agli finnst skrítið að Þórunn
hafi ekki verið tilnefnd. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SÖNN SAGA
AF FLÓTTA
UNGRAR KONU
ÚR KLÓM
OFBELDIS OG
MISNOTKUNAR
Sönnsaga
Peysa kr. 3.990
Stærðir: 6 mán. - 3 ára
FULLT AF
FLOTTUM
FÖTUM
Á STRÁKA
KRINGLUNNI • SÍMI 551 3200