Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 4
11. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4 AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundur@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Elísabet Margeirsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá Fimmtudagur 10-18 m/s, hægari NA-lands. FERÐAVEÐRIÐ Það má gera ráð fyrir slæmu ferðaveðri frá því í kvöld og fram á morgundaginn um norðvestanvert landið en þá verður ofankoma um tíma samfara hvassri norðaustanátt. Hvessir einnig við suðurströndina á morgun. -2° 12 m/s 0° 11 m/s 0° 7 m/s 3° 9 m/s Á morgun 10-20 m/s, hvassast NV- og SA-til. Gildistími korta er um hádegi 2° 0° 4° 3° 2° Alicante Basel Berlín 14° 4° 6° Billund Frankfurt Friedrichshafen 3° 6° 6° Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas 2° 2° 20° London Mallorca New York 7° 15° -4° Orlando Ósló París 26° 2° 8° San Francisco Stokkhólmur 12° 1° 0° 6 m/s 2° 7 m/s 0° 4 m/s 1° 12 m/s -2° 7 m/s -1° 8 m/s -6° 8 m/s 4° 0° 3° 2° 2° DÓMSMÁL Hollenski seðlabankinn DNB og breski innstæðusjóður- inn FSCS hafa stefnt Tryggingar- sjóði innstæðueigenda og fjárfesta á Íslandi, TIF, fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Ýtrustu kröfur Breta og Hollendinga í málinu má meta upp á 1.000 milljarða króna með vöxtum og kostnaði. DNB og FSCS greiddu innstæðu- eigendum í Hollandi og Bretlandi bætur við fall Landsbanka Íslands hf., nú LBI hf. Um var að ræða inn- stæður vegna Icesave-reikninga LBI hf. í Hollandi og Bretlandi. DNB og FSCS krefjast þess að TIF verði gert að greiða eða staðfest verði að TIF hafi borið að greiða að fullu lágmarkstryggingu eða allt að 20.887 evrur fyrir hvern innstæðu- eiganda, auk vaxta og kostnaðar. Guðrún Þorleifsdóttir, formað- ur stjórnar Tryggingarsjóðsins, segir að fari svo að fallist verði á kröfur Breta og Hollendinga verði erfitt fyrir sjóðinn að sinna skyldum sínum og tryggja inn- stæður á Íslandi til framtíðar. „Það er alveg ljóst að sjóður- inn mun ekki greiða meira en það sem hann á í sínum sjóðum hverju sinni. Sjóður- inn verður ekki gerður gjaldþrota og ekki gerð aðför að eigum hans. Hann mun því ekkert geta gert,“ segir Guðrún. Í tilkynningu frá sjóðnum segir að þegar ljóst varð að málið yrði ekki leyst með samningum hafi TIF ákveðið að hefja útgreiðslu fjármuna í samræmi við lög og eftir því sem efni stóðu til. DNB og FSCS mótmæltu þeim skilyrðum sem fram komu í ákvörðun sjóðsins og höfnuðu greiðslu á þeim grund- velli. Eftir það hafi aðilar verið í samskiptum sem ekki hafa skilað árangri. Karl Axelsson, lögmaður Trygg- ingarsjóðs innstæðueigenda, segir að um sé að ræða stórmál fyrir sjóðinn. „Senni- lega verður sjóð- urinn lamaður næstu 100 árin eða meira og þannig íslenska tryggingakerf- ið í uppnámi til framtíðar,“ segir Karl aðspurður um hvaða afleiðingar það hafi ef umræddar kröfur falla á Trygg- ingarsjóðinn. Sjóðurinn hefur yfir að ráða um 18,2 milljörðum króna sem boðn- ar hafa verið DNB og FSCS og eru fjármunir sem voru til í sjóðn- um við fall LBI hf. Þeim er haldið aðgreindum frá öðru fé sjóðsins. TIF telur þó allar kröfur vera fyrnd- ar í ljósi þess að greiðslu- skylda stofnaðist fyrir rúmum fimm árum. Verði ekki fallist á það telur TIF greiðsluskyldu sína tak- markast við þær fjárhæð- ir sem sjóðurinn hafði yfir að ráða á þeim tíma sem greiðslu- skyldan stofnaðist. Karl segir að öðru leyti ekki alveg ljóst hvernig málið verði lagt upp en greinargerð í málinu verður ekki skilað fyrr en í mars. Sigmundur Davíð Gunn- laugsson forsætisráðherra segir málið fyrst og fremst áminningu um hversu mik- ilvægt það var að þess- ar innstæður væru ekki á ábyrgð skattgreiðenda. „Það er ekki með nokkru móti hægt að krefja skatt- greiðendur um þetta,“ segir Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson for- sætisráðherra. Hann segir Breta og Hollendinga eiga forgangskröfu upp í höfuðstólinn í þrotabú gamla Landsbankans. „Það er eins og þeir séu að fiska og bæta í kröfuna eins mikið og þeir mögulega geta,“ segir Sigmundur. Bretum og Hollending- um hafi staðið til boða að fá borg- að úr Tryggingarsjóði innstæðu- eigenda en þeir hafnað því. „Þeir töldu það væntanlega veikja stöðu sína í því að fá borgað úr vösum íslenskra skattgreiðenda. En þegar sú varð ekki raunin vilja þeir ganga í innstæðusjóðinn,“ segir Sigmund- ur Davíð. fanney@frettabladid.is Bretar og Hollendingar vilja eitt þúsund milljarða króna Formaður stjórnar sjóðsins segir hann ekki geta sinnt lögbundnum skyldum sínum verði fallist á kröfurnar. Forsætisráðherra segir Breta og Hollendinga vera að fiska og ekki vera hægt að krefja skattgreiðendur um féð. GUÐRÚN ÞORLEIFSDÓTTIR SIGMUNDUR D. GUNNLAUGSSON KARL AXELSSON ICESAVE Samningar milli þjóðanna voru felldir í þjóðaratkvæðagreiðslu í tvígang hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Krafa breska innstæðusjóðsins FSCS: 452,1 milljarður króna Krafa hollenska seðlabankans DNB: 103,6 milljarðar króna Höfuðstóll kröfunnar fyrir utan vexti og kostnað: 555,7 milljarðar króna Ýtrustu kröfur með vöxtum og kostnaði: Um 1.000 milljarðar króna Krafa Breta og Hollendinga: BRETLAND Breska stjórnin var harðlega gagnrýnd í gær fyrir að hafa haldið umhverfisstofnun landsins í fjársvelti, með þeim afleiðingum að flóðavarnir við ána Thames brugðust í miklum vatna- vöxtum. Áin flæddi yfir bakka sína víða vestan við London með þeim afleiðingum að götur fóru í kaf og vatn flæddi inn í fjölmörg hús. Mikil hætta er á að ástandið versni í dag og á morgun sunnan til á Englandi, þegar veðrið versnar með úrhellisrigningu og hvassviðri. David Cameron forsætisráð- herra neitaði því að stjórnin hefði brugðist eða verið sein til verka: „Við höfum verið að takast á við þetta allt frá fyrstu stundu,“ sagði hann. „Þar sem peninga vantaði, þangað veittum við pen- ingum. Þar sem þörf var á her- mönnum, þar gekk ég úr skugga um að hermenn væru sendir á vettvang.“ Chris Smith, formaður bresku umhverfisstofnunarinnar, verst líka gagnrýni á stofnunina, sem sögð er hafa brugðist og bendir á fjárveitingareglur breska fjár- málaráðuneytisins. Úrkoma á Englandi hefur ekki mælst meiri í janúar síðan árið 1766. - gb Áin Thames flæddi víða yfir bakka sína í gær og búist er við meiri flóðum í dag og á morgun: Flóð í Bretlandi valda deilum um peninga Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir lægðagang valda flóðunum á Englandi. Lægðirnar séu þó ekki á leið til Íslands. Um jólin var mjög hvasst hér og þá höfðu lægðirnar fyrst gert usla á Bretlands- eyjum. En upp á síðkastið hafi þær gengið yfir Bretland án þess að koma hingað. „Það er tiltölulega meinlaust veður á Íslandi út vikuna en Bretarnir verða áfram í rigningunni,“ segir Teitur. Láglendið á Suður-Englandi og aðþrengdar ár eigi stóran þátt í flóðavanda Englendinga. Láglendi og aðþrengdar ár á Englandi ORKUMÁL Ófærð í Bandaríkjun- um hafði þau óvæntu áhrif að tefja borun eftir heitu vatni í landi Möðruvalla í Kjós. Þegar hefur verið boruð hola á Möðruvöllum. „Borkrónan sem nota á við fram- haldið átti að vera komin til lands- ins en vegna ófærðar innanlands í USA fór hún ekki þaðan fyrr en í gær og gæti það haft áhrif á fram- vinduna allra næstu daga,“ segir á vef Kjósarhrepps. Í leit að nægj- anlega heitu vatni var ákveðið að bora aðra holu áður en ráðist yrði í að dýpka fyrri holuna úr ríflega 800 metrum í allt að 1.500. - gar Áhrif ófærðar vestan hafs: Heitavatnsbor- un tefst í Kjós NETIÐ Alþjóðlegi netöryggisdagur- inn er haldinn hátíðlegur í ellefta sinn í dag. Þemað í ár er „Gerum netið betra saman“. Yfir eitt hund- rað þjóðir um allan heim standa fyrir skipulagðri dagskrá. SAFT stendur fyrir málþingi í Skriðu, aðalbyggingu Menntavís- indasviðs Háskólans, milli 12 og 16 í dag. Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra og Eygló Harð- ardóttir, félags- og húsnæðismála- ráðherra, flytja ávörp auk Sigríðar Hallgrímsdóttur, aðstoðarmanns mennta- og menningarmálaráð- herra. - fb 100 þjóðir með dagskrá: Netöryggi í hávegum haft Á NETINU Alþjóðlegi netöryggisdagur- inn er í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 280 manns voru skráðir í Ásatrúarfélagið árið 1998. Fimmtán árum síðar, 2013, voru 2.148 skráðir í félagið. Heimild: Hagstofan.is.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.