Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2014 | SPORT | 23
KÖRFUBOLTI „Það var frábært að þjálfa þessa
stráka. Þeir eru alveg frábærir og ákvörðun
mín tengist þeim á engan hátt,“ segir Sví-
inn Peter Öqvist sem heldur ekki áfram sem
landsliðsþjálfari í körfubolta.
Hann stýrði Íslandi í tveimur undan-
keppnum auk þess sem hann fór með liðið á
sterkt alþjóðlegt mót í Kína þar sem unnust
frábærir sigrar á Makedóníu og Svartfjalla-
landi. „Það er af fjölskylduástæðum sem ég
verð að segja starfinu lausu. Við erum að
eignast okkar þriðja barn á næstunni og það
eru ýmsir praktískir hlutir sem eru erfiðir
hvað varðar að fara með alla fjölskylduna til
annars lands. Við verðum að vera í Svíþjóð
í sumar,“ segir Öqvist í samtali við Frétta-
blaðið en hann er stoltur af verkum sínum
með íslenska liðið.
„Ég er mjög stoltur af því hvernig strák-
arnir og spilamennska okkar hefur orðið
betri. Við spilum körfubolta sem við getum
verið stoltir af. Við höfum líka verið að
vinna mjög góð lið og gefa öðrum góðum
liðum hörkuleiki.“
Öqvist segist mæla árangurinn í þeim
liðum sem Ísland hefur skilið eftir fyrir
aftan sig á styrkleikalista FIBA en Ísland
var 22. sterkasta liðið í drættinum fyrir und-
ankeppni EM 2015 þegar dregið var.
„Fyrir neðan okkur eru þjóðir sem við
höfum verið að klifra upp fyrir. Þann-
ig sjáum við hvernig liðið var orðið betra.
Þetta er staða sem KKÍ þarf að reyna halda
og hægt en örugglega setja fleiri þjóðir
fyrir aftan sig,“ segir Öqvist.
Tímasetningin á brotthvarfi Öqvists hent-
ar honum vel því samningur hans hans hjá
Sundsvall í sænsku úrvalsdeildinni rennur
út í sumar og þá er sænska landsliðsþjálf-
arastarfið laust. „Ég er bara hugsa um að
klára tímabilið með Sundsvall. Sænska
starfið er laust og við sjáum bara til hvern
þeir velja. Þetta er allavega síðasta árið mitt
með Sundsvall þannig það er allt opið,“ segir
Peter Öqvist. - tom
Spiluðum körfubolta sem við getum verið stoltir af
Svíinn Peter Öqvist er hættur sem þjálfari íslenska landsliðsins í körfubolta af persónulegum ástæðum en er stoltur af tímanum hér.
HÆTTUR Peter Öqvist er orðaður við sænska
landsliðsþjálfarastarfið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DOMINOS KARLA
HAUKAR - STJARNAN 76-67 (40-36)
Atkvæðamestir: Terrence Watson 29/20 frák./5
varin, Emil Barja 14 - Jón Sverrisson 22/18 frák.,
Dagur Kár Jónsson 17, Marvin Valdimarsson 10.
COCA COLA-BIKAR
8 LIÐA ÚRSLIT KARLA
AKUREYRI - FH 30-32 (25-25 FRAML.)
Bjarni Fritzson 13/10, Þrándur Gíslason 7 -
Magnús Óli Magnússon 6, Ásbjörn Friðriksson
6/2, Einar Rafn Eiðsson 6/2.
VALUR - HAUKAR 26-27
Guðm. Hólmar Helgas. 8/1, Geir Guðmundss.
5 - Jón Þorbjörn Jóhannsson 6, Árni Steinn
Steinþórsson 5, Þórður Rafn Guðmundsson 4
SELFOSS - ÍR 23-28
Andri Sveins. 5, Einar Sverris. 5, Ómar Magnúss.
5 - Sturla Ásgeirss. 12, Björgvin Hólmgeirsson 7.
Í undanúrsl. karla: Afturelding, FH, Haukar og ÍR.
Í undanúrslitum kvenna: Stjarnan, Valur, Grótta
og Haukar.
REYKJAVÍKURMÓT
ÚRSLITALEIKUR Í EGILSHÖLLINNI
FRAM - KR 1-1 (5-4 Í VÍTAKEPPNI)
1-0 Hafsteinn Briem (78.), 1-1 Aron Bjarki
Jósepsson (83.). Fyrsti titill Fram undir stjórn
Bjarna Guðjónssonar. KR tapaði úrslitaleiknum
fjórða árið í röð. Ögmundur Kristinsson,
markvörður Fram, varði vítaspyrnu frá Almari
Ormarssyni fyrrverandi leikmanni Fram. Það var
eina vítaspyrnan sem fór forgörðum.
HANDBOLTI Aron Kristjánsson,
þjálfari íslenska karlalands-
liðsins í handbolta, mun þjálfa
danska úrvalsdeildarliðið KIF
Kolding Kaupmannahöfn út þetta
tímabil en hann fékk leyfi frá
HSÍ.
„Þeir höfðu samband við mig
strax eftir EM. Þeir eru í tölu-
verðum vandræðum í augna-
blikinu. Það hafa hrannast upp
meiðsli og veikindi hjá þeim und-
anfarið og það verður því mikil
áskorun fyrir mig að fara þangað
og klára tímabilið,“ sagði Aron en
hann fór út í morgun.
„Þetta eru ekki þeir fyrstu sem
hafa verið að krukka í mann og
ég hef fengið nokkur símtölin í
vetur. Það hefur ekki verið á dag-
skránni að fara út en þetta hent-
aði vel. EM var búið og það eru
engin stór verkefni hjá landslið-
inu fyrr en í sumar,“ sagði Aron.
Hann segir forráðamenn Kolding
gera sér grein fyrir því að þeir
eigi í vandamálum með hópinn.
„Það er hrikalega áskorun að
taka við þeim núna þegar þeir
eru í svona miklum vandamálum.
Þegar þeir eru með fullt lið og
enga meidda þá er þetta mjög
sterkt lið. Núna er liðið í öðru
sæti í deildinni á eftir mínum
gömlu félögum í Skjern. Það
verður gaman að kljást við þá,“
segir Aron sem segir vörn og
markvörslu vera aðalstyrk Kold-
ing-liðsins í dag. - óój
Aron tók við
liði Kolding
TEKUR VIÐ EINU BESTA LIÐINU Aron
Kristjánsson er nýr þjálfari danska
stórliðsins KIF Kolding. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL