Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 38
11. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 26 „Ég er svo vanafastur að ég fer alltaf á taílenska staðinn Krua Thai. Það er sterkt og gott og svo er hann rétt hjá þar sem ég bý.“ Hjörtur Jóhann Jónsson leikari BESTI BITINN Hef hafið störf á hársnyrtistofunni LaBella, Furugerði 3, sími 517 3322. Verið velkomin. H Á R S N Y R T I & F Ö R Ð U N A R S T O F A HEIDÝ „Okkur langar að breyta til og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Jón Ólafsson, hljómborðsleikari hljóm- sveitarinnar Nýdönsk, en sveitin er á leið til Berlínar um miðjan marsmánuð að taka upp plötu. Sveitin ætlar að dvelja í hljóðveri í Berlín í tæpa viku en stefnir svo á að klára plötuna á Íslandi í kjöl- farið. Nýdönsk gaf síðast út plöt- una Turninn árið 2008. „Þetta er allt á upphafsmetr- unum, þetta er alls konar efni og ég veit ekki alveg hvernig þetta endar,“ segir Jón spurður út í nýja efnið. Allir meðlimir sveitarinnar semja og því mikið og fjölbreytt úrval af nýju efni. „Við förum með stuðfélaginu WOW air út þannig að það er aldrei að vita nema að við tökum lagið í vélinni,“ segir Jón um samgöngu- hættina. Þetta er þó ekki í fyrsta skiptið sem sveitin fer utan í upptökuferð því platan Himnasending sem kom út árið 1992 var tekin upp í Bret- landi. Nýdönsk kemur fram á tónleik- um á Græna hattinum og á Siglu- firði í mars. „Við ætlum einnig að vera með tónleika í Hörpu í haust eins og við höfum gert undanfarin tvö ár.“ - glp Nýdönsk í upptökuferð til Berlínar Hljómsveitin Nýdönsk er farin að vinna að nýrri plötu og hefj ast upptökur á henni í Berlín í byrjun mars. Sveitin hefur verið í dvala en er að lifna við á ný. UPPTÖKUR ÚTI Hljómsveitin Nýdönsk er á leið til Berlínar að taka upp nýja plötu. MYND/HAG Ljósmyndarinn Saga Sig mynd- aði forsíðu nýjasta tölublaðs Wild Magazine, sem er bandarískt glanstímarit. Forsíðuna prýddi breska tónlistarkonan M.I.A. sem hefur átt mikilli velgengni að fagna um allan heim, en Saga hefur áður fengið boð um að vinna með söngkonunni sem hún gat ekki þekkst. „Þetta var ótrú- lega skemmtilegt,“ segir Saga um myndatökuna. „Ég ber svo mikla virðingu fyrir henni sem listakonu svo það var sérstaklega gaman að fá að vinna með henni,“ heldur Saga áfram. „Fyrir tveimur árum bað hún mig að taka myndir bak við tjöld- in þegar hún skaut hið fræga Bad Girls-myndband með leikstjóran- um Roman Gavras. Þetta var í des- ember og ég var komin til Íslands til að fagna jólunum með fjölskyld- unni. Fjárhagsáætlanir verkefnis- ins gerðu ekki ráð fyrir flugi frá Íslandi til Marokkó svo verkefnið rann út í sandinn,“ útskýrir Saga, en hún býr og starfar í London. „Mér fannst það svo ótrúlega leiðinlegt því þetta myndband er eitt það flottasta sem gert hefur verið að mínu mati.“ Saga segir myndatökuna hafa gengið vel fyrir sig. „Hún var mjög vingjarnleg. Annars er það hluti af mínu starfi að vera ekkert að kippa sér upp við það þótt fólk sé frægt, og ég passa mig auðvitað á því. Ég verð líka eiginlega að viðurkenna að ég er alveg rosalega ómann- glögg og veit yfirleitt ekki hver neinn er,“ segir Saga, létt í bragði. Saga hefur átt mikilli velgengni að fagna í starfi og hefur meðal ann- ars myndað fyrir Nike Women og Topshop, sem hún segir hafa verið mikilvægt fyrir ferilinn. Hún hefur fengið myndir eftir sig birt- ar í þekktum tímaritum á borð við Vogue Japan og í Dazed and Con- fused. olof@frettabladid.is Myndaði M.I.A. á for- síðu Wild Magazine Ljósmyndarinn Saga Sig hefur áður myndað fyrir Topshop og Nike Women. FORSÍÐAN Saga Sig myndaði tónlistarkonuna M.I.A. á forsíðu Wild Magazine. SKJÁSKOT SAGA SIG Býr og starfar í London. Hún hefur getið sér gott orð sem ljósmyndari. MYND/SAGASIG ➜Turninn er síðasta plata sveitarinnar og kom hún út 2008. M.I.A. er breskur listamaður sem öðlaðist frægð í gegnum tónlist, en fæst einnig við myndlist og leikstjórn. Hún hóf ferilinn sem kvikmyndagerðarmaður í London en fór fljótlega að leggja áherslu á tónlistarferil sinn og árið 2004 gaf hún út smáskífurnar Sunshowers og Galang sem hlutu góðar viðtökur. Síðan hefur M.I.A. meðal annars verið tilnefnd til Óskarsverðlauna, tvennra Grammy-verðlauna og Mercury- verðlaunanna. Meðal þekktustu laga M.I.A. eru Paper Planes, Bucky Done Gun, Bad Girls og Matangi. M.I.A. Póstdreifing | Vatnagörðum 22 | 104 Reykjavík | Sími 585 8300 | postdreifing.is Við sjáum um örugga dreifingu á fjölpósti Við náum til fjöldans B ra n de n bu rg Póstdreifing dreifir fjölpósti sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Mælingar sýna að 60% landsmanna skoða fjölpóst og er hann því áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Örugglega til þín. Nánari upplýsingar veitir söludeild í síma 585 8300. Benedikt Freyr Jónsson, DJ B-Ruff, stjórnar þættinum Tetriz sem er í hádeginu fyrsta föstudag í mánuði á X-inu. „Þættirnir snúast um gamla skólann, tíunda áratuginn eins og hann gerist bestur,“ segir B-Ruff, sem valdi hádegið til þess að brjóta upp daginn hjá fólki og föstudag því þá eru allir komnir með hugann inn í helgina. „Það var frábært að heyra að fólk keyrði um alla borg á meðan á þættinum stóð – fólk festist í bíln- um,“ segir B-Ruff, ánægður með góðar viðtökur. Þættirnir snúast fyrst og fremst um skemmtistaðinn Tetriz og tímabilið í kringum hann. „Dj-arnir B-Ruff, Fingaprint, Ram- page og Dice spiluðu þessa tónlist á Tetriz og leiddu saman heilu hverf- in út á þetta sameiginlega áhuga- mál. Það er svo mikið af flottri tón- list frá þessum tíma. Ég þurfti að stoppa mig af eftir fyrsta þáttinn, þegar ég var að taka saman plötur.“ B-Ruff byrjar einnig með viku- legan þátt á X-inu, ásamt Loga Pedro Stefánssyni úr Retro Stefson, á næstunni. - ósk Tíundi áratugurinn upp á sitt besta Benedikt Freyr, DJ B-Ruff , stjórnar Tetriz á X-inu fyrsta föstudag hvers mánaðar. LEIDDU SAMAN HEILU HVERFIN Dj-arnir B-Ruff, Fingaprint, Rampage og Dice spiluðu mikið á Tetriz. MYND/ANTON BRINK

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.