Fréttablaðið - 11.02.2014, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 11. febrúar 2014 | MENNING | 17
Skæruliðarnir í Guerrilla Light-
ing munu lýsa upp skamm-
degið með „árásum“ á illa lýst
mannvirki í Breiðholti annað
kvöld. Skæruliðarnir hafa valið
nokkra staði í Efra-Breiðholti
sem þeir munu umbreyta með
ljósum. Hver „ljósaárás“ stend-
ur aðeins yfir í nokkrar mín-
útur og því mikilvægt að vera
vel vakandi til að missa ekki af
sjónarspilinu. Skæruliðarnir
leiða áhorfendur á milli staða og
bjóða upp á rjúkandi kakó eftir
gönguna.
Skæruliðahópurinn saman-
stendur af útskrifuðum nem-
endum og fyrsta árs nemanda í
lýsingarhönnun í Tækniskólan-
um auk sjálfboðaliða frá félags-
miðstöðvum í Breiðholti. Ljósa-
árásirnar hefjast við inngang
Fellaskóla í Efra-Breiðholti mið-
vikudagskvöldið 12. febrúar
kl. 20.
Skæruliðar
í Breiðholti
VETRARHÁTÍÐ Ljósaárásir verða fram-
kvæmdar í Breiðholtinu annað kvöld.
LEIKLIST ★★★★★
Bláskjár
HÖFUNDUR: TYRFINGUR TYRFINGSSON
LEIKSTJÓRN: VIGNIR RAFN VALÞÓRS-
SON LEIKMYND OG BÚNINGAR: BRYNJA
BJÖRNSDÓTTIR AÐSTOÐARLEIKSTJÓRI:
PÉTUR ÁRMANNSSON LÝSING OG
HLJÓÐ: GARÐAR BORGÞÓRSSON TÓN-
LIST: HÖGNI EGILSSON
Þegar gengið var inn í litla sal
Borgarleikhússins á frumsýningu
Bláskjás eftir Tyrfing Tyrfings-
son varð strax ljóst að verið var
að bjóða áhorfendum inn í lokaðan
heim. Á sviðinu sátu systkinin Val-
ter og Ella algjörlega upptekin af
eigin dútli enda hafa þau ekki stig-
ið fæti út fyrir kjallaraíbúðina sem
sviðið á að fyrirstilla í heil sjö ár.
Þau hafa búið sér til tveggja manna
heim sem með aðstoð tækninnar
býður upp á allt sem þau þurfa,
nema raunveruleika og samskipti
við annað fólk.
Fljótlega eftir að sýningin hefst
kemur í ljós að ástæða þessar-
ar innilokunar er kúgarinn faðir
þeirra, landsfrægur stjórnmála-
maður sem býr á efri hæðum húss-
ins með uppáhaldinu sínu honum
Eiríki. Nú er faðirinn látinn og
Eiríkur kemur í kjallarann til að
reyna að fá systkini sín með sér í
jarðarförina. Upphefst þá mikill
leikur katta að mús, mús sem held-
ur reyndar að hún sé kötturinn í
leiknum.
Samskipti þeirra systkinanna
eru í senn sprenghlægileg og sorg-
legri en tárum taki. Einlægni og
hreinskilni eru ekki til í þeirra
orðaforða og þrátt fyrir að tæpt
sé á ýmsum skelfilegum leyndar-
málum er ekkert rætt, ekki tekið
á neinu. Þau flýja í sögur, leiki og
drauma og undir og yfir og allt um
kring svífur minnið úr sögunni um
Bláskjá, bláeyga greifasoninn sem
sígaunarnir rændu og lokuðu inni
í myrkum helli. Spurningin hér er
þó kannski fyrst og fremst hver
kúgar hvern og hver er innilokað-
ur. Viljum við nokkuð frelsi þegar
allt kemur til alls? Og hver vill í
rauninni bera ábyrgð á eigin lífi og
gjörðum?
Sýningin er feikilega lífleg, hröð
og skemmtileg, tónlistin leikur stórt
hlutverk og sögurnar sem gripið er
í til að flýja óþægilegan veruleika
eru hver annarri fyndnari þótt allt-
af sé stutt í helsáran undirtóninn.
Tyrfingur sannar hér það sem leik-
húsáhugafólk var sterklega farið að
gruna að hann er frjór og frumlegur
höfundur sem kann að nýta leikhús-
ið og öll trix þess út í æsar.
Systkinin þrjú eru leikin af Hirti
Jóhanni Jónssyni, Arndísi Hrönn
Egilsdóttur og Arnmundi Ernst B.
Björnssyni sem öll glansa í hlut-
verkunum og hafa hið hárfína jafn-
vægi milli gríns og tragedíu full-
komlega á valdi sínu. Að hinum
tveimur ólöstuðum er það þó Hjört-
ur Jóhann sem stelur senunni og
bókstaflega fer á kostum í hlutverki
hins brjóstumkennanlega Valters.
Leikmynd Brynju Björnsdóttur
er einföld og stílhrein og tilfinn-
ingin fyrir innilokuninni kemst vel
til skila. Vignir Rafn Valþórsson
leikstjóri hefur valið þá leið að láta
sýninguna virka eins og kabarett-
sjóv sem kemur virkilega vel út og
harmón erar vel við texta Tyrfings.
Tónlist Högna Egilssonar er svo
punkturinn yfir i-ið, en allt hjálp-
ast þetta að við að gera sýninguna
að sterkri og áhrifamikilli upplifun.
Friðrika Benónýsdóttir
NIÐURSTAÐA: Bráðskemmtileg og
sterk sýning þar sem leikarar fara á
kostum í vel skrifuðu verki.
Hver kærir sig um frelsi?
BLÁSKJÁR „Systkinin þrjú eru leikin af Hirti Jóhanni Jónssyni, Arndísi Hrönn Egilsdóttur og Arnmundi Ernst B. Björnssyni sem
öll glansa í hlutverkunum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ford.is
Ford Fiesta.
„Besti smábíllinn“
Beinskiptur frá 2.450.000 kr.
Sjálfskiptur frá 2.790.000 kr.
Ford Fiesta, bensín 65 hö, beinskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,3 l/100 km. CO2 99 g/km. Ford Fiesta, EcoBoost bensín 100 hö, sjálfskiptur. Eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 4,9 l/100 km.
CO2 114 g/km. Tökum allar tegundir bíla uppí nýja. Brimborg og Ford áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Brimborg Reykjavík
Bíldshöfða 6
Sími 515 7000
Brimborg Akureyri
Tryggvabraut 5
Sími 515 7050
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Varahlutaverslun og verkstæðismóttaka er einnig opin laugardaga kl. 12-16
Ekki enn sannfærð/ur? Hér eru fleiri staðreyndir um Ford Fiesta:
Hiti er í framsætum og 3,5 tommu upplýsingaskjár í mælaborði. Farangursrýmið er einstaklega rúmt (290 lítra). CO2 gildin eru óvenju lág fyrir bensínvél og hann fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur.
Ford MyKey, brekkuaðstoð og EasyFuel er staðalbúnaður. Öryggispúðarnir eru óvenju margir eða 7 talsins, þar af einn fyrir hné ökumanns. Sérstakt hitaelement er í miðstöð og er hann því mjög fljótur
að hitna sem er afar hentugt á köldum vetrarmorgnum!
Ford Fiesta var valinn besti smábíllinn árið 2013 af
sérfræðingum eins vinsælasta bílablaðs heims, Auto
Express.
Brimborg fagnar 50 árum í bílgreininni og af því tilefni
fylgja ný Nokian vetrardekk að verðmæti 120.000 kr.
öllum Ford Fiesta í febrúar. Nýttu tækifærið.
Komdu og prófaðu þennan snilldar bíl.