Fréttablaðið - 11.02.2014, Qupperneq 14
11. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, amma og langamma,
AUÐUR HÁKONARDÓTTIR,
Víðilundi 3, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í
Hafnarfirði 4. febrúar. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.00.
Gunnar H. Jónsson
Jóna Gunnarsdóttir
Hákon Gunnarsson
Guðrún Gunnarsdóttir
Kristín Gunnarsdóttir
og ömmubörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför
RAGNHEIÐAR JÓNSDÓTTUR
frá Sólheimum.
Aðstandendur.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR MAGNÚSDÓTTIR
frá Björgum,
lést á dvalarheimilinu Lögmannshlíð 30. janúar. Útför hennar fer
fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 14. febrúar kl. 13.30.
Magnús Björnsson Fanney Þórðardóttir
Gestur Björnsson Ingibjörg Kjartansdóttir
Sigrún Lára Björnsdóttir Jón Aðalsteinsson
Kristín Björnsdóttir
ömmu- og langömmubörn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÚLFUR MARKÚSSON
Berjarima 34,
lést í faðmi fjölskyldunnar á Landspítalanum
8. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar.
Hrafn Úlfsson Sjöfn Sverrisdóttir
Jökull Úlfsson Guðrún Björgvinsdóttir
Örn Þór Úlfsson Ingunn Björnsdóttir
Markús Úlfsson Helga Haraldsdóttir
Helgi Úlfsson
Sonja Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir, tengdamóðir og amma,
JÓHANNA G. SVEINSDÓTTIR
Skipholti 49, Reykjavík,
lést 22. janúar á Landspítalanum eftir stutta
sjúkralegu. Jarðarför fór fram í kyrrþey.
Jón Þórðarson
Ægir Þór Jónsson Jan Dodge Jónsson
Elsa Jóhanna Ægisdóttir Reynir Jón Ægisson
SIGURJÓN GUÐNASON
málmsteypumeistari,
áður Skipasundi 45, Reykjavík,
sem lést á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
2. febrúar sl., verður jarðsunginn frá
Laugarneskirkju miðvikudaginn 12. febrúar klukkan 11.00.
Snorri Sigurjónsson Ingibjörg G. Guðmundsdóttir
Hörður M. Sigurjónsson Kelli C. M. Sigurjónsson
Anna Lísa Sigurjónsdóttir Sigurður Þ. Þórðarson
Ragnhildur Guðmundsdóttir
barnabörn og fjölskyldur þeirra.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SOFFÍA VALGERÐUR EINARSDÓTTIR
Hjaltabakka 30, Reykjavík,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir þann 9. febrúar.
Útför hennar verður auglýst síðar.
Einar Ingi Magnússon
Gunnar Magnússon
Sigrún Magnúsdóttir
Ása Magnúsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
RAGNHEIÐUR PÁLSDÓTTIR
Breiðuvík 67, Reykjavík,
andaðist á gjörgæsludeild LSH í Fossvogi
laugardaginn 8. febrúar. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju föstudaginn 14. febrúar klukkan 13.00.
Stefán Níels Stefánsson
Guðríður Stefánsdóttir Guðmundur Ág. Ingvarsson
Hrafn Stefánsson Sonja I. Einarsdóttir
Örn Stefánsson Ingunn Ólafía Blöndal
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, sonur,
bróðir og tengdasonur,
ÞORSTEINN JÓHANNSSON
Lyngbraut 8, Garði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
5. febrúar síðastliðinn. Útför hans fer fram
frá Útskálakirkju 13. febrúar kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á Björgunarsv. Ægi í Garði eða Krabbameinsfélagið.
Ingveldur Ásdís Sigurðardóttir
Sólveig H. Þorsteinsdóttir
Elísabet Ó. Þorsteinsdóttir
Jóhann A. Þorsteinsson
Helga Sigurbjörg Bjarnadóttir
Þórhallur Jóhannsson
Hlynur Jóhannsson
Njörður Jóhannsson
Sólveig Ívarsdóttir Trausti B. Óskarsson
og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUNNAR JÓNSSON
Hveragerði,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands miðvikudaginn 5. febrúar.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á minningarkort Hjartaheilla. Jarðarförin fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 13. febrúar kl. 13.00.
Jóna Jónsdóttir
Jóhann Gunnarsson Hulda Jónsdóttir
Stefanía Gunnarsdóttir Óskar Aðalbjarnarson
Hermína Gunnarsdóttir Valur Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, tengdaamma og langamma,
SJÖFN HJÖRLEIFSDÓTTIR
Norðurbakka 21b, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum fimmtudaginn
6. febrúar.
Guðmundur Björnsson
Elín Helga Guðmundsdóttir Pétur Kjartansson
Björn Guðmundsson Valdís H. Haraldsdóttir
Margrét Guðmundsdóttir
Sjöfn Þórðardóttir Lárus B. Lárusson
Sif Björnsdóttir
Sigrún Margrét Pétursdóttir Þorvaldur Egilson
Heiðrún Sjöfn Sigurðardóttir Sigmar Ólfjörð Kárason
Guðmundur Gunnar Pétursson Tinna Björt Guðjónsdóttir
Þorbjörg Pétursdóttir
Vilhjálmur Pétursson
Guðmundur Björnsson
og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og
útför okkar ástkæru ættmóður,
STELLU STEFÁNSDÓTTUR
Mýrarvegi 117, Akureyri.
Hjördís Ingunn Sörensen Helge Sörensen
Svava Gunnarsdóttir Bjarni Jónasson
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir Finnur Marinósson
Stefanía Erla Gunnarsdóttir Kristleifur Kolbeinsson
Elín Stella Gunnarsdóttir
Gylfi Þorgeir Gunnarsson Sigrún Þorláksdóttir
Ragna Gunnarsdóttir Gunnar Hannesson
Fríður Gunnarsdóttir Bjarni Bjarnason
Konráð Stefán Gunnarsson Guðfinna Sölvadóttir
Ingibjörg Margrét Gunnarsdóttir
Bessi Gunnarsson Indíana Ásmundsdóttir
Sigrún Gunnarsdóttir Gunnar Jónsson
Hanna Dröfn Gunnarsdóttir Ólafur Þorsteinsson
og aðrir afkomendur.
Alþjóðlegi netöryggisdagurinn verður haldinn hátíðlegur
í ellefta sinn í dag. Í tilefni dagsins stendur SAFT, Samfé-
lag, fjölskylda og tækni, sem er vakningarátak um örugga
og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á
Íslandi, fyrir ráðstefnu í Skriðu, aðalbyggingu Menntavís-
indasviðs Háskóla Íslands við Stakkahlíð, frá tólf á hádegi
til fjögur. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við ráðuneyti
innanríkis-, velferðar- og mennta- og menningarmála, Póst-
og fjarskiptastofnun og Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra heldur opn-
unarávarp og býður gesti velkomna og Eygló Harðardóttir
flytur einnig erindi. Nokkrar málstofur verða haldnar, en
þær eru Ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu, Varðveisla
persónuupplýsinga og Hvernig byggjum við upp „stafræna
borgaravitund“?
Margrét Steinarsdóttir er framkvæmdastjóri Mannrétt-
indaskrifstofu Íslands og er hún ein þeirra sem flytja erindi
á málstofunni um ábyrgð og vernd Íslendinga á netinu, en
málstofunni stýrir Ingimar Karl Helgason blaðamaður.
„Við munum meðal annars benda á skýrslu sem Mannrétt-
indaskrifstofa gaf út um hatursorðræðu og segja frá efni
hennar. Svo munum við tala almennt um hatursorðræðu og
internetið – því internetið hefur auðvitað opnað stóran vett-
vang fyrir ýmiss konar fordóma og hatursorðræðu,“ segir
Margrét. „Við ætlum einnig að snerta á alþjóðlega reglu-
verkinu um internetumgengni og þau vandkvæði sem fylgja
því að geta skýlt sér á bak við löggjöf annarra ríkja með
því að skrá lén í ríkjum þar sem ekki er jafnstrangt reglu-
verk um internetnotkun.“ Hún segir þetta verða örerindi en
vonast til þess að líflegar umræður skapist í kjölfarið. „Við
munum ræða um tjáningarfrelsið og svo aftur takmarkanir
á því vegna hatursorðræðunnar – við vonum að við komum
að sem mestum upplýsingum sem við teljum að geti komið
að gagni í umræðunni,“ segir Margrét.
Þemað á netöryggisdeginum í ár er Gerum netið betra,
saman og munu yfir hundrað þjóðir um allan heim standa
fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag. olof@frettabladid.is
Alþjóðlegi netöryggis-
dagurinn er í dag
Margrét Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Mannréttindaskrifstofu Íslands, er meðal þeirra
sem halda erindi, en hún mun ræða um hatursorðræðu á netinu.
STÓR VETTVANGUR HATURSORÐRÆÐU Margrét segir internetið
hafa opnað stóran vettvang fyrir hatursorðræðu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA