Fréttablaðið - 11.02.2014, Síða 34
11. febrúar 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 22
3 í röð?
Bandaríkjamaðurinn
Shaun White á
möguleika á því í
dag að vinna
hálfpípu snjó-
brettakeppninnar
á þriðju Ólympíu-
leikunum í röð en
hann vann þessa
grein einnig 2006 í
Tórínó og 2010 í
Vancouver.
VETRARLYMPÍULEIKARNIR Í SOTSJÍ 2014 STJÖRNUR GÆRDAGSINS MICHEL OG RONALD MULDER SKAUTAHLAUP
Hollensku tvíburabræðurnir Michel
Mulder og Ronald Mulder komust
báðir á pall í gær í 500 metra skauta-
hlaupi karla á Vetrarólympíuleik-
unum í Sotsjí í Rússlandi. Þeir urðu
þar með aðeins aðrir bræðurnir í
sögu Vetrarleikanna til að vinna
verðlaun í sömu grein en fyrir þrjátíu
árum unnu Bandaríkjamennirnir Phil
og Steven Mahre gull og silfur í svigi
á ÓL í Sarajevo 1984.
Michel Mulder vann með minnsta
mögulega mun en hann varð aðeins
0,01 sekúndu á undan landa sínum
Jan Smeekens.
„Ég vissi í rauninni ekki hvaða
tími myndi duga. Ég hef sjálfur tapað
hlaupum á einum hundrasta úr
sekúndum. Það er ótrúlegt að vinna
núna og vera Ólympíumeistari,“
sagði Michel Mulder.
Það var reyndar drama í lokin því
Smeekens hélt fyrst að hann hefði
komið í mark á sama tíma og Mulder.
Það var hins vegar leiðrétt þegar
opinber tími hans kom upp á töflu.
Michel Mulder er tíu mínútum yngri
en tvíburabróðir hans Ronald Mulder
en Michel var 15 sekúndubrotum á
undan Ronald í úrslitum 500 metra
skautahlaupsins. - óój
DAGSKRÁ ÞRIÐJUDAGUR
GÓÐUR DAGUR FYRIR...
VANN SÍNA SLÖKUSTU GREIN Kanada-
maðurinn Charles Hamelin vann 1.500
metra skautaat í skautahlaupi á stuttri
braut en hann á enn eftir að keppa í
tveimur gullgreinum sínum frá því í
Vancouver fyrir fjórum árum.
MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
VARÐI TITILINN Þjóðverjinn Maria
Höfl-Riesch varð Ólympíumeistari í
alpatvíkeppni kvenna í gær. Hún varð
fimmta í bruni og þriðja í svigi en
enginn náði betri heildartíma í báðum
ferðum. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
ÖRUGGUR SIGUR Frakkinn Martin
Fourcade vann eltigöngu í skíðaskotfimi
karla í gær en landi hans Jean Guill-
aume Beatrix varð í þriðja sæti. Hér
fagna þeir. MYND/NORDICPHOTOS/GETTY
SPORT
ÓL2014 „Það fer rosalega vel um
mig en hér er allt sem maður getur
mögulega hugsað sér,“ sagði skíða-
göngukappinn Sævar Birgisson
við Fréttablaðið en hann keppir
á morgun í 15 km sprettgöngu á
Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í
Rússlandi. Sævar er fyrsti fulltrúi
Íslands í skíðagöngu á Ólympíu-
leikum í tvo áratugi og fyrstur af
fimm íslenskum keppendum sem
keppir í Sotsjí. Allir hinir keppa í
alpagreinum.
„Æfingar hafa gengið mjög vel
og ég hef vanist þunna loftinu
ágætlega,“ segir Sævar sem dvelst
ekki á sama stað og aðrir íslenskir
keppendur. Hann er í hinu svoköll-
uðu „úthaldsþorpi“ en keppendur í
alpagreinum haldast við í „fjalla-
þorpinu“.
Sævar er þó síður en svo ein-
samall þar sem faðir hans er einn
fararstjóra íslenska hópsins. „Svo
eru hér keppendur úr öllum heims-
hornum,“ bætir hann við.
Færið er hart og fínt
Sævar hefur áður gefið út að hann
yrði sáttur við að verða meðal 50
efstu keppenda í göngunni á morg-
un. „Þetta verður annars bara að
koma í ljós. Maður gengur bara
eins hratt og maður getur,“ segir
Sævar en bætir við að það sé ýmis-
legt að varast í brautinni.
„Það eru tvær mjög langar og
krefjandi brekkur í brautinni og
þá er sprettbrautin í lengri kant-
inum miðað við það sem gengur og
gerist. Maður verður því að halda
aftur af sér og klára brekkurnar
vel. Það er hins vegar hart og fínt
færi sem hentar mér vel auk þess
sem það er gott að spyrna með
slíkt undirlag. Ég vona að færið
haldist þannig þegar út í keppnina
er komið.“
Sævar æfði á Ítalíu í aðdraganda
leikanna og var þá hærra yfir sjáv-
armáli en í Sotsjí. „Þá var ég að
æfa í 1.800-2.000 metrum en hér
erum við um 1.500 m yfir sjávar-
máli. Ég tel mig því vera kominn
með góðan grunn til að þola þær
aðstæður sem skapast í svo mik-
illi hæð.“
Lét forsetann bíða eftir sér
Þess má geta að Sævar mun njóta
liðsinnis norska keppnisliðs-
ins á morgun og er með norskan
„smurningsmann“ sem sér um
skíðin hans.
Mikið hefur verið fjallað um
aðstæður keppenda og fjölmiðla-
fólks í Sotsjí og fjölmargar mynd-
ir birst af misboðlegum aðstæðum
þeirra. Sævar kannast ekkert við
slíkt hjá sér.
„Ég skil reyndar ekkert í þeim
fréttum því ég hef ekki getað sett
neitt út á nokkurn hlut hér og hef
ég nú verið hér í nokkra daga.
Byggingunni sem við erum í núna
verður reyndar breytt í fimm
stjörnu hótel eftir leikana og kann
það að hafa eitthvað að segja,“
segir Sævar og segir upplifunina
af leikunum vera magnaða.
„Það var mjög skemmtilegt á
setningarhátíðinni og þá sérstak-
lega að hafa fengið að vera fána-
beri.
Það verður stund sem ég gleymi
seint. Svo var líka gaman að fá
forsetann í heimsókn hingað í
þorpið en hann þurfti reyndar að
bíða eftir mér á meðan ég kláraði
æfingu. Það eru ekki margir sem
láta forsetann bíða eftir sér en ég
held að það hafi farið vel um hann
á meðan,“ sagði Sævar í léttum dúr
og spenntur fyrir stóru stundinni í
dag.
eirikur@frettabladid.is
Mig skortir ekkert í Sotsjí
Sævar Birgisson keppir fyrstur Íslendinga á Vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í dag þegar hann tekur þátt í
15 km sprettgöngu. Hann ber leikunum góða sögu og segir að aðstæður séu eins og best verður á kosið.
Á ÆFINGU Sævar segir æfingar sínar í Sotsjí hafa gengið vel en hann keppir í 15 km sprettgöngu í dag. MYND/ÚR EINKASAFNI
09.00 SKÍÐAFIMI KVENNA
09.50 SPRETTGANGA KARLA OG
KVENNA: UNDANKEPPNI
10.55 SKÍÐAFIMI KVENNA (E)
12.00 SPRETTGANGA KARLA OG
KVENNA
14.50 10KM SKÍÐASKOTFIMI KV.
16.20 LUGE SLEÐAKEPPNI KV.
17.30 SNJÓBRETTI KARLA–
HALFPIPE
18.40 500M SKAUTAHLAUP
KVENNA
20.15 SKÍÐASTÖKK KVENNA
22.00 SAMANTEKT FRÁ DEGI 4
22.35 ÍSHOKKÍ KVENNA:
ÞÝSKALAND-SVÍÞJÓÐ (E)
-90%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
Við höfum opnað útsölumarkað í öllum okkar verslunum, mikið
úrval af skrifstofuvörum, föndri, spilum , leikföngum, náms-
og kennsluvörum og fleira og fleira, allt að 90% afsláttur.
Komdu við og gerðu góð kaup.
ÚTSÖLUMARKAÐUR
A4 Skeifunni 17 / A4 Smáratorgi 1 / A4 Reykjavíkurvegi 62, Hafnarfirði / A4 Dalsbraut 1, Akureyri / A4 Miðvangi 13, Egilsstöðum / A4 Austurvegi 65, Selfossi