Fréttablaðið - 17.02.2014, Blaðsíða 2
17. febrúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 2
STJÓRNSÝSLA Kafarar hafa kært gjaldtöku vegna
köfunar í Silfru til umboðsmanns Alþingis og
Samkeppniseftirlitsins. Telja kafararnir að
reglur um gestagjöld á Þingvöllum standist
ekki lög og að Þingvallanefnd veiti köfurun-
um ekki sérstaka þjónustu fram yfir aðra gesti
þjóðgarðsins.
Sigrún Magnúsdóttir, formaður Þingvalla-
nefndar, telur gjaldtökuna eðlilega miðað við
þann kostnað sem lagður hafi verið í aðstöðu
á svæðinu.
„Það er búið að búa til aðstöðu fyrir kafarana,
byggja skúr og lagfæra í kringum Silfru þar
sem farið var að sjá á gróðri. Ég stend alveg á
því að það sé eðlilegt að taka þarna gjald því
þarna er verið að leyfa viðbótarstarfsemi innan
þjóðgarðsins,“ segir Sigrún.
Þessu er Torfi Yngvason, einn eigenda Artic
Adventures sem er einn þeirra þjónustuaðila
sem bjóða upp á köfun í Silfru, ósammála. Hann
segir ferðaþjónustuaðila við Silfru þá einu sem
greiði gjald fyrir aðstöðu í þjóðgarðinum.
„Þeir sem fara gangandi eða ríðandi um þjóð-
garðinn þurfa ekkert að greiða fyrir að koma
þangað. Það þarf ekkert að segja mér að það sé
meiri átroðningur af þeim sem kafa í Silfru en
almennt af öðrum gestum. Þetta er náttúrulega
rakið rugl og bull,“ segir Torfi. -eh
Kafarar telja gestagjöld á Þingvöllum ekki lögmæt og hafa sent kvörtun til umboðsmanns Alþingis:
Kæra gjaldtöku við Silfru á Þingvöllum
ÞINGVELLIR Silfra er afar vinsæll viðkomustaður
fyrir ferðamenn sem vilja snorkla.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPURNING DAGSINS
Kringlunni
heyrnarstodin.is
HEYRNARSTÖ‹IN
Ólafur, munu þær hverfa eftir
andartak?
„Ekki ef borgaryfirvöld hafa þá
andagift sem til þarf.“
Þrjár andategundir munu að öllu óbreyttu
hverfa af Reykjavíkurtjörn innan fárra ára.
Ólafur K. Nielsen vistfræðingur vann skýrslu
um málið fyrir borgaryfirvöld.
NEYTENDUR „Forsætisráðherra
skortir upplýsingar um málið. Hann
áttar sig ekki á því að ríkið er að
selja tollkvóta,“ segir Finnur Árna-
son, forstjóri Haga.
Í byrjun febrúar sendi verslun-
arfyrirtækið Hagar atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytinu bréf þar
sem sótt var um leyfi til að flytja
inn geita-, ær- og buffalaost án inn-
flutningstolla. Hagar sögðu inn-
lenda framleiðslu nær enga og anna
því ekki eftirspurn.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra sagði í Sunnu-
dagsmorgni, þætti Gísla Mar-
teins Baldurssonar, á RÚV í gær
að Hagar hefðu næga tollkvóta til
að flytja inn osta úr hvaða dýri
sem þeir vildu. „Þeir hefðu ekki
einu sinni þurft að sækja um þetta.
Ég hugsa að menn hljóti að benda
þeim á að þeir hafi nægan kvóta til
að flytja inn ost úr hverju sem er,
sagði ráðherrann.
Finnur segir að framleiðend-
ur hafi keypt þessa tollkvóta. Það
sé lítið magn af tollkvótum í boði,
þeir séu boðnir upp og það þurfi
að borga fyrir þá. „Þetta jafngildir
ofurtollum,“ segir hann.
Forsætisráðherra gerði því skóna
að beiðni Haga væri vegna þess að
fyrirtækið vildi brjóta kerfið á bak
aftur. Hann sagði jafnframt að til
stæði að einfalda tollakerfið. „Það
verður gert. Hins vegar væri mjög
óæskilegt að það leiddi til veiking-
ar á stöðu innlendra framleiðenda
gagnavart erlendum,“ sagði Sig-
mundur.
Ráðgjafarnefnd um inn- og
útflutning landbúnaðarvara hefur
umsókn Haga um innflutning á ost-
unum til umfjöllunar en tvær vikur
eru frá því að umsóknin var send.
Hagar óskuðu um miðjan janú-
ar eftir að fá að flytja inn lífræn-
an kjúkling án innflutningstolla
þar sem innlend framleiðsla ann-
aði ekki eftirspurn. Svar við þeirri
umsókn hefur ekki enn borist.
„Ef við fáum neikvætt svar frá
yfirvöldum ætlum við að fara með
málið til umboðsmanns Alþingis,“
segir Finnur Árnason.
johanna@frettabladid.is
Skilur ekki að ríkið
selur tollkvótana
Forsætisráðherra segir að Hagar hafi næga tollkvóta til að flytja inn ost úr hvaða
dýri sem er. Forstjóri Haga segir að ráðherrann skorti upplýsingar, hann átti sig
ekki á því að kaup á tollkvótum jafngildi ofurtollum. Málið er enn í biðstöðu.
Í fjármálaráðuneytinu er verið að vinna frumvarp um breytingar á lögum
um Seðlabanka Íslands.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði í þættinum
Sunnudagsmorgni með Gísla Marteini að ekki væri búið að ákveða hvort
bankastjórum Seðlabankans yrði fjölgað úr einum í þrjá. „Neita því ekki,
en sagði ekki að það myndi gerast,“ sagði Sigmundur Davíð. Forsætis-
ráðherra sagðist lengi hafa verið ósammála stefnu Seðlabankans, sér í lagi
vaxtastefnu hans. Hann sagði að það væri æskilegt að bankinn endurmæti
stefnu sína oftar en hann gerði.
„Menn munu ekki hverfa frá sjálfstæði Seðlabanka. Það getur verið
æskilegt og mikilvægt, til dæmis ef það væri einhver annars konar
ríkisstjórn en núna er. Þá myndum við auðvitað vilja hafa sjálfstæðan
Seðlabanka til að passa upp á hana,“ sagði Sigmundur Davíð. Hann sagði
jafnframt að mikilvægt væri að Seðlabankinn virkaði sem öryggisventill.
Sjálfstæðið brýnt ef önnur stjórn sæti
VIÐSKIPTI Norska Dagbladet segir
olíu á Drekasvæðinu geta gert
Íslendinga skuldlausa og gott
betur.
Dagbladet reiknast til, út frá
mati Eykon Energy og Olíustofnun-
ar Noregs, að olía á norsk-íslenska
Jan Mayen-svæðinu sé um 125
þúsund milljarða íslenskra króna
virði. Sú upphæð nemur 220-föld-
um fjárlögum íslenska ríkisins.
Umfjöllunin hefur vakið tals-
verða athygli og vitnuðu netmiðlar
á Grænlandi og í Færeyjum í hana.
- kmu
Olían á Jan Mayen-svæðinu:
Gæti þurrkað út
skuldir Íslands
BLAÐAMENNSKA Blaðamannaverð-
laun Íslands og verðlaun Blaða-
ljósmyndarafélagsins voru afhent
í Gerðarsafni á laugardag. Stígur
Helgason fór með sigur af hólmi í
flokknum Viðtal ársins með viðtali
sem hann tók við Maríu Rut Krist-
insdóttur og birtist í Fréttablaðinu
í júlí.
Þá fékk Vilhelm Gunnarsson, ljós-
myndari á Fréttablaðinu, verðlaun
fyrir umhverfisljósmynd ársins, af
síldardauða í Kolgrafafirði. Baldur
Hrafnkell Jónsson, myndatökumað-
ur á Stöð 2, hlaut svo verðlaun fyrir
besta myndskeið fréttatökumanns á
ljósvakamiðlum.
Verðlaun fyrir rannsóknarblaða-
mennsku ársins fengu þeir Jón
Bjarki Magnússon og Jóhann Páll
Jóhannsson á DV. Verðlaun fyrir
umfjöllun ársins hreppti ritstjórn
Kastljóss en Bergljót Baldursdóttir
á RÚV hlaut blaðamannaverðlaun
ársins fyrir umfjöllun um heilbrigð-
ismál.
Þá átti Páll Stefánsson mynd árs-
ins 2013. Myndröð ársins tók Kjart-
an Þorbjörnsson og fréttamynd
ársins tók Sigtryggur Ari Jóhanns-
son af Karli Vigni Þorsteinssyni.
Íþróttamynd ársins tók Árni Torfa-
son af Anítu Hinriksdóttur. Tíma-
ritamynd ársins tók Kristinn Magn-
ússon en Kjartan Þorbjörnsson fékk
verðlaun fyrir mynd í flokknum
Daglegt líf. - gb
Blaðamannaverðlaun og ljósmyndaverðlaun ársins 2013 afhent:
Vilhelm og Stígur verðlaunaðir
STJÓRNMÁL Birgitta Jónsdóttir,
kapteinn Pírata, segist munu hætta
á þingi eftir kjörtímabilið.
„Ég er á mínu
síðasta kjörtíma-
bili,“ sagði Birg-
itta í viðtali við
Mikael Torfason
í þættinum Mín
skoðun á Stöð 2
í gær. Birgitta
var einn þriggja
þingmanna sem
kjörnir voru á
þing fyrir Borgarahreyfinguna,
síðar Hreyfinguna, árið 2009.
Birgitta stóð að stofnun Pírata og
var kosin á þing fyrir þá. - jme
Þingflokksformaður Pírata:
Ætlar að hætta
BIRGITTA
JÓNSDÓTTIR
ÚKRAÍNA, AP Í gærmorgun tóku mótmælendur að streyma út úr ráð-
húsinu í Kænugarði, sem þeir hafa haft á valdi sínum vikum saman.
Stjórnvöld hétu öllum mótmælendum sakaruppgjöf ef þeir verða
búnir að yfirgefa allar stjórnarbyggingar í borginni í dag.
Mótmælendur krefjast þess þó enn að Viktor Janúkóvitsj forseti
segi af sér. Einn af leiðtogum mótmælenda, Arsení Jatsenjúk, hafnaði
í gær eina ferðina enn boði frá forsetanum um sæti í ríkisstjórn lands-
ins.
„Mig er ekki hægt að kaupa með embættum, herra forseti,“ sagði
Jatsenjúk þegar hann ávarpaði tugi þúsunda mótmælenda í gær.
„Haltu bara áfram og keyptu þér skósveina.“ - gb
Mótmælendur gengu út úr ráðhúsinu í Kænugarði:
Fjöldi mótmælenda bíður átekta
SIGMUNDUR DAVÍÐ GUNNLAUGSSON Forsætisráðherra segir að tollar verði ein-
faldaðir án þess veikja stöðu innlendra framleiðenda gagnvart erlendum.
MYND/SKJÁSKOT RÚV
FULLTRÚAR 365 Fréttastofa 365 fékk sex verðlaun og tilnefningar. Á myndinni eru
Ólafur Þ. Stephen sen ritstjóri, Baldur Hrafnkell Jónsson myndatökumaður, Vilhelm
Gunnarsson ljósmyndari, blaðamennirnir Stígur Helgason, Svavar Hávarðsson og
Eva Bjarnadóttir og Mikael Torfason aðalritstjóri. MYND/ANDRI MARÍNÓ
MÓTMÆLENDUR STANDA VÖRÐ Vígalegir mótmælendur vörðu ráðhúsið gegn
öðrum mótmælendum, sem vildu fara aftur inn. NORDICPHOTOS/AFP