Fréttablaðið - 17.02.2014, Qupperneq 6
17. febrúar 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Hágæða flísalím og fúga
Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir a l la , a l l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð!
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Weber.tec 822 Rakakvoða
8 kg kr. 7.890
24 kg kr. 19.990
Weber.xerm.
850 BlueCom-
fort C2TE
kr. 2.790
Weber.xerm.
BlueComfort
852 C2TE S1
kr. 3.990
Reykjavík Kletthálsi 7. Opið má-fö kl. 8-18, laug. 10-16
Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið má-fö kl. 8-18
Látið fagmenn vinna verkin!
Weber.xerm.
BlueComfort
CE /TE S1
Xtra Flex
kr. 5.290
Weber.Fug 870
Fúga 1-6 mm
CG1 5 kg
kr. 1.690
Weber.Fug 880
Silicone
EC.1. plus
310 ml.
kr. 1.190
DEITERMANN
TECHNOLOGY INSIDE
IÐNAÐUR Nýtt spennivirki Lands-
nets á Grundartanga eykur líkur
á að fyrirtækjum á svæðinu fjölgi.
Þetta segir Gísli Gíslason, hafnar-
stjóri Faxaflóahafna.
Fyrirtækið hefur að undan-
förnu fengið þó nokkrar fyrir-
spurnir um lóðir
á Grundartanga
en þær eru í eigu
Faxaflóahafna.
Fréttablaðið
greindi í síðustu
viku frá því að
bandaríska fyr-
irtækið Silicor
Materials hefði
óskað eftir lóð á svæðinu undir
sólarkísilverksmiðju sem gæti
framleitt um sextán þúsund tonn
af kísil á ári.
„Það mál er lengra komið en
önnur sem eru annaðhvort í bið-
stöðu eða á frumstigi. Þar er um
að ræða bæði innlenda og erlenda
aðila sem vilja annaðhvort hefja
sína eigin framleiðslu eða veita
fyrirtækjum á svæðinu þjónustu.
Ég á alveg eins von á því að áhugi
fyrir svæðinu eigi eftir að aukast
enn frekar með hækkandi sól og
batnandi efnahagsástandi.“
Gísli vill ekki fara nánar út í
þær fyrirspurnir sem enn eru á
frumstigi en tvær umsóknir eru
í biðstöðu. Þar er annars vegar
um að ræða umsókn félagsins
Quantum ehf., sem er í eigu inn-
lendra aðila, um lóð undir þurrk-
un á timbri og framleiðslu á viðar-
kubbum. Hin umsóknin er frá öðru
félagi í eigu innlendra aðila, At-
lantic Green Energy, en forsvars-
menn þess vilja framleiða lífdísil
á svæðinu.
„Við fáum líka fyrirspurnir sem
við teljum ekki tækar inn á svæðið
og í haust settum við umsókn fyr-
irtækis sem óskaði eftir aðstöðu til
niðurrifs á skipum í biðflokk.“
Faxaflóahafnir eiga nú í viðræð-
um við sveitarstjórn Hvalfjarðar-
sveitar um breytingar á aðalskipu-
lagi svæðisins.
„Við létum gera umhverfis-
úttekt á Grundartangasvæðinu í
maí í fyrra og höfum lagt það til
við sveitarstjórnina að breytt aðal-
skipulag taki mið af þeirri úttekt.
Ný starfsemi sem fylgdi losun á
brennisteinsdíoxíði eða flúor væri
því ekki valkostur á Grundartanga
og undir það myndi til dæmis falla
kísilbræðsla,“ segir Gísli.
haraldur@frettabladid.is
Fyrirtækjum á Grundartanga
fjölgi með nýju spennivirki
Landsnet tekur nýtt spennivirki á Grundartanga í notkun á þriðjudag. Fyrirtæki sem vilja framleiða kísil,
lífdísil og viðarkubba hafa sóst eftir lóðum á svæðinu og Faxaflóahafnir hafa fengið fleiri fyrirspurnir.
GÍSLI GÍSLASON
ATHAFNASVÆÐIÐ Um 870 manns starfa hjá þeim tíu fyrirtækjum sem nú eru á Grundartanga.
➜ Lóðin sem Silicor
Materials gæti fengið
➜ Álver Norðuráls
➜ Elkem.
Héðinn hf.
Stálsmiðjan hf.
GTT ehf. / Meitill ehf.
Hamar hf.
Klafi ehf.
Lífland hf.
Securitas
ISS ehf.
Nýja spennivirkið er norðvestan við lóð Norðuráls á Grundartanga og
er hugsað sem fyrsti áfangi í endurskipulagningu orkuafhendingar á
svæðinu. Framkvæmdir hófust fyrir tveimur árum, þær hafa kostað um
tvo milljarða króna og virkið verður formlega tekið í notkun næstkomandi
þriðjudag. Virkið gerir Landsneti kleift að nýta betur núverandi flutnings-
línur, bæta spennustýringu og eykur flutningsgetu rafmagns inn á svæðið.
Nýtir betur núverandi flutningslínur
1. Með aðalhlutverk í hvaða sjónvarps-
þáttaröð fara Kevin Spacey og Robin
Wright?
2. Hvar í heiminum hófst í vikunni fjórða
eldgosið á örfáum mánuðum?
3. Hvað voru drengirnir tveir sem stóðu
að baki falskri sprengjuhótun hjá WOW
air gamlir?
SVÖR
MANNRÉTTINDI Fjáröflunarátakið
Út að borða fyrir börnin hófst
um helgina og stendur yfir til 15.
mars. Átakið felst í því að andvirði,
eða hluti andvirðis, ákveðinna
rétta hjá þeim veitingastöðum sem
taka þátt rennur til samtakanna
Barnaheilla – Save the Children á
Íslandi.
Í ár taka 22 veitingastaðir þátt í
átakinu. Á vefsíðu Barnaheilla má
sjá hvaða staðir taka þátt og með
hvaða hætti.
„Við erum afskaplega ánægð
með þessa frábæru veitingastaði
sem styðja mannréttindi barna
með þessum hætti,“ segir Erna
Reynisdóttir, framkvæmdastjóri
samtakanna í tilkynningu. - bá
Fjáröflunarátak Barnaheilla:
Borðað úti til
bjargar börnum
ÚTIVIST Prýðilegt skíðafæri hefur
verið víða um land undanfarna
daga og voru flest skíðasvæði opin
í gær. Í Hlíðarfjalli var opið frá 10
til 16 og veður frábært samkvæmt
tilkynningu. Sömuleiðis var opið til
16 í Tindastól og þar sagður mikill
og góður snjór.
Skíðafæri var misjafnt við höf-
uðborgarsvæðið, opið var í Skála-
felli þó kalt væri en lokað í Blá-
fjöllum vegna roks.
Þá var opið í Tungudal og Selja-
landsdal og boðið upp á kaffi og
safa við lyftur líkt og aðra sunnu-
daga. - bá
Gott skíðafæri víða um land:
Flestar brekkur
opnar í gær
BANDARÍKIN, AP Í Bandaríkjunum
er andstæðingum hjónabanda sam-
kynhneigðra hætt að lítast á blik-
una, eftir að vígi þeirra hafa fallið í
hverju ríkinu á fætur öðru.
Nú berjast þeir fyrir því að
stjórnarskrá Bandaríkjanna verði
breytt, þannig að í nýjum viðauka
verði hjónaband skilgreint þann-
ig að það geti einungis verið milli
eins karls og einnar konu.
Roy Moore, yfirdómari hæsta-
réttar Alabamaríkis, hvetur alla
ríkisstjóra í Bandaríkjunum til að
styðja slíka stjórnarskrárbreytingu.
Þá hafa þingmenn Repúblikana-
flokksins á ríkisþinginu í Miss ouri
kært Jay Nixon ríkisstjóra til emb-
ættismissis fyrir að hafa skipað
embættismönnum sínum að fallast
á sameiginleg skattframtöl sam-
kynhneigðra para sem hafa gengið
í hjónaband í öðrum ríkjum Banda-
ríkjanna.
Einnig hefur víða verið reynt að
ná því fram að fyrirtæki geti neitað
að þjónusta samkynhneigð hjón af
trúarlegum ástæðum. - gb
Bandarískir andstæðingar hjónabanda samkynhneigðra eiga í vök að verjast:
Vilja nú breyta stjórnarskránni
HEILBRIGÐISMÁL Fjöldi þeirra sem
greinast með inflúensu fer nú vax-
andi. Inflúensa var staðfest hjá 15
einstaklingum í síðustu viku, að
því er segir á vef landlæknis.
Alls hafa 35 greinst með inflú-
ensu undanfarnar vikur. Veikin er
seinna á ferð miðað við þrjá síð-
ustu vetur.
Þeir sem greinst hafa með
inflúensu í vetur eru allt frá því
að vera á fyrsta ári til 88 ára og
búa flestir á suðvesturhorni lands-
ins. - bá
Fimmtán ný inflúensutilfelli:
Inflúensa sækir
ört í sig veðrið
ROY MOORE Á KOSNINGAFUNDI Eink-
um þekktur fyrir baráttu sína fyrir því
að kristileg stytta fái að standa í dóms-
húsi í Alabama. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. House of cards 2. Indónesíu 3. Þrettán ára
Í HLÍÐARFJALLI Margir nýttu tækifærið
og sóttu brekkurnar um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ÆGIR
VEISTU SVARIÐ?