Fréttablaðið - 17.02.2014, Qupperneq 16
17. febrúar 2014 MÁNUDAGUR| TÍMAMÓT | 16TÍMAMÓT
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og fósturafi,
MÁR RÖGNVALDSSON
Háteigsvegi 23,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 6. febrúar síðastliðinn. Útförin
fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn
20. febrúar kl. 13.00.
Gíslína Gunnarsdóttir
Steinunn I. Másdóttir Bergur Steingrímsson
Gunnar Már Másson
Ellen Elísabet, Bjarki Már, Jóhanna Þórný og Brynjar Þór
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR SOFFÍA JÓNSDÓTTIR
húsmæðrakennari,
Sléttuvegi 17, Reykjavík,
sem lést á hjúkrunarheimilinu Eir
sunnudaginn 9. febrúar, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 19. febrúar kl. 11.00.
Fanney Jónsdóttir
Sólveig Jónsdóttir Gestur Þorgeirsson
Björg Jónsdóttir Grímur Sæmundsen
barnabörn og langömmubörn.
MERKISATBURÐIR
1867 Fyrsta skipið siglir í gegnum Súesskurðinn í Egyptalandi.
1904 Madame Butterfly er frumsýnd í fyrsta sinn í La Scala í
Mílanó.
1925 Harald Ross og Jane Grant setja á stofn tímaritið The New
Yorker.
1978 Sprengja springur fyrir utan veitingastaðinn La Mon í Bel-
fast. Tólf láta lífið og þrjátíu særast.
1996 Garry Kasparov sigrar ofurtölvuna Deep Blue í skák.
2008 Kósóvó lýsir yfir sjálfstæði.
„Okkur fannst áhugavert að Eve
Markowitz Preston frá New York
hefði haft samband og viljað halda
þennan fyrirlestur á almennings-
bókasafni á ferðalagi sínu um
Ísland. Þetta er skemmtilega öðru-
vísi og við vonumst til að sjá sem
flesta,“ segir Guðríður Sigurbjörns-
dóttir, verkefnastjóri Borgarbóka-
safnsins.
Eve Markowitz Preston er mark-
þjálfi og doktor í sálfræði en hún
mun fjalla um reiðistjórnun og
útskýra hvernig hægt er að stuðla
að betri líðan og lífi með því að hafa
áhrif á eigin hugsanir. Fyrirlest-
urinn fer fram á ensku og verður
fluttur í aðalsafni Borgarbókasafns
á Tryggvagötu 15 kl. 17. Guðrún
segir að almennt telji hún að margir
einstaklingar þurfi á þessum fyrir-
lestri að halda því reiði getur ógnað
samböndum, fækkað starfsmögu-
leikum og haft neikvæð áhrif á
líkamlega heilsu fólks. Hægt sé þó
að hafa hemil á reiðinni og breyta
henni í betri og meðfærilegri til-
finningu hvenær sem er, með því
einu að breyta hugsanaganginum.
„Margir hafa tamið sér ákveðna
hegðun þegar þeir verða reiðir og
sýna ýmist ágengni, ákveðni eða
byrgja hana inni og draga sig í hlé.
Doktor Preston mun skýra muninn
á þessu þrennu og fjalla síðan um
kosti þess að sýna ákveðni og lýsa
því hvernig hægt er að rækta hana
með sér í daglegu lífi,“ segir hún.
Aðgangseyrir er enginn og eru allir
velkomnir.
marinmanda@frettabladid.is
Fagnar fyrirlestri um
ákveðni í stað reiði
Eve Markowitz Preston fj allar um reiðistjórnun á fyrirlestri í Borgarbóksasafninu í dag.
Guðríður Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri safnsins, telur marga þurfa á honum að halda.
FYRIRLESTUR
Á ENSKU
Guðríður Sigur-
björnsdóttir,
verkefnastjóri
hjá Borgar-
bókasafni.
Mani pulite, sem þýðir hreinar hendur,
kallaðist röð réttarhalda sem komu í
kjölfar rannsókna á Ítalíu á spillingu
í ítölskum stjórnmálum. Í ljós kom
að stjórnmálaflokkar skiptu með sér
embættum og stöðum hjá hinu opinbera
eftir ákveðnu kerfi sem átti að tryggja
þeim stöðuveitingar sem væru í samræmi
við fylgi. Þetta leiddi til þess að ýmsir
óhæfir einstaklingar voru fengnir til að
gegna stöðum hjá ríkinu og í ríkisfyrir-
tækjum. Þessir einstaklingar gátu notfært
aðstöðu sína til að hagnast persónulega
með því að gera ákveðnum einstaklingum
og fyrirtækjum greiða.
Mani pulite hófst með handtöku
Mario Chiesa fyrir mútuþægni 17. febrúar
1992. Chiesa var þá forstjóri elliheimilis
í Mílanó og meðlimur í ítalska sósíalista-
flokknum. Aðrir meðlimir flokksins héldu
því fram að mál Chiesa væri einangrað
tilvik og að mútuþægni viðgengist ekki
innan flokksins.
Eftir að hafa dúsað nokkra mánuði
í fangelsi hóf Chiesa að gefa út yfirlýs-
ingar sem tengdu marga þekkta stjórn-
málamenn við spillingu og gerði þetta
dómurum kleift að víkka rannsóknina út
enn frekar. Réttarhöldin leiddu til þess að
Kristilegir demókratar og Ítalski sósíal-
istaflokkurinn liðu undir lok sem greiddi
leið Silvio Berlusconi inn í stjórnmálin.
ÞETTA GERÐIST: 17. FEBRÚAR 1992
Mani pulite hófst með handtöku
SILVIO BERLUSCONI AFP/NORDICPHOTOS
Leikkonan Rene Marie
Russo er sextug í dag. Hún
er þekktust fyrir að leika
í fjölmörgum myndum á
tíunda áratugnum, þar á
meðal In the Line of Fire,
Outbreak, Ransom og The
Thomas Crown Affair.
Rene hóf ferilinn í fyr-
irsætubransanum eftir
að umboðsmaðurinn John
Crosby rak augun í hana
á tónleikum með Rolling
Stones árið 1972. Rene
landaði samningi við
umboðsskrifstofuna Ford
og prýddi forsíður tímarita
á borð við Vogue, Madem-
ois elle og Cosmopolitan.
Þegar hún varð þrítug
minnkaði eftirspurn eftir
henni í módelheiminum
og hóf hún leiklistanám.
Hún þreytti frumraun
sína í sjónvarpi árið 1987
í sjónvarpsseríunni Sable.
Tveimur árum síðar fékk
hún sitt fyrsta kvikmynda-
hlutverk í Major League.
Síðari ár hefur hún til
dæmis leikið í myndun-
um Yours, Mine and Ours,
Thor og Thor: The Dark
World.
Rene hefur verið gift
Dan Gilroy síðan árið 1992
og eiga þau saman dótt-
urina Rose sem fæddist ári
síðar. - lkg
Sextug stórleikkona
Leikkonan Rene Russo á afmæli í dag.
TIL LUKKU Rene á glæstan feril
að baki.
GARRY KASPAROV
Öllum syngjandi konum á Vestur-
landi og víðar stendur til boða að
taka þátt í söngbúðum með djass-
söngkonunni Kristjönu Stefánsdótt-
ur. Söngbúðirnar verða í Hjálma-
kletti í Borgarnesi helgina 1. til 2.
mars og stendur skráning nú yfir.
Þátttakendur munu læra og æfa söng
undir stjórn Kristjönu en það er
Freyjukórinn sem annast skipulagn-
ingu.
„Markmiðið er að efla sönggleði,
þjálfa og hvetja konur til þátttöku í
söngstarfi,“ segir sálfræðingurinn
Inga Stefánsdóttir fyrir hönd undir-
búningshóps Freyjukórs.
Meðal laga sem æfð verða eru More
than Words, Walk on the Wild Side,
Lazy Daisy, Hraustir menn, Einbúinn
og Feeling Good svo nokkur séu nefnd.
„Mikil samstaða og gleði hefur skap-
ast milli þátttakenda og krafturinn
engu líkur,“ bætir Inga við og hvetur
konur til að taka þátt og skrá sig sem
fyrst á vefnum vefurinn.is/freyjur.
Söngbúðirnar enda með tónleikum í
Hjálmakletti í Borgarnesi. Þær konur
sem geta fara síðan á flakk með hópn-
um og syngja í Grundarfirði miðviku-
dagskvöldið 5. mars og í Fríkirkjunni í
Reykjavík laugardaginn 8. mars.
- lkg
Kraft urinn engu líkur í söngbúðum
Freyjukórinn hvetur allar syngjandi konur á Vesturlandi og víðar að taka þátt.
MIKIL SAM-
STAÐA Mikil
gleði hefur
skapast hjá
þátttak-
endum í
búðunum.
MYND/EINKASAFN