Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 10
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 Skeifunni 11 | Sími 515 1100 www.rekstrarland.is Hafið samband við sölumenn Rekstrarlands eða næsta útibú Olís og leitið tilboða. Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olís og er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Öflug fjáröflun fyrir hópinn Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins VELFERÐARMÁL Félags- og trygg- ingamálaráðherra segir engin áform vera um að hækka tekju- viðmið almannatrygginga til aðstoðar örorku- og ellilífeyris- þegum við að standa straum af síhækkandi heilbrigðiskostnaði. Í skoðun er breyting á fyrirkomu- lagi endurgreiðslu. Öryrkjum og lífeyrisþegum sem eiga rétt á greiðslum vegna kostnaðar við að standa straum af meðal annars lyfja- og lækn- isþjónustu, heyrnartækjum og umönnun í heimahúsum fækkaði um tæp 70 prósent frá árinu 2009. Það orsakast af því að tekjuvið- mið Tryggingastofnunar (TR), sem er 200.000 krónur á mán- uði, hefur ekkert hækkað á tíma- bilinu. Eygló Harðardóttur, félags- og tryggingamálaráðherra, segir að í skoðun sé að færa allar endur- greiðslur vegna læknis-, lyfja- og sjúkrakostnaðar yfir til Sjúkra- trygginga Íslands (SÍ). „Það má vel sjá fyrir sér að betur fari á því að SÍ annist allar greiðslur vegna heilbrigðisþjón- ustu og þeir fjármunir til þess- ara þátta sem eru hjá TR flytjist þangað yfir,“ segir Eygló. Endurgreiðsla SÍ er ekki tekju- tengd heldur lýtur hún að fjórum gjaldflokkum eftir því hvort í hlut eiga börn, fullorðnir, örorku- eða ellilífeyrisþegar. Myndi það samkvæmt óbreyttum lögum leiða til þess fjármunirnir dreifð- ust á stærri hóp en hingað til. „Að mínu mati þyrfti þá að tryggja með einhverjum hætti að þeir sem standa illa fjárhagslega fengju sérstakan stuðning, líkt og er markmiðið að baki lögum um félagslega aðstoð,“ segir Eygló. Heildarendurskoðun almanna- trygginga stendur yfir og liggur ekki fyrir hvenær henni lýkur. Ráðherra boðar þó frumvarp um frekari breytingar á yfirstand- andi þingi. Töluverðar gjaldskrárhækk- anir á heilbrigðisþjónustu urðu um áramót, sem eru yfir hækkun bóta almannatrygginga og verð- bólgumarkmiðum. eva@frettabladid.is Bæta lífeyrisþegum ekki upp hækkanir Ráðherra segir engin áform um að mæta hækkandi heilbrigðiskostnað lífeyrisþega með því að hækka tekjuviðmið Tryggingastofnunar. Vegna þessa fá nú um 70 prósentum færri lífeyrisþegar fjárhagsaðstoð vegna heilbrigðiskostnaðar árið 2009. FÉLAGSLEGUR STUÐNINGUR Að mati ráðherra þarf að tryggja að þeir sem standa illa fjárhagslega fái sérstakan stuðning. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM „Örorkulífeyrisþegar geta ekki beðið eftir stjórnsýslu- legum og pólitískum endurskoðunum á heilu kerfi út í hið óendanlega þar sem þeir eru margir á barmi fátæktar,“ segir Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins, sem telur endurskoðun almannatryggingakerfisins undanfarin misseri engu hafa skilað. Hún efast um að tillögur ráðherra séu til bóta. „Ef fjár- munir sem TR hefur greitt í uppbætur vegna heilbrigðis- þjónustu yrðu færðir yfir til SÍ og dreifðust á stærri hóp skapast sú hætta að lífeyrisþegar fengju enn minni stuðning en er í dag.“ Ellen bendir á að lífeyrisþegar hafi iðulega meiri kostnað vegna heilsu- brests sem er tilkominn vegna sjúkdóma og skerðinga. Þá geti fólk utan vinnumarkaðar ekki leitað til sjúkrasjóða stéttarfélaga eftir styrkjum. Geta ekki beðið út í hið óendanlega Það má vel sjá fyrir sér að betur fari á því að SÍ annist allar greiðslur vegna heilbrigðisþjónustu Eygló Harðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra FRÁBÆR TILBOÐ! Kletthálsi 11 -110 Reykjavík Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is www.bilaland.is www.facebook.com/bilaland.is TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ Gerðu mögnuð kaup! Fjöldi bíla á staðnum! NISSAN Qashqai SE Nýskr. 06/13, ekinn 42 þús. km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 5.190.000 TILBOÐSVERÐ! 4.890 þús. LEXUS RX400h EXE Nýskr. 09/07, ekinn 120 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 4.490.000 TILBOÐ kr. 3.690 þús. NISSAN Micra Visia Nýskr. 05/12, ekinn 35 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.090.000 TILBOÐ kr. 1.890 þús. OPEL Antara Cosmo Nýskr. 06/09, ekinn 111 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.550.000 TILBOÐ kr. 2.990 þús. HYUNDAI I30 Wagon Comfort Nýskr. 06/11, ekinn 86 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.690.000 TILBOÐ kr. 2.290 þús. NISSAN Note Visia Nýskr. 05/13, ekinn 28 þús km. bensín, sjálfskiptur. Verð áður kr. 2.820.000 TILBOÐ kr. 2.580 þús. RENAULT Megane Sport Tourer Nýskr. 05/13, ekinn 33 þús km. dísil, sjálfskiptur. Verð áður kr. 3.370.000 TILBOÐ kr. 2.990 þús. Rnr. 130677 Rnr. 120341 Rnr. 281226 Rnr. 270346 Rnr. 191178 Rnr. 141824 Rnr. 141895 GÖNGUM FRÁ FJÁRMÖGNUN Á STAÐNUM WWW.BÍLALAND.IS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.