Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 46
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| LÍFIÐ | 30 „Súrdeigs-margarítan á Coocoo‘s Nest og allar pitsur á matseðli Eldofnsins í Grímsbæ. Pitsa er eini maturinn sem ég borða, fyrir utan samloku.“ Berglind Pétursdóttir GIF-drottning BESTI BITINN „Ég horfði á Óskarinn og ég verð að viðurkenna að ég átti frekar von á því að Gravity myndi vinna verð- laun fyrir tæknibrellur, leikstjórn og töku. Það getur auðvitað allt gerst og stundum eru óvænt úrslit en allur aðdragandi og allt tal í kring um myndina benti til þess að þetta færi svona. Ofboðslega gaman að sú varð raunin,“ segir Daði Einarsson, listrænn stjórn- andi hjá Reykjavik Visual Effects eða RVX. Hann stýrði hópi sem animer- aði, eða kvikaði, myndina Gravity frá upphafi til enda. Myndin var sigursæl á nýafstaðinni Óskars- verðlaunahátíð og hlaut alls sjö verðlaun, þar á meðal fyrir bestu leikstjórn, kvikmyndatöku, tækni- brellur og tónlist. „Það var haft samband við mig að utan og ég beðinn um að stýra fyrsta hluta vinnslunnar. Ég vann þá náið með leikstjóra myndarinn- ar, Alfonso Cuarón, við að vinna úr handritinu og stýrði hópi sem animeraði myndina frá upphafi til enda,“ útskýrir Daði. Gravity var nánast öll gerð í tölvugrafík til þess að ná þyngd- arleysinu í myndinni og svo voru andlit leikaranna skeytt inn í graf- íkina. „Það sem við animeruðum var notað til að stýra ljósum og töku- vélinni þegar leikararnir voru í tökum. Seinna meir komu fleiri Íslendingar að, bæði í London hjá Framestore og einnig hjá okkur á Framestore Reykjavík.“ Hefur þú ekki fengið talsverða athygli eftir sigurinn á Óskars- verðlaununum? „Það hafa margir haft samband í dag og það er gaman að því.“ Hann segist einnig vera í góðu sambandi við Gravity-hópinn. Daði og Baltasar Kormákur keyptu Framestore út árið 2012 og endurnefndu fyrirtækið RVX. Síðan þá hefur fyrirtækið séð um brellur í myndum á borð við 2 Guns, Málmhaus og í ýmsum aug- lýsingum. „Við erum í tökum á Everest um þessar mundir og munum sjá um brellurnar fyrir þá mynd en það verður ansi stórt verkefni. Við erum búnir að vera í tökum í Nepal og á Ítalíu og færum okkur síðan á stóra sviðið í Pinewood í Lond- on um næstu helgi,“ segir Daði um verkefnin í dag. Daði segir spennandi tíma fram- undan hjá fyrirtækinu. „Ástæða þess að ég ákvað að koma heim að utan var einmitt sú að byggja upp heimsklassaaðstöðu fyrir mynd- brellur og sá fyrir mér það sem er að verða til núna.“ gunnarleo@frettabladid.is Hleypti lífi í Óskars- myndina Gravity Daði Einarsson átti stóran þátt í tæknivinnslu kvikmyndarinnar Gravity sem var sigurvegari Óskarsverðlaunanna í ár. Þá sér hann um brellurnar í myndinni Everest. Við erum í tökum á Everest um þessar mundir og munum sjá um brellurnar fyrir þá mynd en það verður ansi stórt verkefni. Daði Einarsson NÓG AÐ GERA Daða var sérstaklega þakkað á Óskarnum fyrir vinnu sína í kvikmyndinni Gravity. Hann horfði hins vegar á hátíðina veikur heima. MYND/EINKASAFN SIGURVEGARAR Hér sjáum við sam- starfsmenn Daða taka við Óskarsverð- launum fyrir tæknibrellur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 2014 Everest 2013 Málmhaus 2013 Gravity 2013 2 Guns 2012 Boardwalk Empire 2012 - A Man, a Plan … 2012 Djúpið 2012 Contraband 2011 Tinker Tailor Soldier Spy 2011 Harry Potter and the Deathly Hallows: Part 2 2011 Tyrannosaur 2010 Salt 2010 Clash of the Titans 2009 Sherlock Holmes 2009 Where the Wild Things Are 2009 The Good Heart 2009 Heartless 2008 Australia 2007 The Golden Compass 2002 Harry Potter and the Chamber of Secrets 2002 Dinotopia ➜ Verkefni sem Daði hefur unnið að undanfarin ár „Þetta er eina fólkið í heiminum sem fær afslátt á tónleikana,“ segir Ísleifur B. Þórhallsson, tónleika- haldari Senu. Íbúum í grennd við Kórinn þar sem tónleikar Justins Timberlake fara fram þann 24. ágúst næstkomandi hefur borist bréf sem í segir að þeir fái 20 prósenta afslátt af miðum á tónleika Justins. „Afslátt- urinn er fyrir þá sem búa næst Kórnum og verða óhjákvæmilega fyrir truflun á tónleikadag,“ bætir Ísleif- ur við. Þeir sem fá afsláttinn geta notað hann í dag frá klukkan 10.00 til 17.00 og er hann fyrir allt að fjórum miðum í stæði, á hvert heimili. Afslátturinn var samþykkt- ur af fólki Justins. „Þetta er gert með samþykki erlendu aðilanna og þetta er eina fólkið sem fær afslátt. Það eru engir boðsmiðar eða þess háttar í umferð.“ Það fólk sem sér um samgöngu- og umferðarmálin í tengslum við tónleikana fór yfir kort og reiknaði þar út hvaða íbúar verða fyrir óhjá- kvæmilegri truflun á tónleikadag. Í gær seldust miðar í forsölu fyrir aðdáendaklúbb Justins upp á um tuttugu mínútum. Allar upplýsingar um miðasölu á tónleikana má finna á vefsíðunni midi.is. - glp Nágrannaafsláttur á Justin Íbúar í grennd við Kórinn, þar sem tónleikar Justins Timberlake fara fram í sumar, eru þeir einu í heiminum sem fá afslátt á tónleikana. ÓHJÁKVÆMILEG TRUFLUN Ísleifur B. Þórhallsson, tónleikahaldari Senu, segir íbúana þá einu sem fá afslátt á tónleikana. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Einn kokkteillinn á kokkteilalista Slippbarsins á Food and Fun um helgina bar heitið „Þóra and Hug- rún, where are you?“ Kokkurinn Geoffrey Canilao, sem er Banda- ríkjamaður búsettur í Danmörku, notaði þessa aðferð til að hafa upp á íslenskum fornvinkonum sínum með góðum árangri. „Vinkonur mínar sáu kokkteilinn og sögðu þjóninum að þær þekktu vinkonur sem hétu þetta. Þær fengu nafnið hjá kokkinum og Facebook-slóðina hans og lofuðu að skila því til mín,“ segir Þóra Þorsteinsdóttir, önnur stúlknanna sem Geoffrey leitaði að. „Þegar ég heyrði af þessu sendi ég honum strax skilaboð og bauð honum í bollukaffi daginn eftir,“ segir Þóra. „Ég og Hugrún vinkona mín kynntumst honum þegar við vorum á frönskunámskeiði í París árið 1998 og bjuggum með honum á hálfgerðu stúdentaheimili. Við vorum ekki nema tvítug og það er langt um liðið, en þetta var eftir- minnilegur tími. Það var æðislegt að hitta hann aftur. Hann er svolít- ið ævintýragjarn, sem sést á þessu litla leikriti sem hann setti upp til að hafa upp á okkur. Því miður er Hug- rún í Bandaríkjunum núna, en öll fjölskyldan mín tók á móti honum. Hann var alveg í skýjunum yfir því að þetta virkaði,“ segir Þóra. - ue „Þóra and Hugrún, where are you?“ Kokkteilakokkurinn Geoff rey Canilao leitaði að gömlum íslenskum vinkonum með því að auglýsa eft ir þeim í nafni kokkteils. Það bar góðan árangur. ENDURFUNDIR Þóra bauð Geoffrey í fjöl- skylduboð þar sem þessi mynd var tekin. MYND/ÚR EINKASAFNI Aðalvinningur KIA Picanto LX 1,0 beinskiptur að verðmæti 1.990.777 10195 40 Ferðavinningar frá Heimsferðum að verðmæti 200.000 4250 18347 42018 61939 86905 99159 116975 9816 24825 43595 62078 95312 99229 117879 11186 26497 49560 65805 96228 99379 118591 11345 29891 49778 69098 96681 100978 119070 13027 38943 50996 70138 98040 106220 14739 39260 54688 82497 98457 115730 10 Fartölvur frá Tölvulistanum að verðmæti 199.990 2121 16566 57580 96766 101636 3187 27283 83876 97029 112614 100 Ferðavinningar frá Heimsferðum að verðmæti 100.000 648 20616 42937 56183 77617 93669 110029 2526 20995 43645 61394 78010 93937 110817 8768 21108 46530 63689 78429 94271 111030 9542 22510 47253 65552 78586 94864 115085 10672 22628 48768 65652 78736 97508 117967 11368 23592 50851 67181 81074 98531 121241 11379 24490 51103 68959 82274 104463 121373 13320 24523 51418 69709 83769 105380 121944 14490 29311 51530 71134 83861 107053 122084 14719 30027 52230 71279 85978 107398 122103 15852 30731 52615 71922 86694 107972 16723 31180 54148 73774 87642 108115 17525 38314 55015 74765 88870 108359 18785 39190 55793 75407 90133 108949 19924 39476 56022 77556 92360 109847 45 Spjaldtölvur frá Tölvulistanum að verðmæti 89.990 4380 16639 45235 62416 72883 89352 121750 5854 20053 45864 62531 73034 91067 122398 6331 22901 46399 64612 76458 99927 122529 7011 29925 50713 65208 76649 103310 9849 33514 50857 65336 78209 108282 13414 39501 56337 68762 79366 112945 16501 40663 58027 71556 80144 117557 100 Gjafabréf frá Smáralind að verðmæti 50.000 2286 18639 38461 56045 80418 92240 104081 3586 18736 41530 57074 80756 92335 106244 3951 24952 42933 57485 81234 92921 106904 6632 25394 44775 59725 81788 94616 108144 7348 25706 49163 61656 83424 94701 116138 8755 25842 50108 63341 84378 94922 118142 8868 27861 50294 65013 84571 95570 119441 10452 28527 50628 65288 84690 95620 121471 11597 29298 51070 69421 85353 96140 122333 12113 31178 52386 69689 86500 96826 122775 13791 31471 52720 71132 86976 97646 15283 32142 53798 73844 87402 99908 17327 36461 54114 74420 89553 100240 17432 38124 55402 79641 91357 100712 17778 38394 55828 79649 91410 104041 Happdrætti Húsnæðisfélags S.E.M. Dregið var 24. febrúar 2014. Vinninga ber að vitja til SEM innan árs. Upplýsingasími 588-7470 og á heimasíðu SEM.is SEM samtökin þakka öllum þeim sem tóku þátt í happdrættinu innilega fyrir stuðninginn. Birt án ábyrgðar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.