Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 38
5. mars 2014 MIÐVIKUDAGUR| MENNING | 22
TÓNLIST ★★ ★★★
Uppskerukvöld Kítón
Vox feminae, Hljómeyki, Lay Low, Myrra
Rós, Sunna Gunnlaugs, Hafdís Huld,
Caput og margir fleiri
ELDBORG HÖRPU
SUNNUDAGINN 2. MARS
Konur áttu lengi erfitt uppdrátt-
ar í tónlistarheiminum. Kítón,
félag kvenna í tónlist, sem var
stofnað fyrir ári, er því gott
framtak. Kítón hélt svonefnt
uppskerukvöld í Eldborg Hörpu
á sunnudagskvöldið. Þar kom
fram fjöldinn allur af tónlistar-
fólki, aðallega kvenkyns, sem
flutti tónsmíðar að mestu eftir
konur.
Sautján atriði voru á dag-
skránni. Þau voru úr ýmsum
geirum tónlistar, a l lt frá
akadem ískri nútímatónlist, eldri
klassík, djassi, rappi, kántríi og
fleiru. Atriðin voru ákaflega
misjöfn að gæðum, eins og geng-
ur þegar dagskráin er bland í
poka. Sumt var mjög áhrifamik-
ið. Þar á meðal var lag eftir Lay
Low sem hún söng sjálf. Einnig
má nefna lag eftir Báru Gríms-
dóttur í meðförum Vox feminae,
sem og notalegt djasslag eftir
Sunnu Gunnlaugsdóttur í eigin
flutningi. Spuni eftir Ragnhildi
Gísladóttur var líka skemmti-
legur.
Það að ljóskösturum á sviðinu
skuli hafa verið beint í augun
á manni í fjölmörgum atriðum
var hins vegar ófyrirgefanlegt.
Margir í kringum mig þurftu
að halda fyrir augun á tímabili.
Hvað var ljósameistarinn að
hugsa? Sá hann ekki hve fólki
fannst þetta óþægilegt?
Á milli laganna voru sýnd
örstutt myndbrot. Þau saman-
stóðu af viðtölum við aðaltónlist-
arkonuna sem var að fara að stíga
á sviðið hverju sinni. Nánast allt-
af var spurt að því sama, og yfir-
leitt var það eina spurningin:
Ertu stressuð? Það var afar eins-
leitt, sérstaklega eftir því sem á
leið.
Þóra Arnórsdóttir var kynnir
á tónleikunum. Hún hefði mátt
vera betur undirbúin. Til dæmis
hefði hún getað upplýst áheyrend-
ur um að lagið við Vísur Vatns-
enda-Rósu er ekki bara radd-
sett af Jóni Ásgeirssyni, heldur
að stærstum hluta höfundarverk
hans. Sömuleiðis hefði mátt koma
fram hjá henni að Eldur eftir Jór-
unni Viðar er upphaflega ballett.
Eins og títt er um kvikmynda-
tónlist er verk Jórunnar hluti af
myndrænni upplifun, en stendur
ekki fyllilega fyrir sínu sem sjálf-
stæð tónsmíð, þó hún sé glæsileg í
réttu samhengi. Þetta þurftu tón-
leikagestir að vita, tel ég.
Hallfríður Ólafsdóttir stjórn-
aði félögum úr Sinfóníunni í Eldi
Jórunnar. Þóra kynnti atriðið
þannig að ætla mátti að það væri
í fyrsta sinn sem kona stjórn-
aði hljómsveitinni. Svo er ekki,
konur hafa stjórnað Sinfóníunni
áður. Nægir að nefna Ann Manson
sem stjórnaði henni með glæsi-
brag fyrir allnokkru síðan. Stað-
reyndin var að þetta var í fyrsta
sinn sem ÍSLENSK kona stjórnaði
hljómsveitinni. Það út af fyrir sig
var auðvitað stórviðburður, sér-
staklega þar sem Hallfríður gerði
það af öryggi, nákvæmni og sann-
færandi tilfinningu.
Margt fleira má telja upp
sem ekki er pláss fyrir hér. Ég
verð þó að nefna tónleikalengd-
ina, sem var tæpir þrír tímar.
Það var býsna langt. Minna tal
Þóru og meiri tónlist með þægi-
legri birtu hefði gert tónleikana
skemmtilegri.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Verðugt framtak,
en dagskráin var illa ígrunduð og
sviðsljósin voru oft mjög truflandi.
Kynnirinn hefði líka mátt vera betur
undirbúinn.
Villuljós í Hörpu
UPSKERUHÁTÍÐ KÍTÓN „Sumt var mjög áhrifamikið. Þar á meðal var lag eftir Lay
Low sem hún söng sjálf.“ FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FRÆGA FÓLKIÐ
FÓTÓBOMBAR
Eft irlæti stjarnanna er að troða sér inn á myndir
annarra stjarna á rauða dreglinum.
TVENNUTILBOÐ
ÓSKARSVERÐLAUNAHAFINN JARED LETO
NÁÐI AÐ SPRELLA Í BÆÐI LEIKKONUNNI
ANNE HATHAWAY OG FYRIRSÆTUNNI
IRELAND BALDWIN, LEIKARANUM KEVIN
SPACEY OG SJÓNVARPSKONUNNI NANCY
O‘DELL Á RAUÐA DREGLINUM Á ÓSKARS-
VERÐLAUNAHÁTÍÐINNI UM HELGINA.
Á MILLI TVEGGJA FLJÓÐA
MICHAEL DOUGLAS FÓTÓBOMBAÐI EIGINKONU
SÍNA, CATHERINE ZETU-JONES, OG LEIKKONUNA
ANGELINU JOLIE Á SÍÐUSTU TEEN CHOICE-VERÐ-
LAUNAHÁTÍÐ.
HOPP OG HÍ
MODERN FAMILY-STJARNAN JESSE TYLER
FERGUSON HOPPAÐI INN Á MYND SEM TEKIN
VAR AF MIRÖNDU KERR OG ORLANDO BLOOM Í
ÓSKARSPARTÍI Í FYRRA.
TEKUR ÞÁTT
Í TRENDINU
LEIKKONAN EMMA
THOMPSON BRÁ
Á LEIK FYRIR AFTAN
LUPITU NYONG´O Á
SCREEN ACTORS GUILD-
VERÐLAUNAHÁTÍÐINNI.
ÓKRÝNDUR
SIGURVEGARI
LEIKARINN BENEDICT CUMBER-
BATCH FÓTÓBOMBAÐI HLJÓMSVEIT-
INA U2 Á ÓSKARNUM UM HELGINA.
LÍFIÐ
AÐGANGUR ÓKEYPIS
¡ZARZUELA!
ARÍUR ÚR
SPÆNSKUM ÓPERETTUM
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
FIMMTUDAGINN
6. MARS KL.12:15
GUÐRÚN JÓHANNA
ÓLAFSDÓTTIR
MEZZOSÓPRAN
JULIO ALEXIS MUÑOS
PÍANÓ
– Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
6
79
77
0
2/
14
www.lyfja.is
Fyrir
þig
í Lyfju
Læg a
verð í
LyfjuNicorette
Fruitmint
Allar pakkningar og styrkleikar.
15%
afsláttur
Gildir út mars.