Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 22
| 6 5. mars 2014 | miðvikudagur
Fjármálafyrirtækið GAMMA,
eða GAM Management hf. hefur
vakið mikla athygli fyrir umsvif
sín á fasteignamarkaði á höfuð-
borgarsvæðinu síðustu misseri.
Gísli Hauksson, forstjóri félags-
ins, segir hugmyndina vera að
reka klassískt leigufélag að
skandinavískri fyrirmynd, þar
sem fólk geti leigt til langs tíma.
„Við höfum unnið töluverða
ráðgjafarvinnu um fasteigna-
markaðinn. Sérstaklega unnum
við stóra skýrslu haustið 2011
sem var eiginlega upphafið að því
að við ákváðum að fara út í að
fjárfesta í íbúðarhúsnæði,“ segir
Gísli í samtali við Markaðinn.
HÓFST MEÐ SKÝRSLUGERÐ
„Við fórum nákvæmlega yfir
markaðinn, töldum íbúðir og
skoðuðum lýðfræði og mann-
fjöldaþróun Íslendinga og nið-
urstaðan var einfaldlega sú að
það var lítið sem ekkert af laus-
um íbúðum á höfuðborgarsvæð-
inu þrátt fyrir að fyrirsjáanlegt
væri að fram undan væri mjög
mikil vöntun á slíku húsnæði,“
segir Gísli.
Hann segir risastórar kynslóð-
ir væntanlegar inn á fasteigna-
markaðinn sem og mikla fjölgun
ferðamanna sem koma til lands-
ins, sem geri það að verkum að
hér verði mikil eftirspurn eftir
íbúðum. Gísli segir einnig aug-
ljóst að til séu einstaklingar sem
kjósa það að vera á leigumarkaði
í lengri tíma frekar en að eiga sitt
eigið húsnæði.
Þeir hjá GAMMA hyggjast
breyta þessari stöðu á næstu
árum.
NÁTTÚRULEG EFTIRSPURN
GAMMA rekur sjóðina Centr-
um, Eclipse og Novus sem eiga
Leigufélag Íslands. Það er um-
sýslufélag, en Gísli segir fjár-
festa þess vera langtímafjárfesta
sem líti á fasteignir eins og lang-
tíma skuldabréf. Leigufélagið á
núna um 350 íbúðir á höfuðborg-
arsvæðinu.
„Þetta eru langmest tveggja til
þriggja herbergja íbúðir, eftir-
spurnin er langmest eftir þeim
og það eru biðlistar eftir slíkum
íbúðum enda hefur mjög lítið
verið byggt af þeim á síðustu ára-
tugum. Það eru síðan 90 prósent
af þessum íbúðum í langtíma-
leigu, það er að segja í tólf mán-
uði eða lengur en 30-40 íbúðir í
skammtímaleigu í miðbænum,“
segir Gísli en skammtímaleigu-
íbúðir GAMMA eru leigðar ferða-
mönnum.
„Leigjendur hafa bara ekkert
val í dag, fólk getur í mesta lagi
leigt kannski í eitt ár þannig að
þetta er ekkert raunverulegur
valkostur fyrir fólk sem vill eða
þarf að leigja,“ segir Gísli.
Gísli segir þessa miklu eftir-
spurn vera náttúrulega, þar sem
yngsti kaupendahópurinn fari
stækkandi og eftir hrun hafi upp-
byggingin stöðvast í sex ár.
„Í rauninni var sama sem ekk-
ert byggt frá miðju ári 2007
þangað til í lok árs 2012, þetta
er lengsta stopp í byggingum á
íbúðarhúsnæði á Íslandi síðustu
áratugi. Þetta kemur á sama tíma
og það er alveg gífurlega mikið
af ungu fólki að koma á markað-
inn,“ segir Gísli.
Þá hafi byggingarkostnað-
ur verið meiri en markaðsverð
lengst af. Búið sé að flytja tæki
og tól úr landi, sem og að fjár-
festar hafi haldið að sér hönd-
um. Einnig hafi lítið framboð af
hótelherbergjum og hröð aukn-
ing ferðamanna tekið íbúðir af
markaði miðsvæðis.
„Þessar aðstæður eru að bitna
á ungu fólki. Eftirspurn eftir
leiguíbúðum hefur aukist en ekki
verið aðstæður til að bregðast
við. Þetta er einn af þeim valkost-
um sem Leigufélagið býður upp
á, til að auka fjölbreytileikann,
sem kallað hefur verið eftir hér
á landi árum saman,“ segir Gísli.
Hann segir GAMMA gera ráð
fyrir að það taki byggingageir-
ann þrjú til fjögur ár að ná að
framleiða aftur þann fjölda af
íbúðum sem vantar til að mæta
eftirspurn.
„Það eru um það bil 5.000 íbúð-
ir sem mun vanta, það er mjög
mikill skortur á íbúðum sem við
ætlum að reyna að mæta með
því að byggja um 850 íbúðir og
flestar af þeim fara svo í útleigu,“
segir Gísli.
EKKI SKILNINGUR Á
HAGKVÆMNI
Gísli segir að ekki sé skilning-
ur á mikilvægi þess að byggja
hagkvæmar stórar einingar með
litlum ódýrum íbúðum en allt-
of fáum lóðum sé úthlutað fyrir
slíkt húsnæði. Hann hefur mjög
sterkar skoðanir á því hvernig
hægt væri að lækka byggingar-
kostnað og þar af leiðandi lækka
leigu- og íbúðaverð.
„Ég er mjög ánægður til dæmis
með nýja aðalskipulagið sem
gerir ráð fyrir að þétta byggð og
byggja hagkvæmar einingar og
fækka bílastæðum. Það verður að
vera valkostur fyrir þá sem kjósa
að búa í miðbænum og ekki með
bíl til dæmis,“ segir Gísli sem
segir kröfuna um eitt bílastæði
á íbúð kosta íbúðareigandann að
minnsta kosti fjórar milljónir.
„Fólk kannski keyrir um á sjö
eða átta ára gömlum Volks wagen
sem er þá helmingi ódýrari en
stæðið sem það á undir bílinn.
Þetta náttúrulega gengur bara
ekki upp,“ segir Gísli.
Hann segir að það þurfi að leið-
rétta byggingareglugerðir og ein-
falda þær þannig að ódýrara sé að
byggja húsnæði. „Reglugerðirn-
ar eru allt of stífar,“ segir Gísli.
Lög og ferlar í kringum ný-
byggingar geri það að verkum að
tæp tvö ár taki að koma upp bygg-
ingu frá því ákvörðun er tekin.
Hann vill að stimpilgjald á leigu-
félag vegna kaupa á íbúðarhús-
næði verði lækkað.
Vilja mæta þörfinni fyrir minni
íbúðir á höfuðborgarsvæðinu
Sjóðir á vegum GAMMA fjármálafyrirtækis hafa búið til Leigufélag Íslands sem á nú um 350 íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu en ætlar sér að fjölga þeim um 850 íbúðir á næstu þremur árum. Forstjóri félagsins segir þörfina
fyrir slíkar íbúðir vera gríðarlega og kallað hafi verið eftir leigufélagi af þessu tagi hér á landi um árabil.
GAMMA eða GAM Management hf. er rekstrarfélag verðbréfasjóða.
Félagið var stofnað 1. júní 2008 af Gísla Haukssyni og Agnari Tómasi
Möller en þeir eiga samtals 62% í félaginu.
Hjá félaginu starfa í heildina um 20 starfsmenn, með mismunandi
reynslu af störfum á fjármálamarkaði og menntun til að mynda í hag-
fræði, verkfræði, fjármálaverkfærði og stærðfræði.
Meðal viðskiptavina félagsins, sem er með um 45 milljarða í eignastýr-
ingu, eru öll tryggingafélög landsins, 13 lífeyrissjóðir, bankar, fyrirtæki og
yfir 500 einstaklingar. Eigið fé félagsins er um 600 milljónir króna.
HVAÐ ER GAMMA?
LEIGUFÉLAG Gísli Hauksson, forstjóri GAMMA, segir mesta eftirspurn eftir tveggja til þriggja herbergja íbúðum á höfuðborgarsvæðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VIÐTAL
Fanney Birna Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is