Fréttablaðið - 05.03.2014, Blaðsíða 32
Netfang auglýsingadeildar
auglys ing ar@markadurinn.is
Veffang visir.is
Netfang
rit stjorn@markadurinn.is
Sími 512 5000 Fax 512 5301
Hin
LÁRA JÓHANNSDÓTTIR
NÝDOKTOR VIÐ VIÐSKIPTA-
FRÆÐIDEILD HÍ
hliðin
Nýlega kom út á vegum KPMG, Global
Reporting Initiative (GRI), Umhverf-
isáætlunar Sameinuðu þjóðanna
(UNEP) og Miðstöðvar um stjórnunar-
hætti í Afríku skýrslan Carrots and
sticks. Skýrslan tók til stöðu mála í 45
þjóðlöndum og fjallaði um samfélags-
ábyrgð út frá þeim forsendum að
fyrirtæki axli sjálfviljug ábyrgð á áhrifum
sínum á samfélag og umhverfi, eða að
þau séu þvinguð til aðgerða.
Samtakamáttur
Fram kemur að sjálfbærnivandamál,
það er efnahagsleg, umhverfisleg og
samfélagsleg vandamál, krefjist sam-
takamáttar og að sjálfbærniskýrslur
stuðli að árangri þar sem fyrirtæki setji
markmið, mæli árangur og stjórni breyt-
ingum. Skýrslurnar þjóni þeim tilgangi
að miðla upplýsingum, jákvæðum og
neikvæðum, sem nýtast til umbóta og
til að upplýsa þá sem verða fyrir áhrif-
um af rekstrinum. Sjálfbærniskýrslur
stuðla að samfélögum sem sameina
langtíma arðsemi, félagslegt réttlæti og
umhverfisvernd. Fram kemur að stefna
stjórnvalda, reglugerðir og aðgerðir
einkageirans flýti útgáfu sjálfbærni-
skýrslna. Í þeim 45 löndum sem um
ræðir eru 180 reglur í gildi, þar af gera
72 prósent lagalegar kröfur til fyrirtækja
um útgáfu sjálfbærniskýrslna, en í 28%
tilvika er upplýsingaskyldan valkvæð.
Megináhersla hefur verið á skýrslugjöf
opinberra fyrirtækja og stærri fyrirtækja,
en vaxandi fjöldi lítilla og meðalstórra
fyrirtækja gefur út sjálfbærniskýrslur af
fúsum og frjálsum vilja.
Staða mála
Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu
mála hérlendis um skýrslugerð
fyrirtækja, en stjórnvöld gera lagalegar
kröfur til fyrirtækja á grundvelli laga nr.
7/1998 um hollustuhætti og meng-
unarvarnir, nánar útfært í reglugerð
nr. 851/2002 um grænt bókhald.
Atvinnustarfsemi sem háð er starfs-
leyfi, sem sagt orkuiðnaði, jarðefna- og
efnaiðnaði og úrgangsstarfsemi, ber
að færa grænt bókhald. Þá er vísað til
skýrslu Alþingis um grænt hagkerfi. Þar
segir að allar stofnanir ráðuneyta og
öll ríkisfyrirtæki eigi að birta ársskýrslur
til samræmis við GRI-leiðbeiningar, en
samkvæmt græna hagkerfinu ættu 80
prósent ráðuneyta, stofnana og ríkis-
fyrirtækja að skila GRI-skýrslum fyrir
árið 2014.
Eftirbátar
Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um
efndir hjá hinu opinbera, en eftir því
sem næst verður komist þá er ÁTVR eina
fyrirtækið sem gefið hefur út skýrslu
miðað við GRI-leiðbeiningar. Þess utan
útbjó Landsbankinn GRI-skýrslu fyrir árið
2012. Miðað við þróun mála í nágranna-
löndunum þá eru íslensk fyrirtæki, jafnt
opinber fyrirtæki og einkafyrirtæki,
eftirbátar á þessu sviði. Er ekki kominn
tími til að stjórnvöld og atvinnulífið
opni augun fyrir þessari þróun, því að
aðgerðarleysi á þessu sviði getur skaðað
samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja til
lengri tíma litið?
Gulrætur eða keyri
við innleiðingu á
samfélagsábyrgð
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
USD 112,79
GBP 188,14
DKK 20,785
EUR 155,11
NOK 18,72
SEK 17,482
CHF 127,51
JPY 1,11
Gengi gjaldmiðla
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3