Fréttablaðið - 05.03.2014, Page 32

Fréttablaðið - 05.03.2014, Page 32
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is Netfang rit stjorn@markadurinn.is Sími 512 5000 Fax 512 5301 Hin LÁRA JÓHANNSDÓTTIR NÝDOKTOR VIÐ VIÐSKIPTA- FRÆÐIDEILD HÍ hliðin Nýlega kom út á vegum KPMG, Global Reporting Initiative (GRI), Umhverf- isáætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNEP) og Miðstöðvar um stjórnunar- hætti í Afríku skýrslan Carrots and sticks. Skýrslan tók til stöðu mála í 45 þjóðlöndum og fjallaði um samfélags- ábyrgð út frá þeim forsendum að fyrirtæki axli sjálfviljug ábyrgð á áhrifum sínum á samfélag og umhverfi, eða að þau séu þvinguð til aðgerða. Samtakamáttur Fram kemur að sjálfbærnivandamál, það er efnahagsleg, umhverfisleg og samfélagsleg vandamál, krefjist sam- takamáttar og að sjálfbærniskýrslur stuðli að árangri þar sem fyrirtæki setji markmið, mæli árangur og stjórni breyt- ingum. Skýrslurnar þjóni þeim tilgangi að miðla upplýsingum, jákvæðum og neikvæðum, sem nýtast til umbóta og til að upplýsa þá sem verða fyrir áhrif- um af rekstrinum. Sjálfbærniskýrslur stuðla að samfélögum sem sameina langtíma arðsemi, félagslegt réttlæti og umhverfisvernd. Fram kemur að stefna stjórnvalda, reglugerðir og aðgerðir einkageirans flýti útgáfu sjálfbærni- skýrslna. Í þeim 45 löndum sem um ræðir eru 180 reglur í gildi, þar af gera 72 prósent lagalegar kröfur til fyrirtækja um útgáfu sjálfbærniskýrslna, en í 28% tilvika er upplýsingaskyldan valkvæð. Megináhersla hefur verið á skýrslugjöf opinberra fyrirtækja og stærri fyrirtækja, en vaxandi fjöldi lítilla og meðalstórra fyrirtækja gefur út sjálfbærniskýrslur af fúsum og frjálsum vilja. Staða mála Í skýrslunni er gerð grein fyrir stöðu mála hérlendis um skýrslugerð fyrirtækja, en stjórnvöld gera lagalegar kröfur til fyrirtækja á grundvelli laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng- unarvarnir, nánar útfært í reglugerð nr. 851/2002 um grænt bókhald. Atvinnustarfsemi sem háð er starfs- leyfi, sem sagt orkuiðnaði, jarðefna- og efnaiðnaði og úrgangsstarfsemi, ber að færa grænt bókhald. Þá er vísað til skýrslu Alþingis um grænt hagkerfi. Þar segir að allar stofnanir ráðuneyta og öll ríkisfyrirtæki eigi að birta ársskýrslur til samræmis við GRI-leiðbeiningar, en samkvæmt græna hagkerfinu ættu 80 prósent ráðuneyta, stofnana og ríkis- fyrirtækja að skila GRI-skýrslum fyrir árið 2014. Eftirbátar Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um efndir hjá hinu opinbera, en eftir því sem næst verður komist þá er ÁTVR eina fyrirtækið sem gefið hefur út skýrslu miðað við GRI-leiðbeiningar. Þess utan útbjó Landsbankinn GRI-skýrslu fyrir árið 2012. Miðað við þróun mála í nágranna- löndunum þá eru íslensk fyrirtæki, jafnt opinber fyrirtæki og einkafyrirtæki, eftirbátar á þessu sviði. Er ekki kominn tími til að stjórnvöld og atvinnulífið opni augun fyrir þessari þróun, því að aðgerðarleysi á þessu sviði getur skaðað samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja til lengri tíma litið? Gulrætur eða keyri við innleiðingu á samfélagsábyrgð Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is USD 112,79 GBP 188,14 DKK 20,785 EUR 155,11 NOK 18,72 SEK 17,482 CHF 127,51 JPY 1,11 Gengi gjaldmiðla GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.