Fréttablaðið - 05.03.2014, Side 18
| 2 5. mars 2014 | miðvikudagur
Fasteignafélagið Reitir fer ekki í
Kauphöllina í vor eins og til stóð
og skráning þess frestast fram á
haust. Ástæðan er að félagið hefur
ekki enn gengið frá sátt við Seðla-
banka Íslands vegna viðauka í
samningum Reita við þýskan lán-
veitanda sem Seðlabankinn telur
ganga gegn gjaldeyrislögum.
„Staðan er einfaldlega sú að það
hafa engar dagsetningar verið
ákveðnar og úr þessu er það mitt
mat að við förum ekki á markað
fyrr en eftir sumarið,“ segir Guð-
jón Auðunsson, forstjóri Reita.
Félagið skuldar Hypotheken-
bank Frankfurt AG um fimm-
tán milljarða króna. Seðlabank-
inn gerði í desember 2012 at-
hugasemdir við nokkra viðauka
í þremur lánasamningum Reita
við þýska bankann frá árinu 2009.
Samningarnir voru hluti af endur-
skipulagningu félagsins en viðauk-
arnir fóru í gegn án þess að leitað
væri eftir undanþágum Seðlabank-
ans fyrir breytingunum.
„Viðaukarnir voru partur af
endurskipulagningu okkar því
erlendi bankinn féllst ekki á að
koma inn í eigendahópinn eins
og hinir lánveitendurnir sem yfir-
tóku Landic Property. Þýski bank-
inn féllst einungis á að vera lán-
veitandi og þá voru gerðir við-
aukar við lánasamninga sem
gerðir voru fyrir 2009. Seðlabank-
inn hefur haldið því fram að við-
aukarnir gangi gegn gjaldeyris-
höftum og hefur neitað okkur um
að greiða afborganir af þessum
lánum í erlendri mynt síðan málið
var tekið til skoðunar. Við erum að
standa í skilum með lánið með því
að leggja inn á veðsetta reikninga
á Íslandi,“ segir Guðjón.
Reitir og þýski bankinn gerðu
breytingar á lánasamningunum
sem eiga að sögn Guðjóns að full-
nægja skilyrðum Seðlabankans.
Skjöl þar að lútandi eru nú til yfir-
ferðar hjá Seðlabankanum.
„Málið hefur aldrei farið fyrir
dómstóla og að við erum að reyna
að ná sátt áður en svo fer. Við
höfum verið á þeirri vegferð að
fá þennan erlenda lánveitanda til
að fallast á sjónarmið Seðlabank-
ans til að tefja ekki vegferð okkar
til skráningar. Ég á ekki von á
öðru en að við heyrum fljótlega
frá Seðlabankanum og þá förum
við að nálgast ákveðinn endastað.“
Reitir eru stærsta fasteigna-
félag landsins. Það er í eigu
Arion banka (43%), Landsbank-
ans (29,6%), Þrotabús Icelandic
Property (16%) og Íslandsbanka
(5,8%). Á síðasta ári stóð til að
endurfjármagna félagið með að-
komu nokkurra lífeyrissjóða.
„Það hefur ekki gengið í gegn
ennþá en það hefur verið skrifað
undir sölu til lífeyrissjóðanna og
fjármögnun á skuldum félagsins
og um það er samkomulag en með
þeim fyrirvara að þessi Seðla-
bankamál leysist,“ segir Guðjón.
Skráningu Reita
frestað fram á haust
Stærsta fasteignafélag landsins fer ekki á markað í vor. Reitir hafa
ekki enn gengið frá sátt við Seðlabanka Íslands vegna meintra
brota á gjaldeyrislögum og það tefur endurfjármögnun félagsins.
VIÐSKIPTI
Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is
FORSTJÓRINN Stefnt hefur verið að skráningu Reita á markað frá stofnun félagsins í lok
árs 2009. MYND/REITIR
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
Dagatal viðskiptalífsins
dagatal viðskiptalífsinsl i i lí i
Miðvikudagur 5. mars
➜ Fasteignamarkaðurinn í mánuðum
eftir landshlutum
➜ Vöruskipti við útlönd í febrúar 2014
Fimmtudagur 6. mars
➜ Gistinætur á hótelum í janúar 2014
Föstudagur 7. mars
➜ Helstu liðir í efnahagsreikningi SÍ
og gjaldeyrisforði
➜ Landsframleiðslan 2013
➜ Vísitala launa á 4. ársfjórðungi 2013
Þriðjudagur 11. mars
➜ Fjöldi þinglýstra leigusamninga um
íbúðarhúsnæði eftir landshlutum
➜ Fjármál hins opinbera á 4.
ársfjórðungi 2013
➜ Efnahagslegar skammtímatölur í
mars 2014
➜ Aðalfundur Icelandair Group
Fimmtudagur 13. mars
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir
➜ Aðalfundur Vátryggingafélags
Íslands
Föstudagur 14. mars
➜ Aðalfundur Nýherja
➜ Atvinnuleysistölur fyrir febrúar
➜ Fiskafli í febrúar 2014
➜ Aðalfundur Össurar
Þriðjudagur 18. mars
➜ Vísitala íbúðaverðs á
höfuðborgarsvæðinu
➜ Verðmæti sjávarafla árið 2013
➜ Velta samkvæmt
virðisaukaskattsskýrslum 2013
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur kallað eftir samráði
við hagsmunaaðila vegna fyrirhugaðrar ákvörðunar stofn-
unarinnar um að heimila Vodafone og Nova samnýtingu á
tíðnum sem félögunum hefur verið úthlutað.
Félögin tvö stefna að stofnun nýs rekstrarfélags sem
verður í jafnri eigu þeirra. Nýja félagið á að sjá um upp-
byggingu, eignarhald og þróun dreifikerfis fyrir alla
almenna farsímaþjónustu Vodafone og Nova og sameina
núverandi kerfi félaganna í eitt alhliða farsímadreifikerfi.
Frá þessu er greint í frétt á vef PFS þar sem segir að
stofnunin ætli að veita samþykki sitt fyrir fyrirhugaðri
samnýtingu. Það verði hins vegar ekki gert fyrr en áhuga-
samir hagsmunaaðilar hafi skilað inn umsögnum. Stofn-
unin tekur fram að samráðið taki eingöngu til samnýtingar
tíðna en ekki samkeppnislegra áhrifa sem af samstarfinu
kunni að stafa. Því eigi hagsmunaaðilar sem vilji tjá sig
um slík áhrif samstarfsins að beina þeim til Samkeppnis-
eftirlitsins. - hg
Póst- og fjarskiptastofnun hyggst heimila sameiningu dreifikerfa Vodafone og Nova:
PFS kallar eftir samráði
PFS Stofnunin mun birta opinberlega allar umsagnir
og athugasemdir sem berast. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Nánar á sölusíðunni
www.mycountry.is og
facebook.com/mciceland
Viltu ná betri tengslum við
erlenda gesti og viðskiptavini?
Kynntu Ísland fyrir þeim með 52 fróðleiksmolum.
Skemmtileg og handhæg gjöf.
Ljósm
ynd á fram
hlið “Að fjallabaki”
eftir Ragnar Axelsson, RAX.
Gengi félaga í Kauphöll Íslands
MESTA HÆKKUN
FJARSKIPTI
11,2% frá áramótum
FJARSKIPTI
7,1% í síðustu viku
MESTA LÆKKUN
MAREL
-15,2% frá áramótum
NÝHERJI
-7,6% í síðustu viku
Á UPPLEIÐ
Félög sem hækkuðu
í verði
7
Á NIÐURLEIÐ
Félög sem lækkuðu
í verði
4
STÓÐU Í STAÐ
Félög sem stóðu
í stað
2
Aðallisti Kauphallarinnar | Nasdaq OMX Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Atlantic Airways (DKK) 144,00 -5,9% 0,0%
Bank Nordic (DKK) 119,00 -8,5% 0,0%
Eimskipafélag Íslands 231,00 -11,8% -4,9%
Fjarskipti (Vodafone) 30,30 11,2% 7,1%
Hagar 41,20 7,3% 1,4%
Icelandair Group 18,90 3,8% 4,1%
Marel 112,85 -15,2% 0,8%
N1 18,15 -4,0% -2,2%
Nýherji 3,39 -7,1% -7,6%
Reginn 16,50 6,1% 2,8%
Tryggingamiðstöðin 30,40 -5,1% 3,2%
Vátryggingafélag Íslands 10,51 -2,6% 1,3%
Össur 254,00 10,9% -0,4%
Úrvalsvísitalan OMXI6 1.210,36 -3,9% 1,4%
First North Iceland
Félag Gengi í gær Frá áramótum Vikubreyting
Century Aluminum 1150,00 0,0% 0,0%
Hampiðjan 15,00 13,2% 0,0%
HB Grandi 30,00 36,4% 25,0%
Sláturfélag Suðurlands 1,22 0,0% 0,0%
Landsbankinn hagnaðist um 28,8 milljarða króna eftir
skatta á árinu 2013 samanborið við 25,5 milljarða króna
á árinu 2012. Það er aukning um þrettán prósent milli ára.
Þetta kom fram í tilkynningu um ársuppgjör bankans.
Þar segir að aukningin skýrist einkum af hærri þjónustu-
tekjum, virðisbreytingum lána og hlutabréfa auk lækk-
unar á kostnaði.
Eigið fé bankans nam í lok árs 2013 um 241,4 milljörðum
króna. Það hefur aukist um sjö prósent frá áramótum 2012
þrátt fyrir tíu milljarða króna arðgreiðslu á árinu. Heildar-
eignir bankans námu 1.152 milljörðum í lok árs 2013.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir í til-
kynningunni að afkoma bankans sé góð og að hún sýni
traustan rekstur á öllum sviðum. Hann segir íþyngjandi
skatta hafa verið lagða á fjármálafyrirtæki og að skatt-
greiðslur bankans nemi nú 12,3 milljörðum á ári.
„Augljóst er að svo þungir skattar kunna að hafa áhrif
á kjör til viðskiptavina til lengri tíma,“ segir Steinþór.
- hg
Bankastjóri Landsbankans segir íþyngjandi skatta geta haft áhrif á kjör viðskiptavina:
Hagnaður upp á 28,8 milljarða
GOTT UPPGJÖR Steinþór Pálsson segir mikinn árangur
hafa náðst við hagræðingu í rekstri Landsbankans.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Save the Children á Íslandi