Fréttablaðið - 05.03.2014, Síða 30
| 10 5. mars 2014 | miðvikudagur
Grundvallarbreytingar hafa verið
gerðar á ramma og framkvæmd
peningastefnunnar …
Nú í febrúar eru liðin fimm ár
frá því að núverandi skipan pen-
ingamála var komið á þar sem
sérstakri fjölskipaðri peninga-
stefnunefnd er falið að móta pen-
ingastefnuna og ákvarða beit-
ingu stjórntækja Seðlabank-
ans til að ná því markmiði sem
stjórnvöld hafa sett bankanum,
þ.e. að halda árlegri verðbólgu
að jafnaði í námunda við 2,5%.
Sambærilegt fyrirkomulag
með peningastefnunefnd þekk-
ist á meðal flestra seðlabanka
í heiminum. Í nokkrum þeirra
eru utanaðkomandi sérfræðing-
ar einnig í nefndinni eins og hér
á landi.
Með tilkomu nefndarinnar
voru einnig gerðar ýmsar end-
urbætur á ákvörðunartöku í pen-
ingamálum. Haldnir eru ítar-
legir 1-2 daga fundir með fast-
mótaðri dagskrá fyrir hverja
vaxtaákvörðun þar sem fjöldi
sérfræðinga innan bankans
kynnir efni sem getur hjálpað
nefndinni að komast að niður-
stöðu. Einnig þekkist að leitað
sé til sérfræðinga utan bankans
um ákveðin viðfangsefni. Með
þessu er leitast við að ákvarðan-
ir séu byggðar á sem traustustum
grunni og að öll sjónarmið kom-
ist að. Til að auka gagnsæi stefn-
unnar sem mest er jafnframt
birt ítarleg fundargerð af fund-
um nefndarinnar og henni gert að
greina Alþingi frá störfum sínum
með reglubundnum hætti í ræðu
og riti. Þá eru veittar upplýsing-
ar um atkvæðagreiðslu nefndar-
manna í ársskýrslu bankans. Um-
bætur hafa einnig verið gerðar á
framkvæmd peningastefnunnar
sem felast í því að nú er horft til
fleiri tækja en vaxtatækisins við
mótun stefnunnar. Er það í takt
við þá lærdóma sem dregnir hafa
verið af reynslu fyrri ára og ítar-
lega hefur verið fjallað um í ritum
Seðlabankans.
… sem hafa skilað
töluverðum árangri
Á þeim fimm árum sem hafa liðið
frá því að ný peningastefnunefnd
tók við stjórn peningamála hefur
verulegur árangur náðst í efna-
hagsmálum (sjá meðfylgjandi
myndir). Þegar nefndin hóf störf
fyrir fimm árum var verðbólga
17,6% en nú mælist hún 2,1%.
Nefndin hafði reyndar náð verð-
bólgu í markmið í lok árs 2010
og fram á vormánuði 2011 en í
kjölfar ríflegra launahækkana í
kjarasamningum vorið 2011 jókst
verðbólga á ný og náði hámarki í
6,5% snemma árs 2012. Nefndin
brást við þessum aðstæðum með
því að herða taumhald peninga-
stefnunnar sem stuðlaði að hjöðn-
un verðbólgu í markmið á ný.
Þéttara taumhald peningastefn-
unnar hefur ekki sett efnahags-
batann sem hófst snemma árs
2010 í uppnám, eins og sumir
óttuðust. Þannig hefur skráð
atvinnuleysi minnkað úr 8,2%
þegar nefndin tók til starfa í
4,5% nú í janúar og mælist nú
með því minnsta á meðal þróaðra
ríkja. Að sama skapi eru horfur á
að hagvöxtur í fyrra hafi a.m.k.
verið 3% og að Ísland verði eina
landið í hópi þróuðustu ríkja
heims þar sem hagvöxtur nær
3% eða meira.
Það sem gerir þennan árang-
ur enn markverðari er að hann
hefur náðst þrátt fyrir mjög
erfið skilyrði. Hann kemur í
kjölfar alvarlegrar banka- og
gjaldeyriskreppu, en slíkar
kreppur eru jafnan mun dýpri
og vara lengur en hefðbundn-
ar fjármálakreppur. Samdrátt-
ur hefur einnig verið undanfar-
in tvö ár á evrusvæðinu sem er
okkar helsta viðskiptasvæði,
framlag hins opinbera til hag-
vaxtar var lengi vel neikvætt
vegna nauðsynlegra aðhaldsað-
gerða í opinberum fjármálum og
viðskiptakjör þjóðarbúsins eru
í um hálfrar aldar lægð. Þessu
til viðbótar hefur töluverður
kraftur innlendra aðila farið í að
greiða niður skuldir sem dregið
hefur þrótt úr efnahagsbatanum.
Ólokið verk peningastefnunnar
Enn er þó ýmsum verkefn-
um ólokið. Þar ber auðvitað
hæst losun fjármagnshafta en
á megin sviði peningastefnunn-
ar er þó brýnasta verkefnið að
tryggja verðbólguvæntingum
trausta kjölfestu þannig að unnt
sé að ná viðvarandi árangri í
baráttunni við verðbólguna.
Þrátt fyrir að verðbólga hafi
hjaðnað að markmiði er það
enn svo að langtímaverðbólgu-
væntingar eru nokkru yfir 2,5%
verðbólgumarkmiði bankans.
Því virðist enn skorta traust á
getu peningastefnunnar til þess
að tryggja að verðbólga haldist
við markmið til langframa. End-
urspeglar það örugglega lakan
árangur við að tryggja verð-
stöðugleika undanfarin ár. Af
þeim sökum hafa vextir Seðla-
banka Íslands einmitt þurft að
vera hærri en í nágrannalönd-
um okkar þar sem seðlabankar
hafa þurft að glíma við of litla
verðbólgu og ótta við að festast
í vítahring langvarandi verð-
hjöðnunar (ítarlega umfjöllun
um ástæður hærri vaxta á Ís-
landi má finna í rammagrein I-1
í Peningamálum 2013/2). Seðla-
bankar nágrannaríkja okkar
hafa því haldið vöxtum óvenju-
lágum til að freista þess að ýta
verðbólgu og verðbólguvænting-
um upp í markmið. Vandinn hér
á landi hefur hins vegar verið að
ná tökum á verðbólgu og verð-
bólguvæntingum og freista þess
að skapa þeim kjölfestu í verð-
bólgumarkmiði sem kveðið er á
um í sameiginlegri yfirlýsingu
stjórnvalda og Seðlabankans.
Þegar það hefur tekist er ekkert
því til fyrirstöðu að vextir geti
lækkað frá því sem þeir eru nú.
Til þess að svo geti orðið verð-
ur hins vegar að ríkja almennt
traust í garð peningastefnunnar,
Seðlabankans og stjórnar hans
þannig að ekki verði með nein-
um hætti grafið undan þeim ár-
angri sem náðst hefur á vakt nú-
verandi bankastjóra bankans og
lýst er hér að ofan. Mikilvæg for-
senda þess að slíkt traust mynd-
ist er að þannig sé búið um hnút-
ana að ekki sé tilefni til þess að
efast um sjálfstæði bankans við
framkvæmd peningastefnunnar.
Þær skoðanir sem hér koma
fram þurfa ekki að endurspegla
skoðanir bankans eða annarra
nefndarmanna peningastefnu-
nefndar.
Árangur peningastefnunnar
undanfarin fimm ár
SKOÐUN
Þórarinn G. Pétursson
aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands
og meðlimur í peningastefnunefnd bankans.
Mikilvæg for-
senda þess að
slíkt traust myndist er
að þannig sé búið um
hnútana að ekki sé til-
efni til þess að efast um
sjálfstæði bankans við
framkvæmd peninga-
stefnunnar.
Rannsóknarlögreglumennirnir og félagarnir Rustin Cohle og Martin
Hart úr þáttunum True Detective hafa farið á kostum í besta sjónvarps-
efni ársins. Áhorfendur hafa fengið að fylgjast með lögreglumönnunum
rannsaka óhugnanlegt morðmál og mannshvörf. Rannsóknin hefur dregið
þá í gegnum gruggug fen Louisiana þar sem þeir leita morðingjans og
ákveðin kaflaskil urðu þegar Hart drap viðurstyggilegan hrotta sem þeir
grunuðu um ódæðin. Þá voru félagarnir hylltir sem hetjur og næstu árin
á eftir lifðu þeir í þeirri trú að málið væri leyst.
Ráðherrarnir og félagarnir Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson hafa í við-
tölum í fjölmiðlum séð okkur fyrir næstbesta
sjónvarpsefni ársins. Áhorfendur hafa fengið að
fylgjast með ráðherrunum ræða og verja stefnu-
mál ríkisstjórnarinnar og kosningaloforð. Viðtöl-
in hafa dregið þá í gegnum gruggug fen íslenskra
stjórnmála í leit að útfærslum á stefnumálum og
loforðum síðustu alþingiskosninga þegar ákveðin
kaflaskil urðu og flokkar þeirra náðu tveggja
flokka meirihluta. Þá voru félagarnir hylltir sem
hetjur og níu mánuðum síðar virtist kjörtímabilið
ætla að verða leikur einn.
Ágætis byrjun
Um hálfu ári eftir að ríkisstjórnin var mynduð
kynntu ráðherrarnir tveir aðgerðaráætlun um
höfuðstólslækkun húsnæðislána, stærsta kosn-
ingaloforð Framsóknarflokksins. Með henni
ætlar ríkisstjórnin að lækka höfuðstól verð-
tryggðra húsnæðislána og koma á skattaívilnun
sem mun gera heimilum sem skulda húsnæðislán
kleift að nýta greiðslur sem ella rynnu inn í sér-
eignarsjóði til að greiða inn á lánin. Heildarum-
fang aðgerðarinnar er metið á um 150 milljarða
króna og bankaskattur á að fjármagna skulda-
lækkunina næstu fjögur árin. Nokkrum vikum síðar þegar árið 2013 var
gert upp í Kryddsíld Stöðvar 2 virtist gagnrýni formanna stjórnarand-
stöðuflokkanna á skuldaleiðréttinguna oft missa marks.
Þremur vikum síðar, tíu dögum eftir að við fengum fyrst að kynnast
lögreglumönnunum í Louisiana, kynnti sérfræðingahópur ríkisstjórnar-
innar um afnám verðtryggingar af neytendalánum tillögur sínar. Til-
lögurnar voru þá gagnrýndar fyrir að standa ekki við gefin fyrirheit um
fullt afnám verðtryggingar.
Fortíðarþrá
Um miðjan febrúar, nokkrum dögum áður en Sigmundur og Gísli Mar-
teinn Baldursson rifust um stöðu seðlabankastjóra, innflutning á ostum
og hvor þeirra stjórnaði þættinum Sunnudagsmorgni, gagnrýndi ráð-
herra Seðlabanka Íslands í erindi á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs Íslands.
Bankinn hafði að hans mati haldið „óumbeðinn“ í vinnu við greiningu á
skuldalækkunaráformum ríkisstjórnarinnar á meðan stjórnin biði eftir
greiningu á greiðslujöfnuði Íslands sem óskað hafði verið eftir nokkru
áður. Níu dögum síðar tilkynnti fjármála- og efnahagsráðuneytið að
lögum um Seðlabankann yrði breytt og staða bankastjóra auglýst. Már
Guðmundsson þarf því að sækja um starfið á nýjan leik og bankastjórarn-
ir gætu á endanum orðið þrír, alveg eins og í gamla daga þegar allt var
gott og ungt fólk sá áburðarverksmiðjur í hillingum.
Nóg er búið að fjalla um þingsályktunartillöguna sem lögð var fram
nokkrum dögum síðar um að draga aðildarumsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu til baka og áður gefin loforð margra stjórnarliða í þeim
efnum. Umsóknin skal dregin til baka enda á gjaldmiðillinn að heita
króna en ekki evra og fullveldið á að vernda en ekki kasta á glæ. Þetta
stóð allt svart á hvítu á blaðsíðu 152 í skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands og því engin ástæða fyrir ráðherra fjármála- og efnahagsmála að
standa við áður gefin loforð um þjóðaratkvæðagreiðslu á fyrri hluta kjör-
tímabilsins.
Háspenna lífshætta
Bjarni ítrekaði afstöðu sína til aðildarviðræðnanna í ræðu í Valhöll í síð-
ustu viku. Þar sagði hann einnig að áætlun um afnám gjaldeyrishaftanna
hafi verið virkjuð í haust. Niðurstöður þeirrar vinnu eiga vonandi eftir að
hleypa smá lífi í stjórnmálin og í ofanálag ættu einungis að vera um þrír
mánuðir þangað til skuldaleiðréttingin hefst.
Það verður því spennandi að fylgjast með því hvernig mál þróast og
ljóst er að ekki eru öll kurl komin til grafar. Besta sjónvarpsefni ársins
kveður á mánudaginn þegar Cohle og Hart klára vonandi sín mál en þá
taka Sigmundur og Bjarni við, einir í sviðsljósinu, með um þrjú ár eftir af
kjörtímabilinu.
Sannir
stjórnmálamenn
Niðurstöður
þeirrar vinnu
eiga vonandi
eftir að hleypa
smá lífi í stjórn-
málin og í ofaná-
lag ættu einungis
að vera um þrír
mánuðir þangað
til skuldaleiðrétt-
ingin hefst.
Markaðshornið
Haraldur Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is
20
15
10
5
0
jan. 09 jan. 10 jan. 11 jan. 12 jan. 13 jan. 14
Verðbólga
Verðbólguvæntingar til næstu 5 ára
Verðbólgumarkmið
VERÐBÓLGA OG VERÐBÓLGUVÆNTINGAR
HAGVÖXTUR OG ATVINNULEYSI
jan. 09 jan. 10 jan. 11 jan. 12 jan. 13 jan. 14
10
8
6
4
2
0
-2
-4
-6
-8
-10
Hagvöxtur (breyting frá fyrra ári)
Árstíðarleiðrétt skráð atvinnuleysi
(hlutfall af mannafl a)
Stefán Pálsson sagnfræðingur og
Björn Berg Gunnarsson, deildar-
stjóri hjá VÍB, voru framsögu-
menn á fundi um fjármál í fót-
bolta í Norðurljósasal Hörpu í
gær. Stefán ræddi um eignarhald
knattspyrnuliða, veðmálasvindl
og spillingu í knattspyrnuheimin-
um en Björn ræddi um tekjuskipt-
ingu helstu liða í Evrópu, þóknan-
ir umboðsmanna, launagreiðslur,
skattamál og fleira sem hefur æ
meiri áhrif á knattspyrnuheiminn.
Fram kom meðal annars að
hagnaður FIFA, alþjóða knatt-
spyrnusambandsins, af síðasta
heimsmeistaramóti nam 266 millj-
örðum króna. Fyrir það hefði mátt
staðgreiða tvo þriðju af íslenska
hlutabréfamarkaðnum. - fbj
VÍB og Fótbolti.net héldu fræðslufund saman í Hörpu:
Fjármál í fótbolta
BJÖRN BERG GUNNARSSON, deildarstjóri hjá
VÍB, var annar framsögumanna á fundi um
fjármál í fótbolta í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN