Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
18
STYRKTI BUGLHljómsveitin Sálin hans Jóns míns færði barna-
og unglingageðdeild Landspítala, BUGL, 250 þús-
und krónur að gjöf á dögunum. Féð safnaðist á 25
ára afmælistónleikum sveitarinnar í Hörpu í fyrra.
GÓÐA MELTINGU UM PÁSKANAGENGUR VEL KYNNIR Færð þú oft illt í magann eða verður að leggja þig
eftir að hafa borðað stóra máltíð? Taktu málið í þínar hendur og próf ð
Pró gastró DDS+3.
GOTT FYRIR MELTINGUNAPrógastró er einn öflugasti asídófílusinn á markaðnum.
Skipholti 29b • S. 551 0770
FYRIR VEISLUNA
SUMARDEKKÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 2014 Kynningarblað Dekk, felgur, Formúlan og samanburður á hjólbörðum.
2 SÉRBLÖÐ
Sumardekk | Fólk
Sími: 512 5000
15. apríl 2014
89. tölublað 14. árgangur
Vilja friðargæsluliða
Úkraínsk stjórnvöld hafa farið fram
á það við Sameinuðu þjóðirnar
að friðargæsluliðar verði sendir til
landsins. 10
Svæði verði látin vera Samtök
ferðaþjónustunnar mótmæla til-
raunum til að fá svæði í verndarflokki
endurmetin í rammaáætlun. 4
Vilja íslenska tækni Ný íslensk
tækni gæti gert vinnslu á þorski í
Noregi hagkvæmari. 4
Sameining ekki útilokuð Niður-
skurðaráform í nýrri fjárhagsáætlun
Landbúnaðarháskólans hafa ekki
verið samþykkt. Sameining við
Háskóla Íslands er ekki útilokuð. 8
MENNING Zombíar á Sinfó
vöktu óhug og ánægju
gagnrýnanda. 34
SPORT Hrafnhildur Lúthers-
dóttir var óstöðvandi í
lauginni um helgina. 44
LG BOGIÐ OLED SJÓNVARP
Heimsins fyrsta bogna OLED sjónvarpið
SÍÐUMÚLA 2
WWW.SM.IS
Íbúfen®
400 mg, 30 stk og 400 mg, 50 stk
Opið alla
páskana
í Vesturbergi
NEYTENDUR Neytendastofa hefur
ekki annast eftirlit utan 100 km
radíuss frá höfuðborgarsvæðinu
síðan 2008 vegna niðurskurðar
þrátt fyrir skyldur um að tryggja
öryggi og réttindi neytenda.
Eftirlit Neytendastofu snýr að
verðmerkingum í verslunum og
löggildingum mælitækja svo sem
voga í verslunum og hjá fyrir-
tækjum sem og bensíndælna.
Tryggvi Axelsson, forstjóri
Neytendastofu, segir þetta alvar-
legt mál. „Skorið hefur verið niður
í fjárframlögum til Neytendastofu
á síðustu árum og það hefur bitnað
helst á landsbyggðinni. Neytenda-
stofa er ekki höfuðborgarstofa,
hún er stjórnvald á landsvísu og
verður að starfa sem slík.“
Tryggvi telur að úrbóta sé þörf.
„Þetta er alvarleg staða og þarft er
að sníða stofnuninni þann stakk að
hún geti sinnt landinu öllu en ekki
aðeins höfuðborgarbúum og nær-
sveitum hennar.“
„Ég er algjörlega sammála því
að eftirlitið er á landsvísu og á
að vera á landsvísu. Stofnunin
verður að fá tryggt fé til að sinna
skyldum sínum. Það sýnir sig á
höfuðborgarsvæðinu að í hvert
sinn sem við förum í eftirlitsferð-
ir kemur eitthvað út úr ferðum
okkar neytendum til hagsbóta
og að þörf er á virku eftirliti af
okkar hálfu. Því má segja að staða
neytenda utan höfuðborgarsvæð-
isins sé að einhverju leyti örlítið
viðkvæmari í ljósi ástandsins,“
segir Tryggvi.
Stofnunin hefur frá hruni 2008
sinnt verðmerkingum á höfuð-
borgarsvæðinu og hefur í stöku
tilvikum sinnt eftirliti norðan
Hvalfjarðarganga, á Akranesi og
í Borgarnesi, og austan Hellis-
heiðar, í Hveragerði og á Selfossi.
Á öðrum stöðum landsins hefur
stofnunin tekið við ábendingum
frá neytendum og reynt að fram-
fylgja skyldum sínum með því að
senda bréf á viðkomandi staði með
beiðni um úrbætur og lagfæringar.
- sa
Neytendastofa hefur ekkert
eftirlit á landsbyggðinni
Neytendastofa hefur ekki sinnt skyldum sínum um eftirlit utan höfuðborgarsvæðisins síðan árið 2008. Stofnunin
hefur eftirlit með verðmerkingum og mælitækjum. Verðum að fá fé til að sinna skyldum okkar, segir forstjórinn.
SKOÐUN Andri Valgeirsson
skrifar um ferðaþjónustu
fatlaðra og útboð. 19
STÚDENTAR MÓTMÆLA Nemendur við Háskóla Íslands mótmæltu fyrirhuguðu verkfalli háskólakennara fyrir utan fj ár-
málaráðuneytið í gær. Sjá síðu 10. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bolungarvík 14° SV 14
Akureyri 6° SV 9
Egilsstaðir 9° SV 6
Kirkjubæjarkl. 6° SV 7
Reykjavík 6° SV 10
SUÐVESTAN 8-15 m/s og skúrir eða él
S- og V-til en úrkomulítið NA-til. Dregur
smám saman úr vindi síðdegis. Hiti víðast
3-10 stig. 4
Neytenda-
stofa er ekki
höfuðborgar-
stofa, hún er
stjórnvald
á landsvísu
og verður að
starfa sem slík.
Tryggvi Axelsson,
forstjóri Neytendastofu.
LÍFIÐ Brynhildur Odds-
dóttir tók upp myndband
með hest í aðalhlutverki. 43
UMHVERFISMÁL „Hann ber þess
merki að hafa farið í gegnum eina
dælistöð. Það vantar á hann augun.
Þau hafa slitnað af vegna straum-
hraðans,“ segir Stefán Kjartans-
son, verkstjóri fráveitu Orkuveitu
Reykjavíkur, um japanska skraut-
fiskinn Undra sem starfsmenn
fundu fyrir sex árum.
Undri er síður en svo það eina
sem veitt hefur verið úr holræsa-
kerfinu. Meðal þess sem rekið
hefur á fjörur starfsmanna frá-
veitunnar eru falskar tennur,
kreditkort og farsímar. „Það er
greinilegt að þessa hluti hefur fólk
misst í klósettið,“ segir Stefán.
Kostnaður vegna rusls sem
íbúarnir sturta niður stefnir í 32
milljónir á árinu. - ibs / sjá síðu 6
Falskar tennur, farsímar og skrautfiskurinn Undri fiskuð úr skólpi borgarbúa:
Lifði af ferð um holræsakerfið
LEMSTRAÐUR Starfsmenn fráveitu Orkuveitu Reykjavíkur fundu skrautfiskinn
Undra fyrir sex árum og hafa gætt hans síðan. Hann bar þess merki að hafa farið í
gegnum dælistöð því hann er augnalaus. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Myndir af hálf-
nöktum íslenskum stúlkum,
þeim yngstu á fjórtánda aldurs-
ári, eru birtar á erlendri spjall-
síðu. Þar skiptast íslenskir karl-
menn á myndunum.
Hundruð mynda eru komin inn
á síðuna þar sem notendur geta
sett inn efni að vild.
Friðrik Smári Björgvins-
son, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu,
segir erlendu síðuna til rann-
sóknar hjá lögreglu. Tilkynning
barst um síðuna í síðustu viku
og er nú unnið í því að fá síðunni
lokað, segir Friðrik.
Mikilvægt er að uppræta
svona efni og koma þolendum til
hjálpar, segir Erna Reynisdóttir,
framkvæmdastjóri Barnaheilla –
Save the children á Íslandi.
- sa / sjá síðu 2
Lögregla rannsakar spjallsíðu:
Birta myndir
af fáklæddum
ungum stúlkum