Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 8
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8 FRÉTTASKÝRING Hvað líður sameiningu Landbúnaðarhá- skólans og Háskóla Íslands? Dráttur sem orðið hefur á uppá- skrift menntamálaráðuneytisins á nýja fjárhagsáætlun Landbún- aðarháskóla Íslands á Hvanneyri (LbhÍ) kann að benda til þess að enn gæti komið til sameiningar skólans og Háskóla Íslands. Þetta er mat Ágústs Sigurðssonar, rektors LbhÍ. Í áætluninni, sem er til þriggja ára, eru seglin dregin saman í rekstr- inum um sem nemur 70 milljónum króna á ári. Að óbreyttu segir Ágúst að skera þurfi niður 15 stöðugildi. „Ég heyri það mjög víða þar sem ég kem að menn eru enn að velta þessu fyrir sér,“ segir Ágúst. Það eigi líka við um þá þingmenn sem hafi látið sig málið varða. Honum heyrist margir þeirrar skoðunar að fara eigi leið sameiningar. „En formlega er þetta náttúrlega bara í því ferli að við bíðum eftir að fá samþykkta þessa tillögu okkar um að draga saman seglin. Við höfum hins vegar ekki fengið svar við því enn hvort áætl- unin sé samþykkt eða ekki og það þykir mér benda til þess að menn vilji endurskoða þetta.“ Fordæmin eru til Ágúst segir líka tilfinningu sína að heldur sé að draga úr mótstöðunni. „Málið þarf ekki að skoða lengi til að sjá að tækifærin liggja í sam- einingunni. Tækifærin liggja ekki í óbreyttu ástandi.“ Áhyggjur þeirra sem hafa verið á móti sameiningu hafa að hluta snúist um framtíð starfsmennta- námsins við skólann, og eins af því að starfsemin minnki og sogist til Reykjavíkur. „En það er alls ekki það sem menn vilja gera, heldur þveröfugt,“ segir Ágúst og bendir á að dæmi séu um að vel hafi tekist til við að efla starfsemi og auka á landsbyggðinni, svo sem þegar skattstofurnar voru sameinaðar ríkis skattstjóra. „Ef menn gera þetta markvisst og meðvitað, þá er það hægt.“ Í byrjun mánaðarins skoruðu um þrír fjórðu akademískra starfs- manna LbhÍ á menntamálaráð- herra, rektor LbhÍ og allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis að klára sameiningarferli LbhÍ og HÍ. Fyrir helgi samþykkti líka Háskólaráð HÍ ályktun þar sem eftir því var kallað að skoðuð yrðu áfram með opnum huga þau tækifæri sem kynnu að skapast með sameiningu HÍ og LbhÍ. „Háskóli Íslands leggur áherslu á að vísindastarfsemi á sviðum lífvís- inda, búvísinda, matvæla- og nær- ingarfræði, matvælaverkfræði, auðlindahagfræði, sjávarrann- sókna, umhverfisfræði og landnýt- ingar verði efld til að skapa grund- völl fyrir sókn. Háskólaráð telur að fjármagn sem varið er til þessara málaflokka sé þjóðhagslega mjög arðbær fjárfesting, og mikilvægt að veita dreifðum kröftum í einn farveg,“ segir í ályktuninni. Vonbrigði segir rektor HÍ Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, ræðir líka sameininguna í nýj- asta tölublaði Stúdentablaðsins. „ Þ að veldu r mér gríðarleg- um vonbrigðum ef þetta fer eins og á horfir að það verði ekki úr þessu vegna andstöðu sveitar- félagsins og for- ystu bændasam- takanna. Ég tel okkur Íslendinga vera að missa af miklu sóknarfæri fyrir báða skólana og samfélagið í heild,“ segir hún þar og bendir á mikilvægi þeirra greina sem tengjast matvælaframleiðslu. „Landbúnaður er að þróast hratt sem þekkingargrein og því fylgja auknar kröfur til náms. Það eru margar spennandi tengingar milli skólanna og ég held að saman gætum við gert mjög góða hluti, ekki síst vegna þess að ráðherra hefur kynnt að slíkri sameiningu muni fylgja fjármunir til uppbygg- ingar á Hvanneyri til styrkingar á þessum greinum.“ Í grein sem kennararnir við LbhÍ sem skoruðu á ráðherra rituðu í Morgunblaðið fyrir helgi segjast þeir líka telja að „landbúnaðarvís- indi og tengdar greinar eigi ekki að vera í einhverju sérhólfi“ heldur sæmi þeim að vera við hlið annarra mikilvægra fræðigreina. „Þetta er líka sú leið sem helstu sam- starfsstofnanir okkar í nágranna- löndunum hafa fetað á síðustu árum,“ segir í greininni. „Sjálfskip- aðir umsagnaraðilar Borgar byggðar og Bændasamtaka Íslands hafa án faglegrar röksemdafærslu sett sig gegn sameiningaráformum.“ Fordómar og þröngsýni Starfsfólkið segist í greininni hafa haldið sig til hlés en að nú sé mæl- irinn fullur. „Við teljum okkur vera í betri aðstöðu til að meta faglega stöðu okkar verkefna umfram hina sjálfskipuðu og óumbeðnu „vernd- ara“. Mikill meirihluti starfsmanna stofnunarinnar hefur nú lýst því yfir að hann styðji áform rektors og menntamálaráðherra.“ Þótt samdráttur opinberra verk- efna á landsbyggðinni sé vissulega almennt áhyggjuefni segja starfs- mennirnir það ekki geta verið meg- inrökin þegar komi að sameiningu skólanna. „Grunnhugmynd sam- einingar felst í að efla sérstaklega starfsstöðvar LbhÍ á Hvanneyri og Reykjum.“ Starfsmenn Lbhí segjast mótmæla því að „stefnumörkun um framtíð LbhÍ sé rekin með hræðslu- áróðri, fordómum, þröngsýni og almennri vanþekkingu á faglegum forsendum háskólarekstrar.“ olikr@frettabladid.is ÁGÚST SIGURÐSSON KRISTÍN INGÓLFSDÓTTIR Sameining LbhÍ og HÍ ekki útilokuð enn Menntamálaráðuneytið hefur ekki enn skrifað upp á niðurskurðaráform sem lögð voru fram í nýrri fjárhagsáætlun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um mán- aðamótin. Gæti þýtt að sameining við Háskólann sé enn á borðinu, segir rektor. LBHÍ Á HVANNEYRI Meirihluti kennara og rektor LbhÍ eru fylgjandi sameiningu við HÍ, sem og háskólaráð HÍ og rektor. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR SKIPULAGSMÁL Borgarráð hefur samþykkt áætlun um byggingu fimm búsetukjarna fyrir fatlað fólk með miklar og sértækar þjónustuþarfir. Húsnæðið verður tilbúið á næstu tveimur árum. Samkvæmt áætluninni munu 28 einstaklingar fá tilboð um búsetu og þjónustu innan þessara nýju kjarna. Í tilkynningu frá borginni kemur fram að með nýjum húsnæðisúrræðum losni um þjónustu sem hægt er að bjóða öðru fólki en biðlistar eru eftir skammtímaheimilum og stuðningsþjónustu. - fb Alls fá 28 tilboð um búsetu í nýjum búsetukjörnum: Fimm kjarnar fyrir fatlaða FATLAÐIR FÁ ÞJÓNUSTU Búist er við að 28 einstaklingar fái tilboð um búsetu og þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI Harpa tónlistar- og ráðstefnu - hús ohf. heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 16:00 á Háalofti. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Aðalfundur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.