Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Sumardekk15. APRÍL 2014 ÞRIÐJUDAGUR 5
Dekkjasalan ehf. í Hafnarfirði er nú að hefja fimmta starfs-ár sitt en 20. apríl árið 2010
opnaði Dekkjasalan umboðssölu
með dekk og felgur að Dalshrauni
16 í Hafnarfirði. Miklar breytingar
hafa átt sér stað á þessu tímabili
og þjónustustig fyrirtækisins hefur
hækkað með hverju árinu sem líður
að sögn Valdimars Sigurjónssonar,
eiganda fyrirtækisins. „Þegar fyrir-
tækið byrjaði var lögð áhersla á um-
boðssölu með notuð dekk og felgur.
Það sem kom á óvart var það magn af
felgum sem kom í umboðssölu. Þró-
unin varð því strax í þá átt að þjón-
usta þann markað vel.“
Valdimar segir fyrirtækið hafa
gert það með því að bjóða viðskipta-
vinum upp á ýmsa valkosti. „Við
erum með úrval af nýjum felgum
ásamt því að pólýhúða notaðar
felgur og gera þær eins og nýjar,
eða kannski má segja betri en nýjar
vegna þess hversu slitsterk pólýhúð-
unin er. Einnig erum við með allar
helstu gerðir af nýjum dekkjum á
mjög góðu verði. Aðalbreytingin
er samt sem áður sú að við höfum
opnað fullkomið dekkjaverkstæði
hérna í húsinu við hliðina og getum
því afkastað mun fleiri bílum ásamt
því að öll aðstaða fyrir viðskiptavini
er nú til fyrirmyndar.“
Fjögur þúsund felgur á söluskrá
Lager Dekkjasölunnar er vel nýttur.
„Hér er mikið magn af dekkjum og
felgum sem tekur mikið pláss. Segja
má að hver fersentímetri sé nýttur
hér, ef ekki undir dekk og felgur þá
aukahluti eins og felguboltar, miðju-
lok í álfelgur, hjólkoppar og f leira
sem tilheyrir hjólabúnaði bílsins.“
Á þessum árstíma er lagerinn
alveg í hámarki enda vortörnin að
byrja að sögn Valdimars. „Ætli það
séu ekki um það bil fjögur þúsund
felgur á lagernum núna. Þá eru ekki
taldar með felgurnar sem við eigum
til að lána undir bíla sem eru að
koma í pólýhúðun. Við eigum um
20 mismunandi ganga af dekkjum á
felgum sem eru klárir til að bílarnir
stoppi ekki hjá viðskiptavinum
meðan verið er að vinna í felgunum.
Einnig reynum við að eiga sem
flestar gerðir af felgum klárar til þess
að geta klárað þetta strax. Þá tökum
við einfaldlega gömlu felgurnar upp
í þær nýpólýhúðuðu.“
Myndir af dekkjum og felgum
Þess má geta að myndir af öllum
dekkjum og felgum eru á heimasíðu
fyrirtækisins www.dekkjasalan.is
ásamt öllum upplýsingum um verð
hverrar vöru.
Vöruhús Dekkjasölunnar er að
Dalshrauni 16 í Hafnarfirði. Opið
er frá klukkan 8 til 18 virka daga og
frá klukkan 10 til 16 á laugardögum.
Símanúmerið er 587-3757 og einnig
er hægt að hafa samband gegnum
tölvupóst á netfangið dekkjasalan@
dekkjasalan.is.
Landsins mesta úrval af dekkjum?
Á fjórum árum hefur Dekkjasalan styrkt sig í sessi sem einn öflugasti dekkja- og felguseljandi hérlendis. Nýlega opnaði fyrirtækið
fullkomið dekkjaverkstæði og getur því þjónustað viðskiptavini sína enn betur en áður.
Myndir af öllum felgum og dekkjum er að finna á www.dekkjasalan.is. MYND/GVA
Dekkjasalan býður upp á mikið úrval af dekkjum og felgum. Valdimar Sigurjónsson, eigandi Dekkjasölunnar, er lengst til hægri. MYND/GVA