Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 15.04.2014, Blaðsíða 33
KYNNING − AUGLÝSING Sumardekk15. APRÍL 2014 ÞRIÐJUDAGUR 5 Dekkjasalan ehf. í Hafnarfirði er nú að hefja fimmta starfs-ár sitt en 20. apríl árið 2010 opnaði Dekkjasalan umboðssölu með dekk og felgur að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði. Miklar breytingar hafa átt sér stað á þessu tímabili og þjónustustig fyrirtækisins hefur hækkað með hverju árinu sem líður að sögn Valdimars Sigurjónssonar, eiganda fyrirtækisins. „Þegar fyrir- tækið byrjaði var lögð áhersla á um- boðssölu með notuð dekk og felgur. Það sem kom á óvart var það magn af felgum sem kom í umboðssölu. Þró- unin varð því strax í þá átt að þjón- usta þann markað vel.“ Valdimar segir fyrirtækið hafa gert það með því að bjóða viðskipta- vinum upp á ýmsa valkosti. „Við erum með úrval af nýjum felgum ásamt því að pólýhúða notaðar felgur og gera þær eins og nýjar, eða kannski má segja betri en nýjar vegna þess hversu slitsterk pólýhúð- unin er. Einnig erum við með allar helstu gerðir af nýjum dekkjum á mjög góðu verði. Aðalbreytingin er samt sem áður sú að við höfum opnað fullkomið dekkjaverkstæði hérna í húsinu við hliðina og getum því afkastað mun fleiri bílum ásamt því að öll aðstaða fyrir viðskiptavini er nú til fyrirmyndar.“ Fjögur þúsund felgur á söluskrá Lager Dekkjasölunnar er vel nýttur. „Hér er mikið magn af dekkjum og felgum sem tekur mikið pláss. Segja má að hver fersentímetri sé nýttur hér, ef ekki undir dekk og felgur þá aukahluti eins og felguboltar, miðju- lok í álfelgur, hjólkoppar og f leira sem tilheyrir hjólabúnaði bílsins.“ Á þessum árstíma er lagerinn alveg í hámarki enda vortörnin að byrja að sögn Valdimars. „Ætli það séu ekki um það bil fjögur þúsund felgur á lagernum núna. Þá eru ekki taldar með felgurnar sem við eigum til að lána undir bíla sem eru að koma í pólýhúðun. Við eigum um 20 mismunandi ganga af dekkjum á felgum sem eru klárir til að bílarnir stoppi ekki hjá viðskiptavinum meðan verið er að vinna í felgunum. Einnig reynum við að eiga sem flestar gerðir af felgum klárar til þess að geta klárað þetta strax. Þá tökum við einfaldlega gömlu felgurnar upp í þær nýpólýhúðuðu.“ Myndir af dekkjum og felgum Þess má geta að myndir af öllum dekkjum og felgum eru á heimasíðu fyrirtækisins www.dekkjasalan.is ásamt öllum upplýsingum um verð hverrar vöru. Vöruhús Dekkjasölunnar er að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði. Opið er frá klukkan 8 til 18 virka daga og frá klukkan 10 til 16 á laugardögum. Símanúmerið er 587-3757 og einnig er hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á netfangið dekkjasalan@ dekkjasalan.is. Landsins mesta úrval af dekkjum? Á fjórum árum hefur Dekkjasalan styrkt sig í sessi sem einn öflugasti dekkja- og felguseljandi hérlendis. Nýlega opnaði fyrirtækið fullkomið dekkjaverkstæði og getur því þjónustað viðskiptavini sína enn betur en áður. Myndir af öllum felgum og dekkjum er að finna á www.dekkjasalan.is. MYND/GVA Dekkjasalan býður upp á mikið úrval af dekkjum og felgum. Valdimar Sigurjónsson, eigandi Dekkjasölunnar, er lengst til hægri. MYND/GVA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.