Fréttablaðið - 15.04.2014, Síða 8
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
FRÉTTASKÝRING
Hvað líður sameiningu Landbúnaðarhá-
skólans og Háskóla Íslands?
Dráttur sem orðið hefur á uppá-
skrift menntamálaráðuneytisins
á nýja fjárhagsáætlun Landbún-
aðarháskóla Íslands á Hvanneyri
(LbhÍ) kann að benda til þess að enn
gæti komið til sameiningar skólans
og Háskóla Íslands. Þetta er mat
Ágústs Sigurðssonar, rektors LbhÍ.
Í áætluninni, sem er til þriggja ára,
eru seglin dregin saman í rekstr-
inum um sem nemur 70 milljónum
króna á ári. Að óbreyttu segir Ágúst
að skera þurfi niður 15 stöðugildi.
„Ég heyri það mjög víða þar sem
ég kem að menn eru enn að velta
þessu fyrir sér,“ segir Ágúst. Það
eigi líka við um þá þingmenn sem
hafi látið sig málið varða. Honum
heyrist margir þeirrar skoðunar
að fara eigi leið
sameiningar. „En
formlega er þetta
náttúrlega bara
í því ferli að við
bíðum eftir að fá
samþykkta þessa
tillögu okkar um
að draga saman
seglin. Við höfum
hins vegar ekki
fengið svar við því enn hvort áætl-
unin sé samþykkt eða ekki og það
þykir mér benda til þess að menn
vilji endurskoða þetta.“
Fordæmin eru til
Ágúst segir líka tilfinningu sína að
heldur sé að draga úr mótstöðunni.
„Málið þarf ekki að skoða lengi til
að sjá að tækifærin liggja í sam-
einingunni. Tækifærin liggja ekki
í óbreyttu ástandi.“
Áhyggjur þeirra sem hafa verið
á móti sameiningu hafa að hluta
snúist um framtíð starfsmennta-
námsins við skólann, og eins af því
að starfsemin minnki og sogist til
Reykjavíkur. „En það er alls ekki
það sem menn vilja gera, heldur
þveröfugt,“ segir Ágúst og bendir á
að dæmi séu um að vel hafi tekist
til við að efla starfsemi og auka
á landsbyggðinni, svo sem þegar
skattstofurnar voru sameinaðar
ríkis skattstjóra. „Ef menn gera
þetta markvisst og meðvitað, þá er
það hægt.“
Í byrjun mánaðarins skoruðu
um þrír fjórðu akademískra starfs-
manna LbhÍ á menntamálaráð-
herra, rektor LbhÍ og allsherjar- og
menntamálanefnd Alþingis að klára
sameiningarferli LbhÍ og HÍ. Fyrir
helgi samþykkti líka Háskólaráð HÍ
ályktun þar sem eftir því var kallað
að skoðuð yrðu áfram með opnum
huga þau tækifæri sem kynnu að
skapast með sameiningu HÍ og LbhÍ.
„Háskóli Íslands leggur áherslu á
að vísindastarfsemi á sviðum lífvís-
inda, búvísinda, matvæla- og nær-
ingarfræði, matvælaverkfræði,
auðlindahagfræði, sjávarrann-
sókna, umhverfisfræði og landnýt-
ingar verði efld til að skapa grund-
völl fyrir sókn. Háskólaráð telur að
fjármagn sem varið er til þessara
málaflokka sé þjóðhagslega mjög
arðbær fjárfesting, og mikilvægt
að veita dreifðum kröftum í einn
farveg,“ segir í ályktuninni.
Vonbrigði segir rektor HÍ
Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ,
ræðir líka sameininguna í nýj-
asta tölublaði Stúdentablaðsins.
„ Þ að veldu r
mér gríðarleg-
um vonbrigðum
ef þetta fer eins
og á horfir að
það verði ekki
úr þessu vegna
andstöðu sveitar-
félagsins og for-
ystu bændasam-
takanna. Ég tel
okkur Íslendinga vera að missa af
miklu sóknarfæri fyrir báða skólana
og samfélagið í heild,“ segir hún þar
og bendir á mikilvægi þeirra greina
sem tengjast matvælaframleiðslu.
„Landbúnaður er að þróast hratt
sem þekkingargrein og því fylgja
auknar kröfur til náms. Það eru
margar spennandi tengingar milli
skólanna og ég held að saman
gætum við gert mjög góða hluti,
ekki síst vegna þess að ráðherra
hefur kynnt að slíkri sameiningu
muni fylgja fjármunir til uppbygg-
ingar á Hvanneyri til styrkingar á
þessum greinum.“
Í grein sem kennararnir við LbhÍ
sem skoruðu á ráðherra rituðu í
Morgunblaðið fyrir helgi segjast
þeir líka telja að „landbúnaðarvís-
indi og tengdar greinar eigi ekki
að vera í einhverju sérhólfi“ heldur
sæmi þeim að vera við hlið annarra
mikilvægra fræðigreina. „Þetta
er líka sú leið sem helstu sam-
starfsstofnanir okkar í nágranna-
löndunum hafa fetað á síðustu
árum,“ segir í greininni. „Sjálfskip-
aðir umsagnaraðilar Borgar byggðar
og Bændasamtaka Íslands hafa án
faglegrar röksemdafærslu sett sig
gegn sameiningaráformum.“
Fordómar og þröngsýni
Starfsfólkið segist í greininni hafa
haldið sig til hlés en að nú sé mæl-
irinn fullur. „Við teljum okkur vera
í betri aðstöðu til að meta faglega
stöðu okkar verkefna umfram hina
sjálfskipuðu og óumbeðnu „vernd-
ara“. Mikill meirihluti starfsmanna
stofnunarinnar hefur nú lýst því
yfir að hann styðji áform rektors
og menntamálaráðherra.“
Þótt samdráttur opinberra verk-
efna á landsbyggðinni sé vissulega
almennt áhyggjuefni segja starfs-
mennirnir það ekki geta verið meg-
inrökin þegar komi að sameiningu
skólanna. „Grunnhugmynd sam-
einingar felst í að efla sérstaklega
starfsstöðvar LbhÍ á Hvanneyri og
Reykjum.“ Starfsmenn Lbhí segjast
mótmæla því að „stefnumörkun um
framtíð LbhÍ sé rekin með hræðslu-
áróðri, fordómum, þröngsýni og
almennri vanþekkingu á faglegum
forsendum háskólarekstrar.“
olikr@frettabladid.is
ÁGÚST
SIGURÐSSON
KRISTÍN
INGÓLFSDÓTTIR
Sameining LbhÍ og
HÍ ekki útilokuð enn
Menntamálaráðuneytið hefur ekki enn skrifað upp á niðurskurðaráform sem lögð
voru fram í nýrri fjárhagsáætlun Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri um mán-
aðamótin. Gæti þýtt að sameining við Háskólann sé enn á borðinu, segir rektor.
LBHÍ Á HVANNEYRI Meirihluti kennara og rektor LbhÍ eru fylgjandi sameiningu við
HÍ, sem og háskólaráð HÍ og rektor. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
SKIPULAGSMÁL Borgarráð hefur
samþykkt áætlun um byggingu
fimm búsetukjarna fyrir fatlað
fólk með miklar og sértækar
þjónustuþarfir. Húsnæðið verður
tilbúið á næstu tveimur árum.
Samkvæmt áætluninni munu
28 einstaklingar fá tilboð um
búsetu og þjónustu innan þessara
nýju kjarna. Í tilkynningu frá
borginni kemur fram að með
nýjum húsnæðisúrræðum losni
um þjónustu sem hægt er að
bjóða öðru fólki en biðlistar eru
eftir skammtímaheimilum og
stuðningsþjónustu. - fb
Alls fá 28 tilboð um búsetu í nýjum búsetukjörnum:
Fimm kjarnar fyrir fatlaða
FATLAÐIR FÁ ÞJÓNUSTU Búist er við
að 28 einstaklingar fái tilboð um búsetu
og þjónustu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn.
Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
ÍK
NÝ OG BE
TRI
HÖNNUN
!
TANNBURSTAR OG
TANNKREM FYRIR
VIÐKVÆM SVÆÐI
Harpa tónlistar- og ráðstefnu -
hús ohf. heldur aðalfund sinn
þriðjudaginn 29. apríl kl. 16:00
á Háalofti.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalfundur