Fréttablaðið


Fréttablaðið - 15.04.2014, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 15.04.2014, Qupperneq 2
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2 LÖGREGLUMÁL Á erlendri spjall- síðu stunda íslenskir karlmenn þá iðju að skiptast á myndum af fáklæddum íslenskum stúlkum. Þær yngstu eru á fjórtánda aldurs- ári. Hundruð mynda af íslenskum stúlkum eru komin inn á spjall- síðuna. Erlenda síðan er svo kallaður „korkur“, spjallsíða þar sem not- andi getur sett inn efni að vild undir umræðu. Fimm mismun- andi spjallþræðir hafa verið teknir í gagnið á síðustu sex mán- uðum í þeim tilgangi að skiptast á myndum af íslenskum stúlkum. Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu, segir erlendu síðuna til rannsóknar hjá lögreglu. „Lögreglunni barst til- kynning um síðuna í síðustu viku. Þetta mál er nú til rannsóknar. Reynt verður að fá síðunni lokað á sama hátt og öðrum viðlíka síðum sem hafa skotið upp kollinum á síð- ustu árum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem spjallsíða af þessu tagi er til rannsóknar hjá lögreglu.“ í 210. grein almennra hegningar- laga segir að hver sem fram leiðir, flytur inn, aflar sér eða öðrum eða hefur í vörslu sinni ljósmynd- ir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðisleg- an eða klámfenginn hátt skuli sæta sektum eða fangelsi allt að tveim- ur árum. Einnig segir að hver sem skoðar myndir, myndskeið eða aðra sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt á netinu eða með annarri upp- lýsinga- eða fjarskiptatækni skuli sæta sömu refsingu. „Samkvæmt íslenskum lögum er öll skoðun, varsla og dreifing á efni sem sýnir börn yngri en 18 ára á kynferðislegan hátt ólögleg og er brot á réttindum barnsins. Mikilvægt er að uppræta slíkt efni og koma þolandanum til hjálpar. Það að myndefnið sé skoðað aftur og aftur og sé í dreifingu er í raun síendurtekið ofbeldi gegn þoland- anum,“ segir Erna Reynisdóttir ,framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. sveinn@frettabladid.is Fáklædd fermingar- börn á erlendri síðu Erlend spjallsíða hefur að geyma myndir af fáklæddum íslenskum stúlkum sem eru allt niður í fjórtán ára. Lögregla rannsakar málið og reynir að fá síðunni lokað. Alvarlegt brot gegn réttindum barns segir framkvæmdastjóri Barnaheilla. SPJALLSÍÐA Notendur nafngreina stúlkur og greina frá aldri og bæjarfélagi sem stúlkurnar búa í, eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum af vefsíðunni. FRAMKVÆMDIR Ný gata við Pósthússtræti verður samkvæmt áætlunum tilbúin í júlí 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA REYKJAVÍK Framkvæmdir sem hófust í byrjun apríl standa nú yfir í Pósthússtræti, milli Austurstrætis og Tryggvagötu. Ýmsar lagfær- ingar verða gerðar, meðal annars á gangstétt og götu, en snjóbræðsla verður lögð undir nýju hellurnar og malbikið. Kostnaður við verkefnið er áætlaður um 100 milljónir króna. Verklok eru áætluð í júlí 2015. - kóh Gata og gangstétt gerðar upp frá grunni í miðbæ Reykjavíkur: Framkvæmdir í Pósthússtræti VINNUMARKAÐUR Kjaradeilum þriggja stéttarfélaga opinberra starfsmanna sem boðað hafa verkföll hefur ekki verið vísað til ríkissáttasemjara. Þetta eru félög háskólakennara við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, auk náttúrufræðinga sem vinna hjá Reykjavíkurborg. Boðuð verkföll þessara félaga hefjast á tímabilinu 25. til 28. apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma. Ekki gilda sömu lög um afskipti sáttasemjara af kjaradeilum félaga á almenna markaðnum og þeim opinbera. Félög á almenna markaðnum geta ekki boðað til verkfalls nema kjaradeila þeirra við vinnuveit- endur sé komin til sáttasemj- ara og það sé staðfest að haldnir hafi verið árangurslausir fundir í kjaradeilunni. Félögum á opinbera markaðnum ber að tilkynna vinnuveitanda og ríkissáttasemjara að félagsmenn ætli í verkfall með 15 daga fyrir- vara. Félögin þurfa ekki að sýna fram á að sáttafundir hafi verið árangurslausir áður en þau boða verkfall. Hafi kjaradeilu ekki verið vísað til sáttasemjara er hlutverk hans fremur óljóst, það er hvenær sátta- semjari á eða getur haft afskipti af kjaradeilu stéttarfélaga. Það er ekki fyrr en verkfall er skollið á sem það er skýrt í lögunum hvert hlutverk sáttasemjara er gagnvart félögum á opinbera markaðnum. - jme Önnur lög gilda um afskipti sáttasemjara af kjaradeilum á almenna markaðnum en hinum opinbera: Ekki búið að vísa til ríkissáttasemjara MILLI VONAR OG ÓTTA Háskólanemar bíða milli vonar og ótta eftir því að vita hvort kennarar fari í verkfall á prófa- tíma í vor. FRÉTTABLAÐIÐ /ANTON UMHVERFISMÁL Landeigendafélag Geysis hætti að taka gjald af ferðamönnum í gærmorgun, eða um leið og Héraðsdómur Suðurlands hafði úrskurðað að sýslu- manninum á Selfossi bæri að leggja lögbann við því að gestir væru rukkaðir um aðgangseyri. Málaferli halda þó áfram að sögn Garðars Eiríks- sonar, talsmanns landeigendafélagins. „Ríkið verður að höfða staðfestingarmál innan sjö daga frá því að sýslumaðurinn setur lögbann,“ segir Garðar. Hann segir að samkvæmt úrskurðinum sé gjald- takan ekki ólögmæt heldur snúist þetta um formsatriði í sameignarfélaginu. Ríkið sem á hluta landsins verði að samþykkja gjaldtökuna. Allir landeigendur verði að samþykkja gjaldtöku, það dugi ekki aukinn meirihluti. Hann segir að úrskurðurinn sé vonbrigði. „Það er skoðun dómarans að minnihlutinn megi kúga meiri- hlutann vegna formsatriða,“ segir Garðar. Landeigendafélag Geysis telur að úrskurðurinn veki spurningar um eignarrétt og geti tafið fyrir nauðsyn- legri verndun og uppbyggingu á Geysissvæðinu. Gjaldtaka inn á Geysissvæðið hófst 15. mars og kostaði 600 krónur að fara um svæðið. - jme Talsmaður landeigenda segir að meirihlutinn megi kúga minnihlutann: Lögbann við gjaldtöku við Geysi FRÍTT INN Gestir sem koma á Geysissvæðið eru ekki lengur rukkaðir um aðgangseyri að svæðinu. Talsmaður land eig- enda félagsins segir að menn séu að íhuga næstu skref í mál- inu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sigrún, voruð þið að renna blint í sjóinn? „Nei, við höfum marga fjöruna sopið.“ Sigrún Þuríður Geirsdóttir og aðrir meðlimir í sjósundshópnum Sækúnum fengu nýverið verðlaun fyrir lengsta tímann í sjónum þegar þær syntu Ermarsundið á 19 klukkustundum, 38 mínútum og 8 sekúndum. VIÐSKIPTI Tölvuleikjaframleið- andinn CCP hefur hætt þróun á tölvuleiknum World of Darkness, sem hefur verið í vinnslu á skrif- stofu fyrirtækisins í Atlanta í Bandaríkjunum. Í kjölfar þess- arar ákvörðunar eru lögð niður 56 stöðugildi hjá CCP í Atlanta. Hilmar Veigar Pétursson, fram- kvæmdastjóri CCP, segir í til- kynningu að þessi ákvörðun sé ein sú erfiðasta sem hann hafi tekið. „Okkur dreymdi um leik sem færði spilarann í ævintýraheim World of Darkness, en verðum að horfast í augu við að það verður ekki að veruleika. Ég vona að við getum einhvern tímann bætt ykkur þetta,“ segir Hilmar. - fbj Hætta framleiðslu á WoD: CCP segir upp starfsmönnum KÖNNUN Samkvæmt nýrri könnun Capacent Gallup mælist Samfylk- ingin með mest fylgi í Reykjavík eða 28 prósent, fjórum prósentu- stigum meira en fyrir mánuði. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 25 prósent, einu prósentustigi meira en í síðustu könnun. Fylgi Bjartrar framtíðar eykst um eitt prósentustig á milli kann- ana og mælist 24 prósent. Aðrir flokkar fá minna fylgi samkvæmt könnun Capacents. Píratar mælast með 10 prósent og VG með sjö prósent. Fylgi beggja flokkanna dalar um þrjú prósentustig. Framsóknarflokk- urinn og Dögun mælast loks með þriggja prósenta fylgi. - jme VG og Píratar tapa fylgi: Samfylkingin eykur fylgi sitt SPURNING DAGSINS SEGLAGERÐIN ÆGIR Þar sem ferðalagið byrjar FERÐAVAGNAR Þegar þú vilt gæði Það að myndefnið sé skoðað aftur og aftur og sé í dreifingu er í raun sem síendurtekið ofbeldi gegn þolandanum. Erna Reynisdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla– Save the Children á Íslandi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.