Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 30
KYNNING − AUGLÝSINGSumardekk ÞRIÐJUDAGUR 15. APRÍL 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s.512-5447
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Umferðarstofa hvetur bíleig-endur eindregið til að gera samanburð á hjólbörðum
með tilliti til öryggis og kostnaðar.
Í einhverjum tilfellum eru dýrari
hjólbarðar endingarbetri og getur
raunkostnaður þeirra því verið
minni.
Hjólbarðar mynda einu snert-
ingu bílsins við veginn. Því er
mikilvægt að hjólbarðar séu alltaf
í góðu lagi og ættu ökumenn að
athuga ástand þeirra reglulega.
Eftirtalin atriði skyldi ávallt
hafa í huga varðandi hjólbarða:
Loftþrýstingur
Athugið hvort loftþrýstingur sé
réttur miðað við stærð hjólbarða.
Sé loftþrýstingur of mikill eða of
lítill minnkar snertif lötur hjól-
barðanna og veggrip þeirra um
leið. Upplýsingar um réttan loft-
þrýsting er yfirleitt að finna í hand-
bók bílsins en einnig má spyrjast
fyrir hjá aðilum sem þekkja vel til,
svo sem bifvéla virkjum, starfs-
mönnum hjólbarðaverkstæða og
skoðunarstöðva.
Jafn loftþrýstingur í hjólbörð-
unum er einnig mikilvægur; að
sami þrýstingur sé í hvoru aftur-
hjóli og sami þrýstingur í hvoru
framhjóli.
Mynstur og slit hjólbarða
Bíleigendur þurfa að fylgjast með
sliti á hjólbörðum bíla sinna enda
minnkar veggrip þeirra við slit og
þar með öryggi. Samkvæmt reglu-
gerð má dýpt mynsturraufa í hjól-
barða ekki vera minni en 1,6 mm.
Sama gerð hjólbarða undir
öllum bílnum
Hjólbarðar undir bifreið sem er
3.500 kíló eða minna að leyfðri
heildarþyngd skulu allir vera
sömu gerðar.
Hjólbarðar sem hæfa aðstæðum
Afar brýnt er að ökumenn noti
ávallt dekk sem hæfa að stæðum
sem þeir aka við hverju sinni.
Þannig gengur engan veginn að
aka um á sléttum sumardekkjum
í hálku eða ófærð. Ökumönnum
ber þó ekki skylda samkvæmt um-
ferðarlögum til að nota vetrarhjól-
barða þegar vetrarfærð ríkir þótt
eindregið sé mælt með því.
Hjólbarðastærð og áhrif á hraða
Ökutæki skráð á Íslandi eru
flutt til landsins með fyrir fram
ákveðna stærð af hjólbörðum, sem
er mjög mismunandi eftir öku-
tæki og framleiðanda. Þessir hjól-
barðar slitna eins og aðrir hjól-
barðar og þarf að skipta út með
tímanum. Þá er mikilvægt að ekki
séu settir minni eða stærri hjól-
barðar undir ökutækið í staðinn.
Við það að setja minni hjólbarða
undir ökutækið fer það hægar en
hraðamælir gefur til kynna og
séu stærri hjólbarðar settir undir
ökutækið verður hraðinn meiri en
hraðamælir gefur tilkynna.
Frávik eru leyfð á milli hraða
og hraðamælis. Leyfilegt frávik
hraðamælis er allt að 10 prósent
yfir raunhraða að viðbættum 4
km/klst. Hraðamælir má aldrei
sýna meira en 4 prósentum minni
hraða en raunhraða.
Heimild: Umferðarstofa.
Jarðtenging við vegi
Seljendum hjólbarða er skylt að hafa upplýsingar um samræmdar gæðaprófanir
hjólbarða á þar til gerðum merkingum sem límdar eru á hjólbarðana. Um það
kveða reglur sem tóku gildi 1. nóvember 2012. Þar með geta kaupendur gert
mjög áreiðanlegan samanburð á gæðum, kostum og öryggi hjólbarða.
Hjólbarðar mynda einu snertingu ökutækis við veginn og því er mikilvægt að hjólbarðar séu ávallt í góðu lagi og með réttum loftþrýstingi.
ALL BAJA MTZ RADIALS FEATURES
ht.is
SELFOSS • REYKJANESBÆR • AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • REYKJAVÍK
Nikon School
námskeið fylgir!
24,2 Megapixla
C-MOS myndflaga
Nikon D3200KIT1855VR
Stafræn SLR myndavél með 24,2 milljón punkta
upp lausn, 24,2 mm CMOS flögu á DX-sniði,
EXPEED 3, ISO 100-6400 (fer í 12800), 3” LCD
skjá, Active D-Lighting, D-Movie FHD hreyfimynd,
umhverfis- og brellustillingum, hraðri raðmyndatöku,
tvöföldu rykhreinsikerfi, HDMI C út ofl.
VR LINSA MEÐ HRISTIVÖRN
STAFRÆN SLR MYNDAVÉL
TILBOÐ
FULLT VERÐ 109.995
99.995
NIKON FERMINGARTILBOÐ
Þráðlaust farsímatengi
að verðmæti 11.990 fylgir!
Nú með nýrri
og léttari
linsu!
STÆRSTI FRAMLEIÐANDI DEKKJA
Þótt danski leikfangarisinn LEGO framleiði ekki hefðbundin dekk getur
fyrirtækið þó státað af því að vera stærsti framleiðandi dekkja í heiminum.
Árið 2012, sama ár og fyrirtækið fagnaði 50 ára afmæli LEGO-dekksins,
hlaut það viðurkenningu frá Heimsmetabók Guinness sem stærsti fram-
leiðandi dekkja í heiminum en árið 2012 framleiddi LEGO 318 milljónir
dekkja. Það þýðir að á hverjum degi eru framleidd yfir 870.000 dekk í verk-
smiðjum fyrirtækisins, víða um heim.
Verksmiðjur LEGO framleiða dekk allan
sólarhringinn, 365 daga ársins, enda hefur
yfir helmingur leikfanga fyrirtækisins ein-
hvers konar dekk.
Áður en fyrsta LEGO-dekkið var framleitt og
sett á markað árið 1962 voru hefðbundnir
kubbar notaðir til að útbúa dekk. Fyrsta
LEGO-dekkið tilheyrði leikfangasetti nr. 400
frá fyrirtækinu. Þar mátti meðal annars finna
sjúkrabíl og slökkviliðsbíl. Fimm árum síðar var settið það söluhæsta hjá
fyrirtækinu en þá seldust rúmlega 820 þúsund kassar á heimsvísu.
Minnsta dekkið er 14,4 millimetrar og tilheyrir litlum tveggja sæta bíl.
Stærsta dekkið er hins vegar 10,7 sentímetrar og er undir Power Puller-
tryllitækinu.