Fréttablaðið - 15.04.2014, Side 46
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 34
TÓNLIST ★★★★ ★
Tectonics
Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn
Ilans Volkov.
FIMMTUDAGINN 10. APRÍL Í ELDBORG
Í HÖRPU
Ég man ekki eftir að hafa orðið
hræddur á Sinfóníutónleikum
áður. En tónlistarhátíðin Tect-
onics byrjaði á fimmtudags kvöldið
og fyrsta atriðið á Sinfóníutón-
leikunum sem ég sótti var eftir
Pál Ívan frá Eiðum. Verkið byrj-
aði með drungalegum, ómstríðum
hljómum – en það var ekki það sem
var svona óhugnanlegt.
Nei, málið var að allir hljóðfæra-
leikararnir störðu á tvo stóra skjái
sem hafði verið komið fyrir þar
sem hljómsveitarstjórinn er venju-
lega. Á skjánum birtust síbreyti-
leg fyrirmæli til tónlistarfólks-
ins. Hljóðfæraleikararnir störðu
svo einbeittir á skjáina á meðan
þeir voru að spila að það var eins
og þeir væru í einhverju annarlegu
ástandi. Í þokkabót voru fyrirmæl-
in frá tónskáldinu stundum þau að
spilararnir áttu að kyrja „aaaaa“.
Eða halda strengjabogunum í ein-
hverjum skrýtnum stellingum. Það
fór um mig, svei mér þá. Eina sem
vantaði var að hljómsveitin væri
blóðug um munninn. Hún var eins
og hópur uppvakninga úr kvik-
mynd á borð við 28 Days Later eða
Night of the Creeps.
Að því sögðu var þetta ágæt-
is verk. Tónlistin var vissulega
dálítið krefjandi en hún var snyrti-
lega byggð upp með frekar hraðri
og spennandi framvindu. Leik-
rænu tilburðir Sinfóníunnar settu
líka tónmálið í skiljanlegt sam-
hengi. Útkoman var skemmtileg.
Allt öðruvísi kvikmyndastemn-
ing var ríkjandi í næsta verki,
Átján hundruð sjötíu og fimm fyrir
hljómsveit og rafhljóð eftir Valgeir
Sigurðsson. Mikið var um langa,
ísmeygilega hljóma sem sköpuðu
myndræna áferð og andrúmsloft.
Það var fallegt. Eini gallinn var að
ýmsir blásarar hljómsveitarinnar
voru ekki alltaf með sitt á hreinu.
Óhreinir tónar trufluðu upplif-
unina.
Flutningurinn var betri í tón-
smíð Cathy Milliken, Earth Plays
I. Í tónleikaskránni stóð að hún
væri um „hljóm, tónlist og orð
fólks sem hefur safnast saman á
tilteknum stöðum í gegnum ald-
irnar“. Verkið nú fjallaði um Þing-
velli. Ég verð að viðurkenna að ég
gat ekki heyrt neitt Þingvallatengt
við tónlistina. En hún var listilega
samansett, með mörgum ólíkum
köflum sem mynduðu sterka heild.
Það var ljúft að hlusta á hana.
Hljómsveitin flutti hana af vand-
virkni og fagmennsku.
Upplifunin var líka ljúf í næsta
atriði, Köldum sólargeisla eftir
Skúla Sverrisson við ljóð eftir
Guðrúnu Evu Mínervudóttur.
Ljóðið er tregafullt og rómantískt,
og tónlist Skúla var það einnig.
Hljómarnir voru þykkir og mun-
úðarfullir, undiraldan full af ein-
hverju ósögðu. Ólöf Arnalds söng
einsöng og gerði það af einstakri
fegurð. Hún hefur sérstæða rödd,
brothætta og mannlega með hríf-
andi hljómi sem hæfði tónlistinni
fullkomlega.
Síðast á dagskránni var glæsi-
legt, einfalt verk, Diamonds eftir
heiðursgest hátíðarinnar, Alvin
Lucier. Þar var hljómsveitinni
skipt í þrjá hópa sem hver um sig
spilaði langa, hægferðuga tóna.
Tónarnir sköruðust á ýmsa vegu
eins og demantur sem breytist
eftir því hvernig ljósi er beint að
honum. Hljómsveitin lék af mik-
illi nákvæmni sem getur varla
hafa verið auðvelt. Svona hægar
tónsmíðar verða að vera fullkom-
lega samtaka ef þær eiga að virka
almennilega. Þarna var virkilega
vel gert.
Jónas Sen
NIÐURSTAÐA: Áhugaverð byrjun á
Tectonics-tónlistarhátíðinni.
Zombíar á Sinfó
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS „Hljómsveitin lék af mikilli nákvæmni sem getur
varla hafa verið auðvelt.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA3 verð á rúmfötum
7.990 kr 8.990 kr 9.990 kr
STÓRSÖNGVARINN Þór Breiðfjörð syngur
lög úr Amerísku söngbókinni í kvöld.
Á jazzkvöldi KEX Hostels í
kvöld kemur fram hljómsveit
söngvarans Þórs Breiðfjörð.
Hana skipa, auk Þórs, þeir
Snorri Sigurðarson á trompet,
Vignir Þór Stefánsson á píanó,
Birgir Bragason á kontrabassa
og Einar Scheving á trommur.
Sérstakur gestur með þeim
verður kvikmyndagerðarmaður-
inn góðkunni Ágúst Guðmunds-
son, en hann mun leika á gítar
í nokkrum lögum. Flutt verður
tónlist úr stóru Amerísku söng-
bókinni; sígræn sönglög sem
„krúnerar“ á borð við Bing
Crosby gerðu fræg. Tónlistar-
flutningurinn hefst klukkan
20.30 og stendur í um það bil
tvær klukkustundir með hléi.
Sem fyrr er aðgangur ókeypis.
Ágúst verður gestur Þórs
Kvikmyndaleikstjórinn Ágúst Guðmundsson verður sérstakur gestur Þórs
Breiðfj örð á tónleikum hans og hljómsveitar hans á KEX Hosteli í kvöld.
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
4BLSBÆKLINGURNETBÆKLINGUR Á WWW.TOLVUTEK.IS MEÐ GAGNVIRKUM KÖRFUHNAPP
ÆVINTÝR
A
PÁSKAEG
G
FYLGIR Ö
LLUM ACE
R
FARTÖLVU
M TIL PÁS
KA
MEÐAN B
IRGÐIR EN
DAST
Fyrstu tónleikar Blúshátíðar í
Reykjavík í ár verða á Hilton
Nord ica í kvöld.
Þar kemur fram Blúskompaní
Magnúsar Eiríkssonar en ásamt
honum skipa tríóið þeir
Pálmi Gunnarsson og KK.
Magnús og Pálmi hafa leitt
Blúskompaníið hátt í 40 ár
og verða sífellt betri.
Einnig stígur hin
goðsagnakennda
hljómsveit
Tregasveitin á
svið með feðg-
ana Pétur Tyrf-
ingsson og Guðmund Pétursson í
fararbroddi með splunkunýtt efni.
Lucy in Blue var valið blús-
aðasta bandið á nýyfirstöðnum
Músíktilraunum og í tilefni af
því tekur sveitin
þátt í Blúshátíð
í fyrsta sinn.
Tónleikarnir
hefjast kl. 20.
Fyrstu tónleikar Blúshátíðar í Reykjavík á Hilton Nordica:
Blúshátíð hefst með trukki
BLÚSAÐUR Magn ús
Eiríksson leiðir
Blúskompaníið sem auk
hans er skipað Pálma
Gunnarssyni og KK.
MENNING