Fréttablaðið - 15.04.2014, Page 55
ÞRIÐJUDAGUR 15. apríl 2014 | LÍFIÐ | 43
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran
var gestur í útvarpsþætti Elvis
Duran á útvarpsstöðinni Z100
og flutti sína útgáfu af Beyoncé-
smellinum Drunk in Love.
Flutningur Eds vakti mikla
athygli en hann var í útvarps-
þættinum til að kynna nýju plöt-
una sína X, sem kemur út þann
23. júní.
Ed er þekktur fyrir að setja lög
annarra í nýjan búning og hefur
til dæmis gert þetta með lög
Blackstreet og Rihönnu. - lkg
Setur Beyoncé
í nýjan búning
FJÖLHÆFUR Ed Sheeran er með engla-
rödd. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Tónlistarkonan Lily Allen hefur
í nægu að snúast þessa dagana
við að kynna nýju plötuna sína
Sheezus.
Lily segir í viðtali við Tele-
graph að hún tileinki Amy heit-
inni Winehouse plötuna en þær
voru kunningjakonur.
„Hún var ekki á góðum stað
þegar við kynntumst þannig að
mér finnst ég ekki hafa þekkt
Amy, ég þekkti útgáfu af henni,“
segir Lily.
„Hún þurfti að kljást við
tíu sinnum meira en ég. Hún
seldi miklu fleiri plötur en ég
og það var miklu meiri áhugi
fyrir henni. Það var fólk fyrir
utan heimili hennar allan sólar-
hringinn, alla daga vikunnar.
Hún gat ekki gert neitt án þess
að það ylli æsingi og hún elskaði
að skemmta sér og kynnast fólki.
Hún var fangi þegar það var
tekið af henni,“ bætir Lily við.
- lkg
Tileinkar Amy
nýju plötuna
KUNNINGJAKONUR Lily þekkti Amy
lítillega. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
„Ég útskrifaðist sem tamninga-
maður árið 2002 og var að vinna
við það í svolítinn tíma. Ég hafði
mikinn áhuga á að hafa mynd-
bandið hestatengt,“ segir söng-
konan og tónsmiðurinn Bryn-
hildur Oddsdóttir. Hún tók
nýverið upp tónlistarmyndband
við fyrstu sólósmáskífuna sína
Óumflýjanlegt og fékk lánaðan
graðhestinn Pilt frá Hæli í tök-
urnar.
„Ég hefði ekki getað fengið
betri hest. Hann var algjör snill-
ingur. Þetta er þolinmóðasti
hestur sem ég hef á ævi minni
kynnst. Hann stóð grafkyrr á
milli taka eins og ekkert væri,“
segir Brynhildur en vinkona
hennar, Eva Rut Hjaltadóttir,
leikstýrði myndbandinu, tók það
upp og klippti.
Brynhildur lærði á fiðlu sem
krakki og lærði söng í Nýja tón-
listarskólanum. Árið 2011 klár-
aði hún síðan tónsmíðanám við
Listaháskóla Íslands. Núna er
hún líka að læra á rafmagns-
gítar hjá Félagi íslenskra hljóm-
listarmanna og er á framhalds-
stigi í djasssöng. Þá er hún einnig
í hljómsveitinni Beebee and the
Bluebirds sem gefur út plötu í
maí. Það er því í nægu að snúast
hjá Brynhildi.
„Lagið Óumflýjanlegt er hluti
af sólóverkefninu mínu. Þetta
lag er verk sem stendur eitt og
sér með myndbandinu en ég ætla
að gera sólóplötu á þessu ári.
Það er allavega stefnan,“ segir
Brynhildur. Hún treður upp á
Blús hátíð Reykjavíkur á Hilton
Nordica á fimmtudaginn sem
sólólistamaður.
„Ég opna kvöldið en sama
kvöld spila einnig Egill Ólafs-
son, Dóri Braga og Andrea Gylfa-
dóttir.“ - lkg
Hestur leikur aðalhlutverk í myndbandinu
Brynhildur Oddsdóttir tók upp myndband við lagið Óumfl ýjanlegt og fékk graðhest lánaðan í tökurnar.
GEKK EINS OG Í SÖGU Brynhildur er
lærður tamningamaður.
MYND/EVA RUT HJALTADÓTTIR
Þetta er þolin-
móðasti hestur sem ég hef
á ævi minni kynnst.
Brynhildur Oddsdóttir