Fréttablaðið - 15.04.2014, Qupperneq 58
15. apríl 2014 ÞRIÐJUDAGUR| SPORT | 46
GOLF Gerry Lester „Bubba“ Wat-
son er ekki steyptur í golfmótið.
Þegar hann var lítill drengur sag-
aði faðir Bubba ofan af níu-járni
fyrir hann og sendi hann út í garð
með litla loftbolta. Hann fékk
stutta kennslu frá föður sínum um
hvernig halda skyldi á kylfunni og
sveifla. Meira var það ekki.
Bubba Watson hefur ekki sótt sér
neina golfkennslu síðan. Hann
kenndi sér sjálfur og er nú orðinn
tvöfaldur Masters-meistari eftir
frábæra frammistöðu á Augusta
National-vellinum á sunnudaginn
þar sem hann hafði betur í barátt-
unni við hinn unga Jordan Spieth.
Bubba fékk græna jakkann
aftur, í annað sinn á þremur árum,
og er þar með kominn í hóp með
mönnum á borð við Ben Hogan,
Byron Nelson, Tom Watson og
Seve heitnum Ballesteros. Hóp
sem flestir væru til í að tilheyra.
Bubba afgreiddi þá mýtu algjör-
lega að hann væri eitthvert „one
hit wonder“.
Spilar golf á sinn hátt
Sigurinn á Masters að þessu sinni
var ekki jafn dramatískur og
fyrir tveimur árum þegar hann
bauð upp á eitt ótrúlegasta högg
golfsögunnar í bráðabana. Nú var
hann reyndi kylfingurinn sem hélt
haus og talaði um það alla helgina
að hitta flatirnar. Á sama tíma
brotnaði Spieth.
Það var þó ekki þar með sagt
að Bubba væri ekki lengur sá
skemmtilegi og óútreiknanlegi
kylfingur sem golfheimurinn er
fyrir löngu byrjaður að elska.
Hann sagðist eftir mótið oftar
hafa beðið kylfusvein sinn um ráð
og spurt hver væri skynsamlegasti
kosturinn. Bubba fór þó ekki alltaf
eftir ráðleggingunum. Það er bara
ekki hans stíll.
Besta dæmið um það var á 15.
holu á lokahringnum þegar hann
missti boltann aðeins út fyrir
braut. Í staðinn fyrir að leggja
hann örugglega inn á brautina
aftur og nota þriðja höggið til að
setja sig eins nálægt pinna og
hægt var negldi Bubba boltanum
bara inn á flöt úr erfiðri stöðu.
Þetta myndi engum öðrum detta í
hug í þessari stöðu.
„Ég geri allt á minn hátt,“ sagði
Bubba Watson eftir sigurinn á
sunnudaginn. Hann laug engu.
Erfitt að verja titilinn
Bubba náði aðeins 50. sæti á
síðasta Masters-móti þegar hann
kom til að verja titilinn. Það
reyndist honum um megn. Hann
var í raun enn að átta sig á því
sem hann hafði afrekað ári áður.
Bubba hafði komið svo langa leið
og unnið stærsta mótið. „Þið verðið
að átta ykkur á því hvaðan ég kem.
Pabbi vann í byggingarvinnu og
mamma vann tvö störf til að ég
gæti stundað golf,“ sagði Bubba.
Hann var þá einnig nýbúinn að
ættleiða soninn Caleb með konu
sinni Angie. Eiginkona Bubba til-
kynnti honum á fyrsta stefnumóti
að hún gæti ekki eignast börn og
þurftu þau því að grípa til ættleið-
ingar. Eftir nokkrar misheppn-
aðar tilraunir fengu þau Caleb
og það sem var að gerast utan
vallar var einfaldlega of mikið
fyrir hinn tilfinningaríka Bubba
Watson.
„Ég þurfti að læra að greiða úr
mínum málum á minn hátt. Það
tók mig bara svolítið langan tíma
að finna einbeitinguna og drif-
kraftinn aftur sem kom mér aftur
hingað,“ sagði Bubba Watson sem
faðmaði son sinn og konu og grét
af gleði eins og svo oft áður þegar
sigurpúttið steinlá á 18. flötinni á
Augusta-vellinum.
Hráir hæfileikar
„Hann er svo hugmyndaríkur og
snjall spilari. Hann er með svo
hráa og náttúrulega hæfileika.
Bubba er eiginlega snillingur en
samt maður sem hefur þurft að
hafa fyrir sínu,“ sagði Paul Azin-
ger, fyrrverandi fyrirliði Ryder-
liðs Bandaríkjanna, um Bubba um
helgina er hann var að lýsa mótinu
á einni sjónvarpsstöðinni.
Bubba er svo sannarlega hrár.
Sveiflan hans er langt frá því að
vera falleg eins og svissneska
klukkuspilið sem margir mót-
herjar hans bjóða upp á. Bubba
slær boltann og slær hann fast.
Hann slær líka lengst á móta-
röðinni en um helgina fóru teig-
höggin hans að meðaltali 280
metra.
„Maður verður bara að nota sína
sveiflu. Það er það sem ég segi við
alla. Ég geri bara það sem ég þarf
að gera til að vinna mót. Mér er
alveg sama þó sveiflan sé ljót. Ég
vil bara vinna og sem betur fer
er ég búinn að gera það tvisvar
hérna,“ sagði Bubba eftir Masters-
mótið en hann vildi þó lítið vera að
láta nefna sig í sömu setningu og
aðrar hetjur sem unnið hafa mótið
tvisvar.
„Ég er bara að reyna að halda
PGA-kortinu mínu. Ef fólk segir að
ég sé góður spilari þá er það bara
flott. En ég spila ekki golf til að
heyra fólk segja hversu frábær ég
er. Ég spila golf því ég elska það,“
sagði Bubba Watson.
tom@frettabladid.is
Geri allt á minn hátt
Hrái töframaðurinn Bubba Watson vann Masters öðru sinni og komst í hóp með
risanöfnum sögunnar. Kenndi sér sjálfur og fagnaði með ættleiddum syni.
ENGUM LÍKUR Bubba Watson með ættleidda soninn Caleb Watson eftir sigur á
Masters 2014 á Augusta-vellinum í Georgíuríki. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
FÓTBOLTI KV, sem leikur í 1. deild í
fyrsta skipti í níu ára sögu félags-
ins í sumar, gerði jafntefli við
Pepsi-deildarlið Víkings, 2-2, í
lokaumferð 3. riðils A-deildar
Lengjubikarsins í fótbolta síðast-
liðið föstudagskvöld. Úrslitunum
hefur þó verið breytt í 3-0 sigur
Víkinga því KV-menn notuðust
við ólöglegan leikmann í leiknum.
Davíð Steinn Sigurðarson,
miðjumaður KV, fékk sitt þriðja
gula spjald í leiknum á undan gegn
Víkingum úr Ólafsvík og hefði því
átt að taka út leikbann en það yfir-
sást KV-mönnum.
Davíð Steinn er í láni frá Vík-
ingum en hafði fengið leyfi til að
spila leikinn, ólíkt því þegar liðin
mættust í Borgunarbikarnum síð-
asta sumar.
Leikurinn verður eftirminni legur
fyrir Davíð þar sem hann mætti
bróður sínum, Halldóri Smára Sig-
urðarsyni, í fyrsta skipti á knatt-
spyrnuvellinum en Halldór hefur
leikið allan sinn feril með Víkingi.
„Leikurinn í kvöld mun seint
gleymast en KV og Víkingur mætt-
ust þar sem ég og stóri bróðir byrj-
uðum á sitthvorri miðjunni,“ skrif-
aði Davíð Steinn á Instagram-síðu
sína eftir leik.
Þessi bræðraslagur kostaði KV
þó þrjú stig en það hafði engin
áhrif á lokastöðu riðilsins. KV
komst ekki áfram en Víkingar
enduðu í 2. sæti og mæta Breiða-
bliki í átta liða úrslitum.
FH notaði einnig ólöglegan leik-
mann í 3-2 sigri á Fjölni í næst-
síðustu umferð 1. riðils. Það varð
til þess að Þór fór upp fyrir FH
í 1. sæti riðilsins og hefur það í
för með sér breytingar á átta liða
úrslitum Lengjubikarsins.
Í stað þess að mæta Keflavík
í átta liða úrslitum mætir FH nú
Stjörnunni en Þórsarar mæta Kefl-
víkingum í átta liða úrslitum. - tom
Bræðraslagur kostaði þrjú stig
FH og KV notuðu ólöglega leikmenn í lokaumferðum Lengjubikarsins í fótbolta.
LITLI BRÓÐIR Davíð Steinn Sigurðar-
son var í banni. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
OG
3FALDIR
Vildarpunktar
Icelandair
alla páskana
15.–21. apríl
Dæmi: 10.000 kr. áfylling
gefur 450 Vildarpunkta.
-12KR.
AF BE
NSÍN
I OG D
ÍSEL
Í DAG
ÞRIÐ
JUDA
G
með
lykli,
Stað
greið
slu- o
g
Tvenn
ukort
i Olís
Til að safna Vildarpunktum Icelandair með Olís-lyklinum
þarf að hafa hann tengdan Visa Icelandair korti,
American Express vildarkorti eða Einstaklingskorti Olís.
Einnig er hægt að safna punktum með Sagakorti.
Nánari upplýsingar um vildarkerfi Olís eru á
olis.is/vidskiptakort/vildarkerfi
PI
PA
R\
TB
W
A
-
SÍ
A
-
14
11
20