Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 6

Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 6
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Prófaðu Sensodyne vörurnar og finndu muninn. Sensodyne fyrir viðkvæmar tennur D Y N A M O R E Y K JA V ÍK NÝ OG BE TRI HÖNNUN ! TANNBURSTAR OG TANNKREM FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI 1. Hversu hátt hlutfall hótela í Reykja- vík skilaði tapi 2012? 2. Hver hlaut Íslensku þýðingarverð- launin í ár? 3. Hvaða lið varð fyrst til að vinna Hauka í úrslitakeppni Olísdeildar- innar? SVÖR: 1. Sex af hverjum tíu. 2. Ingunn Ásdísar- dóttir. 3. FH. KJARADEILUR Í ályktun stjórnar Skólastjórafélags Íslands kemur fram áskorun til Sambands íslenskra sveitarfélaga um að ganga strax til samninga við grunnskólakennara. Félagið segir óumdeilanlegt að laun kennara hafi dregist aftur úr sambærilegum stéttum og séu nú óásættanleg með öllu. Þrátt fyrir þessa staðreynd neiti sveitarfélög að koma á fót nauðsynlegum leiðrétt- ingum á launakjörum stéttarinnar. Kjaraviðræður hafa nú staðið yfir í rúm tvö ár. Kennarar neyð- ist nú til að undirbúa aðgerðir til að sækja sjálfsagðar leiðréttingar á launakjörum sínum. - kóh Skólastjórar skora á stjórn: Ganga á strax til samninga VIÐSKIPTI Landsbankinn opnar í dag þjónustumiðstöð fyrir minni og meðalstór fyrirtæki að Borgar túni 33 í Reykjavík. Þang- að hafa flust allir starfsmenn fyr- irtækjaþjónustu útibúa bankans á höfuðborgarsvæðinu. Breytingunum fylgja ekki upp- sagnir starfsfólks, að því er fram kemur í tilkynningu. Nýtt fyrir- komulag er sagt gefa bankanum kost á að bjóða fyrirtækjum umfangsmeiri ráðgjöf en áður, aðgengi að sérfræðingum verði betra og hægt að afgreiða erindi hraðar. - óká Þjónusta fer á einn stað: Færa starfsfólk í Borgartún 33 BORGARTÚN Tengiliðir, símanúmer og netföng haldast óbreytt þótt fyrirtækja- þjónusta Landsbankans færist í Borgartún. FRÉTTABLAÐ IÐ /D AN ÍEL ÚKRAÍNA Rússar hafa aukið við- búnað sinn við landamæri Úkraínu og boða til nýrra heræfinga þar. Þetta gerðist í gær í beinu fram- haldi af átökum úkraínska hersins við aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu. Tveir uppreisnarmenn, hliðhollir Rússlandi, féllu í þessum átökum. Vladimír Pútín Rússlandsfor- seti hótar Úkraínu „afleiðingum“ ef Úkraínuher heldur áfram að- gerðum gegn uppreisnarmönnum: „Ef stjórnin í Kænugarði er að nota herinn gegn sinni eigin þjóð, þá er það greinilega háalvarlegur glæpur,“ sagði Pútín. Þá gera Rússar einnig kröfu á Bandaríkin. Rússneska utanríkis- ráðuneytið segir að Bandaríkin verði að „neyða núverandi stjórn- völd í Úkraínu til þess að hætta hernaðaraðgerðum í suðaustan- verðri Úkraínu“. Oleksandr Túrtsjínov, sem til bráðabirgða gegnir forseta- embættinu í Úkraínu, sakar rúss- nesk stjórnvöld hins vegar um að standa að baki uppreisnar mönnum í Úkraínu. Túrtsjínov kallar aðskilnaðarsinnana hryðjuverka- menn og krefst þess að Rússar „láti af stöðugum hótunum sínum og kúgunartilburðum“. Þá segir Andrí Desjtsjitísa, utanríkisráðherra Úkraínu, að inn- rás Rússa í Úkraínu verði svarað í sömu mynt: „Úkraínska þjóðin og úkraínski herinn eru reiðubúin til þessa verks. Úkraína mun standa gegn Rússlandi. Við munum verja landið okkar.“ Tugir þúsunda rússneskra her- manna eru þessa dagana við landa- mæri Úkraínu. Á Svartahafi eru síðan bandarískir hermenn, sem hafa verið með heræfingar þar í samvinnu við her Rúmeníu. Á hinn bóginn komu leiðtogar fyrrverandi Sovétlýðvelda, nefni- lega Armeníu, Aserbaídsjans, Georgíu, Moldóvu og Úkraínu, saman til fundar með ráðamönn- um aðildarríkja Evrópusambands- ins í Prag í gær til að styrkja sam- skiptin. Leiðtogi Hvíta-Rússlands mætti þó ekki. Mikil óvissa ríkir þó um framtíð þessa samstarfs eftir atburði vetrarins. Ólgan í Úkraína hófst í vetur eftir að Viktor Janúkóvitsj, þáver- andi Úkraínuforseti, neitaði að stað- festa samstarfssamning við Evrópu- sambandið en sneri sér í staðinn að Rússlandi. gudsteinn@frettabladid.is Pútín með hótanir gagnvart Úkraínu Úkraínskir hermenn urðu að minnsta kosti tveimur uppreisnarmönnum, hlið- hollum Rússum, að bana í gær. Rússar hafa í kjölfarið aukið viðbúnað við landa- mærin. Utanríkisráðherra Úkraínu segir að innrás Rússa verði svarað í sömu mynt. ÁTÖK Í SLAVJANSK Úkraínskir hermenn taka sér stöðu við yfirgefinn vegatálma í borginni Slavjansk, þar sem aðskilnaðarsinnar höfðu náð stjórnarbyggingum á sitt vald. NORDICPHOTOS/AFP Úkraínska þjóðin og úkraínski herinn eru reiðubúin til þessa verks. [Að svara í sömu mynt innrás Rússa.] Úkraína mun standa gegn Rússlandi. Við munum verja landið okkar. Andrí Desjtsjitísa, utanríkisráðherra Úkraínu. MENNING Hátíð Jóns Sigurðs- sonar var haldin í Jónshúsi í Kaup- mannahöfn í gær á sumar daginn fyrsta. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setti hátíðina og afhenti Verðlaun Jóns Sigurðs- sonar. Verðlaunin hlaut að þessu sinni Bertel Haarder, fyrr- verandi mennta- málaráðherra Danmerkur. Haarder var verðlaunaður fyrir framlag sitt til menningarsamstarfs Danmerkur og Íslands, sem og fyrir stuðning hans við varðveislu þjóðararfsins. Áður hefur Vigdís Finnboga- dóttir meðal annarra hlotið verð- launin. - kóh Forseti Alþingis setti hátíð: Bertel Haarder verðlaunaður SVEITAFÉLÖG Reykjanesbær vill taka yfir rekstur heilsugæslunnar þar í bæ af ríkinu. Þessu lýsti Árni Sigfússon bæjarstjóri á íbúafundi í Njarðvíkurskóla í gær. Hann sagði einnig að hann teldi það mikil- vægt að bær- inn kæmi að stjórnun Heil- brigðisstofnun- ar Suðurnesja. Á fundinum kom fram að hann hefði átt fyrstu viðræður við heil- brigðisráðherra, sem vilji gjarn- an ræða hlutverk sveitarfélaga í stjórn heilsugæslunnar og aðkomu þeirra að stjórnun sjúkrastofnana á landsbyggðinni. - skó Hefur rætt við ráðherra: Vilja taka yfir heilsugæsluna DANMÖRK Stóru bókaforlögin í Danmörku og bóka- söfnin eru í þann veginn að ná samkomulagi um útlán rafbóka. Samkvæmt frétt á vef Politiken snú- ast samningaviðræðurnar nú um að neytendur geti á einum stað fundið allar rafbækur sem hægt er að fá lánaðar. Útgefendur hafa verið óánægðir með fyrir- komulag bókasafnanna, eReolen, sem snýst meðal annars um að forlag og höfundur fái greitt í hvert skipti sem bók er lánuð út en hundruð manna geta í raun fengið lánaða vinsæla bók samtímis. Útgef- endur drógu sig út úr þessu samstarfi í fyrra- sumar. Þeir voru þeirrar skoðunar að útlán á vin- sælustu titlunum drægju úr möguleikanum á að skapa markað fyrir rafbækur í Danmörku. Útgefendur vildu að bókasöfn keyptu rétt til útláns á bók fjórum sinnum og svo aftur fjórum sinnum. Það hefði getað þýtt biðröð eftir vinsælum bókum eins og nú er raunin með prentaðar bækur, að því er segir í frétt Politiken. Bókaforlögin tóku í fyrrasumar um 2.500 titla úr eReolen og mynduðu í stað- inn þjónustuna eBib sem þýddi að bóka- söfn urðu að kaupa útlánsrétt. Bóka- söfnin í Kaupmannahöfn og Árósum hafa ekki verið með í útlánsþjónustu bókaforlaganna. - ibs Bókaforlög og bókasöfn í Danmörku hafa verið ósammála um hvernig ganga skuli um rafbækur: Reyna til þrautar að semja um útlán rafbóka SÍÐA ÚR RAF- BÓK Deilu útgef- enda og bóka- safna í Danmörku um rafbækur er að ljúka. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA BERTEL HAARDER ÁRNI SIGFÚSSON VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.