Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 12
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
MUNKUR Á BÆN Í SUÐUR-KÓREU Við höfnina í Jindo í Suður-Kóreu, þangað sem ferð
ferjunnar Sewol sem fórst í síðustu viku var heitið, sat þessi munkur í gær og bað guði sína
um að þeir farþegar ferjunnar sem enn er saknað væru heilir á húfi eftir allt saman.
BRÚARVIÐGERÐ Í VÍETNAM Verkamenn hafa undanfarið unnið að viðgerð á
þessari gömlu járnbrautarbrú í Hanoí, höfuðborg Víetnams. Brúin var reist seint á
19. öld, þegar Frakkar réðu ríkjum í Víetnam. NORDICPHOTOS/AFP
SORG Í BANGLADESS Efnt var til mótmæla í Bangladess í gær, þegar rétt ár var liðið frá því að 1.138 manns létu lífið þegar
bygging hrundi til grunna í úthverfi höfuðborgarinnar Daka. Í byggingunni voru fataverksmiðjur, þar sem framleidd voru föt
meðal annars fyrir þekktar vestrænar verslunarkeðjur. NORDICPHOTOS/AFP
SPRENGJULEIT Í KENÍA Lögregluþjónar í Naíróbí, höfuðborg Kenía, stöðva för fólks á meðan leit stóð yfir að sprengiefnum í
bifreið, daginn eftir að önnur bílasprengja sprakk með þeim afleiðingum að tveir lögreglumenn létu lífið.
RAÐA RIFFLUM Í KÍNA Kínverskur heiðursvörður býr sig undir heimsókn Margrétar
Danadrottningar, en Xi Jinping Kínaforseti tók á móti henni í Peking í gær.
ÁSTAND
HEIMSINS
1
1
4
4
5
5
2
2
3
3