Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 14
BÝÐUR ÞITT FYRIRTÆ
Aðgengi skiptir máli!
Á Íslandi eru u.þ.b. 7.000 einstaklingar í hjólastól og
meðaltal nærfjölskyldunnar eru 15 einstaklingar. þetta eru
um 112.000 einstaklingar, eða ríflega 1/3 hluti þjóðarinnar.
Slæmt aðgengi snertir því þriðjung þjóðarinnar!
Við getum ráðlagt þér að kostnaðarlausu um einfaldar og
auðveldar lausnir til að bæta hjólastólaaðgengi.
Sjá Facebook: Aðgengi skiptir máli.
Guðjón Sigurðsson
Starfsmaður OR og formaður MND
félagsins. Giftur, á 3 dætur, tvo
tengdasyni, foreldra, tengdafor-
eldra, bróður, 10 mága, mágkonur,
og svilfólk, 3 móðursystkini og
maka og 13 systkinabörn.
Samtals 36 í nærfjölskyldunni.
Lárus H. Jónsson
Á 2 börn, 1 tengdason, foreldri,
5 systkini, 3 mága og mágkonur
og 19 systkinabörn.
Samtals 31 í nærfjölskyldunni.
Ingunn Jónsdóttir
MA í Mannauðsstjórnun og
kennaramenntuð. Á eitt barn,
foreldra, afa, bróður, mágkonu og
3 systkinabörn.
Samtals 10 í nærfjölskyldunni.
Jóhann Rúnar Kristjánsson
Afreksmaður í íþróttum og
þjónustufulltrúi hjá VSFK. Giftur, á
4 börn og eitt barnabarn, foreldra,
tengdaforeldra, systur, 2 mága,
4 systkinabörn, 8 föður- og
móðursystkini.
Samtals 28 í nærfjölskyldunni.
Samkvæmt byggingarreglugerð frá árinu 1979 ætti ekki að vera til
almenningsstaður á Íslandi sem ekki er aðgengilegur öllum, hún
hljóðar svona:
6.10.1.4. Aðkoma að opinberum byggingum, s.s. pósthúsum, verslunum,
sjúkrahúsum, skólum, kirkjum, bókasöfnum, sundlaugum, leikhúsum,
kvikmyndahúsum, bönkum, apótekum o.s.frv., skal vera þannig að unnt sé
fyrir fólk í hjólastól að komast þar inn og út hjálparlaust.