Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 17

Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 17
FÖSTUDAGUR 25. apríl 2014 | SKOÐUN | 17 Opinn ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur 2014 Breytt stefna, bættir stjórn- hættir, traustari fjárhagur Orkuveita Reykjavíkur heldur opinn ársfund, á morgun, föstudaginn 25. apríl kl. 14:00-16:00 á Bæjarhálsi 1. Markmið fundarins er að auka gegnsæi í starfseminni og stuðla að upplýstri umræðu um málefni fyrirtækisins. Gildi Orkuveitu Reykjavíkur eru framsýni, hagsýni og heiðarleiki. Dagskrá • Jón Gnarr borgarstjóri setur fund • Eigendastefna og sameignarsamningur Dagur B. Eggertsson, formaður eigendanefndar. • Umbætur í stjórnháttum innan Orkuveitu Reykjavíkur Haraldur Flosi Tryggvason, formaður stjórnar. • Kvennakórinn Hrynjandi tekur lagið • Umhverfið og auðlindirnar Hildigunnur H. Thorsteinsson, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs. • Stærsta hindrunin að baki Bjarni Bjarnason forstjóri. • Hvernig er eiginlega að vinna hjá þessari Orkuveitu? Hildur Ingvarsdóttir, forstöðumaður viðhaldsþjónustu. • Fyrirspurnir og umræður Fundarstjóri verður Elín Smáradóttir lögfræðingur. Rekstur Orkuveitu Reykjavíkur hefur tekið stakkaskiptum á síðustu árum. Ný lög gilda um fyrirtækið og eigendur hafa markað því sameigin lega stefnu. Stjórn fyrirtækisins hefur skerpt á starfsreglum sínum og stjórnháttum en um áramót var starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur skipt upp í samkeppnisrekstur og sérleyfisrekstur að lagaboði. Á sama tíma hefur verið glímt við mikinn skulda- og rekstrarvanda. Árangur þeirrar baráttu hefur vakið mikla athygli. Þetta verða helstu umfjöllunarefni opna ársfundarins 2014. Fyrir rúmum 120 árum var styttri vinnutími megin- krafan í fyrstu kröfu- göngunni sem farin var á alþjóðlegum baráttudegi verkafólks, 1. maí. Bar- áttan fyrir mannsæmandi vinnutíma hafði þegar kostað blóðug átök – nú var kominn vettvangur fyrir launafólk að koma saman og láta að sér kveða. Smám saman varð 1. maí að þeim alþjóðlega baráttudegi sem við tökum stolt þátt í hér á landi. Við minnumst þess að réttindin sem við njótum í dag eru til komin vegna fórna þeirra sem á undan okkur gengu. Þess vegna er 1. maí frídagur – þess vegna förum við í kröfugöngu á þessum degi. Blóðug átök og verkföll Upphaf þess að 1. maí var gerður að alþjóðlegum baráttudegi verka- fólks má rekja til kröfu banda- ríska verkalýðssambandsins um átta tíma vinnudag seint á 19. öld. Vinnudagurinn var bæði langur og strangur, tíu tímar hið minnsta, og þessari kröfu hafði lengið verið haldið á lofti. Þann 1. maí árið 1886 lögðu hundruð þúsunda manna niður störf víðs vegar um Bandaríkin til að leggja áherslu á kröfuna um átta stunda vinnudag. Æ fleiri bættust í hópinn á næstu dögum og í Chicago kom til blóðugra átaka milli lögreglu og almenn- ings á samstöðufundi á Haymarket-torginu. Mann- fall varð í röðum beggja og fjöldi særðist. Bandaríska verkalýðs- sambandið hélt baráttunni áfram og ákvað að 1. maí yrði helgaður kröfunni um átta tíma vinnudag, boðað var til verkfalla um ger- vallt landið á þessum degi árið 1890. Fulltrúar á þingi Annars alþjóðasambandsins, sem haldið var í París 1889 á aldarafmæli frönsku byltingarinnar, tóku upp þessa kröfu og boðuðu til aðgerða á þessum degi 1890. Skorað var á verkalýðssamtök og verkafólk um allan heim að taka þátt. Þann 1. maí 1890 voru kröfugöngur farnar víða bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu í fyrsta skipti á þessum merka degi í sögu verkalýðshreyf- ingarinnar. Er þörf á því að hafa opið? 1. maí hefur verið lögskipaður frí- dagur á Íslandi frá árinu 1966 og flestir sem eru við störf á þessum degi vinna við að tryggja öryggi og velferð okkar hinna eða sinna þeim sem þurfa aðstoðar við. Ég segi flestir því það hefur færst í aukana að verslanir og þjónustu- aðilar hafi opið. Rauðir dagar eru frídagar og á það alveg eins við um alþjóðlegan baráttudag verkafólks og um annan dag páska, þegar margar verslanir voru lokaðar í höfuðborginni eins og eðlilegt er. Er þörf á því að hafa svona margar verslanir opnar á þessum degi sem helgaður er baráttunni fyrir réttindum launafólks? Höfum við kannski gleymt því um hvað þessi dagur snýst? Sjáumst í göngunni! Hér á landi var kröfuganga 1. maí farin í fyrsta skipti árið 1923. Þetta var á virkum degi og þurfti fólk að taka sér frí úr vinnu til að taka þátt. Kröfurnar voru margvís- legar, sumar endurspegluðu stöðu þjóðfélagsmála á þessum tíma en aðrar voru gamalkunnar, eins og segir í umfjöllun um þennan dag í sögu ASÍ. Í áranna rás hafa komið fram nýjar kröfur, en í grunninn eru þær alltaf eins. 1. maí er og hefur ætíð verið bar- áttudagur fyrir réttindum launa- fólks – dagur aðgerða þegar fólk kemur saman til að sýna mátt sinn og megin. Þótt ýmislegt hafi áunnist á síðustu áratugum er enn margt sem við þurfum að huga að og mikilvægt að halda baráttunni áfram. Í ár er yfirskrift 1. maí „Samfélag fyrir alla“. Nú beinum við kröftum okkar að því að berjast fyrir samfélagi jafnréttis og jafnra tækifæra. Ég skora á verslunareigendur að hafa lokað þann 1. maí og taka þátt í baráttunni. Við viljum öll það sama – betri kjör og mannsæmandi líf fyrir alla. Sjáumst í göngunni! Af hverju 1. maí? Evrópska heila- r á ð i ð ( T h e European Brain Council), sem hefur aðsetur í Brussel og var stofnað ár ið 2002, hefur til- nefnt árið 2014 sem ár heilans. Yfir 200 fag- og sjúklingasam- tök víðs vegar í Evrópu styðja ár heilans. Sam- kvæmt heima- síðu ráðsins eru engin íslensk samtök þar á meðal. Tauga- vísindafélag Íslands kemur þó að átakinu sem meðlimur í evrópskum samtökum taugavís- indafélaga (FENS). Markmiðið með ári heilans er meðal annars að vekja athygli á mikilvægi heilahreysti og þeim gríðarlega kostnaði sem hlýst af ýmsum langvinnum og erfiðum heilasjúkdómum. Það sem af er 2014 er áætlað að sá kostnaður í Evrópu einni saman sé næstum 200 milljarðar evra. Þessi kostnaður mun aukast hratt enda hækkar sífellt hlutfall eldri borgara. Lífslíkur aukast svo enn þrátt fyrir að hafa þegar þrefaldast í hinum vestræna heimi á undanförnum þremur öldum. Í byrjun 20. aldar þótti fólk mjög fullorðið um sjötugt og einungis 1% kvenna og enn færri karlar lifðu í heila öld. Tölu verðar líkur eru hins vegar á að þeir sem fæðast um þessar mundir nái 100 ára aldri. Í Bretlandi hefur til dæmis verið áætlað að líkur þess að stúlkubörn sem fæddust árið 2011 verði 100 ára séu um 30%. Heilahreysti Mikilvægi heilsuræktar og hollrar fæðu fyrir líkamlega hreysti er öllum kunnugt þótt okkur gangi misvel að haga lífi okkar í samræmi við þá þekk- ingu. Stundum er svo eins og það gleymist að heilinn sé hluti lík- ama okkar og að honum verði að sinna. Það er líkt og enn ríki nokk- urs konar tvíhyggja þegar kemur að hugrænni heilsu. Áður var aðskilnaður milli hugar og heila en nú er aðskilnaður milli heila og líkama! Hversu mörg ykkar hafið heilahreysti í huga þegar þið ham- ist á hlaupabrettinu í ræktinni? Sennilega of fá og það er miður því staðreyndin er auðvitað sú að heilahreysti er grundvöllur hug- rænnar heilsu. Og hugræn heilsa skiptir höfuðmáli fyrir lífsgæði. Gleymum því ekki að það sem er gott fyrir líkamann er einnig gott fyrir hugann, til dæmis regluleg hreyfing, hollt fæði, góður svefn og andlegt jafnvægi. Ef við hugsum ekki vel um heilann eru minni líkur á því að okkar bíði góð efri ár. Ef fleiri hefðu þessa staðreynd ávallt í huga værum við ef til vill dug- legri að huga vel að heilahreysti strax í byrjun fullorðinsáranna þegar mamma og pabbi sleppa af okkur hendinni. Hér er gott að hafa í huga orð spænska taugavís- indamannsins Ramón y Cajal sem fékk Nóbelsverðlaunin í læknis- fræði árið 1906. Hann sagði: Kjósi hann það getur sérhver maður mótað sinn eigin heila. Að lokum Í ljósi hækkandi aldurs þjóðarinnar og þess hversu þungbærir heila- sjúkdómar eru fyrir sjúklinga og aðstandendur þeirra þarf almenn fræðsla um heilahreysti og hug- ræna heilsu að vera töluvert fyr- irferðarmeiri. Hún ætti að vera forgangsverkefni í lýðheilsu og heilsueflingu meðal almennings. Gaman væri að sjá íslensk heil- brigðisyfirvöld setja þetta í for- gang nú á ári heilans. Sjá tengt efni á vefnum heila- hreysti.is. 2014: Ár -heilans í Evrópu VERKALÝÐS-BARÁTTA Ólafía B. Rafnsdóttir formaður VR ➜ Er þörf á því að hafa svona margar verslanir opnar á þessum degi sem helgaður er baráttunni fyrir réttindum launafólks? Höfum við kannski gleymt því um hvað þessi dagur snýst? HEILBRIGÐIS- MÁL María K. Jónsdóttir Ph.D., sér fræðingur í klínískri tauga- sálfræði LSH– Landakoti

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.