Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 18
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| TÍMAMÓT | 18TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Útför elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐNÝJAR GUÐRÚNAR
JÓNSDÓTTUR
fer fram frá Laugarneskirkju
mánudaginn 28. apríl klukkan 13.00.
Guðrún Rósa Michelsen Ulf Löndahl
Lilja Dóra Michelsen Sigurður Þorsteinsson
Frank Úlfar Michelsen Inga Sigríður Magnúsdóttir
Hlynur Jón Michelsen
Anna Birna Michelsen
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR
Hlíðarvegi 57, Kópavogi,
sem lést miðvikudaginn 16. apríl verður
jarðsungin frá Garðakirkju miðvikudaginn
30. apríl klukkan 13.00.
Árni Björgvinsson Jenny Sigmundsdóttir
Ragnhildur Björgvinsdóttir Steingrímur Björnsson
Líney Björgvinsdóttir
Guðný Björgvinsdóttir Anton Örn Guðmundsson
Páll Björgvinsson Áslaug Þormóðsdóttir
Lára Magnúsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
JÓHANNA GUÐLAUGSDÓTTIR
(HANNA)
andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn
16. apríl. Jarðarför hennar fór fram í kyrrþey.
Steinunn M. Þórketilsdóttir Ingimar Örn Jónsson
Kristín Friðriksdóttir Stephen David Cato
Sally Freyja Squires Michael Squires
Emma Thorbjörg Cato
Óskasteinar er nýútkomin söngvabók
sem inniheldur safn söngtexta, auk
nokkurra laga, eftir Hildigunni Hall-
dórsdóttur. Bókinni fylgir geisla diskur
með úrvali sönglaga úr bókinni. Út-
gáfan er samvinnuverkefni afkomenda
Hildigunnar – en að verkefninu unnu
saman þrír ættliðir. Verkefnin voru
fjölbreytt. Má þar nefna nótnaskrift,
útsetningar, bókstafshljómasetningu,
myndskreytingar og tónlistarflutn-
ing auk annarrar umsýslu sem fylgir
útgáfu á bók og geisladisk.
Einn þeirra afkomenda Hildigunnar
sem tóku þátt í þeirri vinnu var Hildi-
gunnur Rúnarsdóttir tónskáld, sem
segir ömmu sína kannski ekki hafa haft
bein áhrif á það að hún valdi sér tónlist
sem lífsstarf, en samt. „Amma var ein
af þessum menntakonum í Reykjavík,
næstum alla síðustu öld,“ segir Hildi-
gunnur. „Hún var fædd 1912 og dó 1992,
gekk í Kvennaskólann og lærði á píanó
og barðist fyrir réttindum kvenna. Hún
samdi nokkur lög og ofboðslega mikið
af textum eins og til dæmis Óskasteina,
Hér búálfur á bænum er og Foli, foli
fótalipri. Hún hafði samt ekkert með
það að gera að ég valdi tónlistina nema
með því að styðja mig og okkur öll mjög
dyggilega, vera dugleg að hvetja okkur
áfram og mæta á flesta þá tónleika þar
sem eitthvert okkar var að syngja eða
spila.“
Lengi hefur staðið til að gera
höfundar verki Hildigunnar skil en fjár-
magnsskortur hamlaði því að af því gæti
orðið. Skriður komst þó á verkefnið árið
2001 þegar þýska þungarokkshljóm-
sveitin In Extremo gaf út breiðskífuna
Sünder ohne Zügel. Á plötunni flytur
hljómsveitin lagið Óskasteina, ungverskt
þjóðlag við íslenskan texta Hildi gunnar.
Í kjölfarið tóku ríflegar höfundar-
greiðslur að berast inn á bankareikning.
„Þetta var alveg magnað,“ segir Hildi-
gunnur. „Sérstaklega vegna þess að við
höfðum enga hugmynd um þetta fram-
tak fyrr en peningarnir fóru að hrúgast
inn á reikninginn hjá mömmu.“
Af því tilefni var stofnaður Minn-
ingar sjóðurinn Óskasteinar sem
stendur að þessari útgáfu en fjölskyldu-
meðlimir sjá um allan tónlistarflutning
á geisladiskinum. Myndirnar í bókinni
eru eftir Hjördísi Ingu Ólafsdóttur,
dóttur Hildigunnar. Í bókinni eru einn-
ig fjögur ný lög eftir afkomendur Hildi-
gunnar, þau Halldór Bjarka Arnarson
og Hildigunni Rúnarsdóttur sem viður-
kennir hlæjandi að nánast hver einasti
meðlimur fjölskyldunnar leggi stund
á tónlist. „Við erum fjögur systkinin
og öll í tónlist, mamma var kórstjóri
um tíma og svo eru það frændsystkini
okkar, börnin þeirra og börnin okkar.
Eina fólkið sem kom að gerð disksins
og bókarinnar og ekki er afkomendur
ömmu eru þrír makar fjölskyldumeð-
lima.“ fridrikab@frettabladid.is
Þrír ættliðir unnu
saman að bók og diski
Söngtextar og lög eft ir Hildigunni Halldórsdóttur eru komin út á bók og geisladiski undir
nafninu Óskasteinar. Meðal fl ytjenda er Hildigunnur Rúnarsdóttir tónskáld, sem er barna-
barn höfundarins, en öll vinna við útgáfuna var unnin af fj ölskyldumeðlimum.
Á blaðamannafundi þýska tímaritsins
Stern 25. apríl árið 1983 lýsti Dacre
lávarður, frægur breskur sagnfræðingur,
efasemdum um uppruna dagbóka Hitlers.
Hann hafði stuttu áður staðfest að þær
væru ósviknar og sannarlega dagbækur
Hitlers. Tímaritið Stern hafði nokkrum
dögum fyrr tilkynnt að fundist hefðu sex-
tíu dagbækur skrifaðar af Hitler sjálfum
frá 1932 til dauða hans 1945.
Blaðamaður Stern sem komst yfir
bækurnar sagðist hafa fundið þær á
heylofti í Austur-Þýskalandi. Hafði hann
uppi þá kenningu að dagbækurnar hefðu
legið á loftinu síðan þýsk flugvél hrapaði í
stríðslok með ýmis leynigögn úr híbýlum
Hitlers í Berlín. Vegna efasemda Dacre
voru bækurnar sendar í frekari rannsóknir
og þá kom í ljós að pappírinn sem var
notaður í þær var ekki framleiddur fyrr
en eftir seinni heimsstyrjöldina, auk þess
sem límið og blekið voru einnig mun
nýrri. Texti bókanna var einnig fullur af
rangfærslum. Síðar kom í ljós að dag-
bækurnar höfðu verið keyptar af Konrad
Kujau, sem hafði falsað þær listilega vel.
Kujau fékk níu milljónir þýskra marka
fyrir bækurnar.
Blaðamaður Stern og falsarinn Kujau
voru árið 1985 dæmdir í fjögurra og hálfs
árs fangelsi fyrir svik og fölsun. Kujau
nýtti sér síðar frægð sína og seldi falsanir
á þekktum málverkum til dauðadags árið
2000.
ÞETTA GERÐIST 25. APRÍL 1983
Upp kemst um fölsun dagbóka Hitlers
MERKISATBURÐIR
1719 Skáldsagan Róbinson Krúsó
eftir Daniel Defoe kemur út.
1915 Stórbruni verður í Reykja-
vík er Hótel Reykjavík og ellefu
önnur hús við Austurstræti, Póst-
hússtræti og Hafnarstræti brenna.
Tveir menn farast.
1926 Reza Khan er krýndur Reza
Shah Pahlawi keisari Írans.
1944 - Óperettan Í álögum, eftir
Sigurð Þórðarson og Dagfinn
Sveinbjörnsson, frumsýnd. Þetta
er fyrsta íslenska óperettan.
1953 Grein um byggingu kjarn-
sýrunnar DNA birtist í vísinda-
tímaritinu Nature. Höfundarnir
eru Watson og Crick, sem síðar fá
Nóbelsverðlaun fyrir rannsóknir
sínar.
1974 Nellikubyltingin hefst í
Portúgal þar sem einræðisstjórn
landsins er steypt af stóli.
1981 Yfir 100 starfsmenn kjarn-
orkuvers verða fyrir geislun á
meðan viðgerð stendur yfir í Tsu-
ruga í Japan.
1991 Bifreið er ekið upp á
Hvannadalshnúk í fyrsta skipti.
2005 Búlgaría og Rúmenía skrifa undir samning um inngöngu í
ESB.
2009 Alþingiskosningar eru haldnar á Íslandi.
HILDIGUNNUR HALLDÓRSDÓTTIR „Hún var fædd 1912 og dó 1992, gekk í Kvennaskólann
og lærði á píanó og barðist fyrir réttindum kvenna,“ segir barnabarnið Hildigunnur Rúnars-
dóttir um ömmu sína.
H
IL
D
IG
U
N
N
U
R
R
Ú
N
A
R
SD
Ó
T
TI
R
Sönghópur Átthagafélags Vestmanna-
eyinga á Reykjavíkursvæðinu, sem
gengur undir nafninu ÁtVR, heldur
vortónleika sína í Kirkju Óháða
safnaðarins við Háteigsveg á morg-
un klukkan 15. Tónleikarnir eru að
stórum hluta tileinkaðir skáldinu og
lagahöfundinum Ása í Bæ, í tilefni af
því að þann 27. febrúar síðastliðinn
voru liðin 100 ár frá fæðingu hans.
Einnig verða flutt lög annarra höf-
unda.
Ási samdi mörg ljóð við lög Oddgeirs
Kristjánssonar á árunum 1950 til 1965
vegna Þjóðhátíðar Vestmannaeyja.
Hann samdi einnig þó nokkuð af lögum
sjálfur við eigin texta og þar á meðal
nokkur þjóðhátíðarlög á tímabilinu frá
1970-1985. Á tónleikunum verða meðal
annars flutt lög hans Herjólfsdalur og
Sævar í Gröf í glænýjum kórútsetn-
ingum. Með Sönghóp ÁtVR leikur fjög-
urra manna hljómsveit.
ÁtVR minnist Ása í Bæ með tónleikum
Sönghópurinn ÁtVR heldur á morgun tónleika í Kirkju Óháða safnaðarins þar sem
áhersla verður lögð á lög Ása í Bæ í tilefni 100 ára afmælis hans 27. febrúar síðastliðinn.
ÁTVR Sönghópur Átthagafélags Vestmannaeyinga á Reykjavíkursvæðinu heldur tónleika á
morgun.
M
YN
D
Í
EI
N
KA
EI
G
U