Fréttablaðið - 25.04.2014, Síða 34
Lífi ð
FRÉTTABLAÐIÐ Spjörunum úr og helgarmaturinn.
BLOGGARINN SÆNSK STEMNING Í MÁLI OG MYNDUM
Hanna Stefansson
Hanna.metromode.se
Sænski bloggarinn Hanna Stefansson
nýtur mikilla vinsælda í heimalandi sínu
og víðar. Hún er með skemmtilegan fata-
stíl, ófeimin við að fara ótroðnar slóðir
í fatavali en heldur þó í hinn klassíska
skandinavíska stíl. Hún er nemi, búsett í
Gautaborg og tekur fallegar myndir af
umhverfinu og af mat. Kærasti hennar
og sambýlismaður, John, er einnig fastur
gestur á blogginu en klæðaburður hans
getur veitt herramönnum innblástur þar
sem hann er smekkmaður. Skemmtilegt
blogg til að fylgjast með.
Stockholm Streetstyle
Facebook.com/stockholm-
streetstyle
Facebook-síða vefsíðunnar
Stockholm Streetstyle er mjög
virk en þar koma inn nýjustu
götutískumyndirnar af síðunni
sjálfri. Tískubloggarinn Caro-
line Blomst og ljósmyndarinn
Daniel Troyse halda síðunni úti.
Þau flakka á milli tískuvikna
og mynda vel klædda einstak-
linga og flakka um helstu borg-
ir Evrópu og fanga götutískuna.
Góður innblástur á metnaðar-
fullri síðu.
Mini Rodini
pinterest.com/minirodini
Barnafatamerkið Mini Rodini
heldur úti öflugri Pinterest-síðu þar
sem hægt er að fylgjast með því
nýjasta sem er að gerast hjá merk-
inu hverju sinni. Merkið hefur notið
mikilla vinsælda fyrir fallegan og
öðruvísi barnafatnað og barna-
húsbúnað, til dæmis skemmti legan
rúmfatnað. Merkið er þekkt fyrir að
taka flottar myndir fyrir fatalínur
sínar sem má sjá á síðunni.
Ostwald Helgason
Instagram.com/ostwald-
helgason
Fylgstu með hálfíslenska hönnunar-
dúóinu Ostwald Helgason á Insta-
gram og fáðu ævintýri þeirra beint
í æð. Þau Ingvar Helgason og Sus-
anne Ostwald eru rísandi stjörnur
í tískuheiminum og dugleg að upp-
lýsa aðdáendur sína á Instagram.
Fallegur fatnaður, baksviðs myndir
frá vinnustofum, tískusýningum og
annað skemmtilegt frá Ostwald
Helgason.