Fréttablaðið - 25.04.2014, Page 50
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 34
Ég hef látið mig
hafa það að klæðast
þessu þó þetta sé
forljótt.
Jóhann Árni Ólafsson, Grindavík.
ÚRSLIT
OLÍS-DEILD KARLA
VALUR - ÍBV 28-24
Valur - Mörk (skot): Finnur Ingi Stefánsson 6/4
(8/4), Geir Guðmundsson 6 (11), Atli Már Báruson
5 (5), Orri Freyr Gíslason 3 (3), Alexander Örn
Júlíusson 3 (4), Elvar Friðriksson 3 (9), Ægir Hrafn
Jónsson 1 (1), Guðmundur Hólmar Helgason 1 (3),
Daníel Ingason (1), Vignir Stefánsson (2).
Varin skot: Hlynur Morthens 19 (43/2, 44%).
Hraðaupphlaup: 5 (Finnur, Geir 2, Orri, Ægir )
Fiskuð víti: 4 ( Orri Freyr 2, Elvar 2)
Utan vallar: 8 mínútur.
ÍBV - Mörk (skot): Theodór Sigurbjörnsson 5/2
(7/2), Sindri Haraldsson 4 (4), Grétar Þór Eyþórs-
son 4 (6), Agnar Smári Jónsson 4 (7), Magnús
Stefánsson 3 (7), Svavar Grétarsson 1 (1), Einar
Gauti Ólafsson 1 (1), Guðni Ingvarsson 1 (3),
Róbert Aron Hostert 1 (5), Hallgrímur Júlíusson
(1), Dagur Arnarsson (5).
Varin skot: Kolbeinn Aron Ingibjargarson 7 (23/2,
30%), Henrik Vikan Eidsvag 4 (16/2, 25%).
Hraðaupphlaup: 8 (Theodór 2, Sindri, Grétar 3,
Agnar, Einar )
Fiskuð víti: 2 ( Sindri, Agnar Smári )
Utan vallar: 10 mínútur.
Staðan í einvíginu er 1-1.
FH - HAUKAR 22-19
FH - Mörk (skot): Sigurður Ágústsson 5 (7), Einar
Rafn Eiðsson 5 (8), Ásbjörn Friðriksson 5/1 (9/2),
Ragnar Jóhannsson 3 (10), Ísak Rafnsson 2 (9),
Benedikt Reynir Kristinsson 1 (1), Magnús Óli
Magnússon 1 (3).
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 17/2 (36/3,
47%).
Hraðaupphlaup: 2 ( Ragnar, Benedikt )
Fiskuð víti: 2 (Sigurður Ágústsson 2)
Utan vallar: 14 mínútur.
Haukar - Mörk (skot): Sigurbergur Sveinsson
6/1 (9/3), Tjörvi Þorgeirsson 5 (10), Árni Steinn
Steinþórsson 4 (8), Elías Már Halldórsson 2 (7),
Jón Þorbjörn Jóhannsson 1 (1), Þórður Rafn
Guðmundsson 1 (6/1), Einar Pétur Pétursson (1),
Þröstur Þráinsson (1), Adam Haukur Baumruk (1).
Varin skot: Einar Ólafur Vilmundarson 11/1 (22/2,
50%), Giedrius Morkunas 7 (18, 39%),
Hraðaupphlaup: 0
Fiskuð víti: 4 (Sigurbergur, Árni, Elías, Þórður)
Utan vallar: 12 mínútur.
Staðan í einvíginu er 2-0 fyrir FH.
OLÍS-DEILD KVENNA
VALUR - ÍBV 21-17
Valur - Mörk (skot): Kristín Guðmundsdóttir 5/4
(9/5), Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 4 (7), Bryndís
Elín Wöhler 3 (4), Hrafnhildur Ósk Skúladóttir
3 (6), Morgan Þorkelsdóttir 2 (4), Rebekka Rut
Skúladóttir 2 (5), Sigurlaug Rúnarsdóttir 1 (1),
Karólína Bærhenz Lárudóttir 1 (1).
Varin skot: Guðný Jenný Ásmundsdóttir 16 (31/3,
52%), Sigríður Arnfjörð Ólafsdóttir (2/1, 0%).
Hraðaupphlaup: 2 ( Rebekka, Karólína)
Fiskuð víti: 5 (Kristín, Anna 2, Morgan 2)
Utan vallar: 2 mínútur.
ÍBV - Mörk (skot): Vera Lopes 8/4 (14/4), Ester
Óskarsdóttir 3 (12), Telma Silva Amado 2 (2),
Sandra Dís Sigurðardóttir 2 (4), Kristrún Ósk
Hlynsdóttir 1 (1), Díana Dögg Magnúsdóttir 1 (3)
Varin skot: Dröfn Haraldsdóttir 16/1 (36/4, 44%)
Hraðaupphlaup: 1 ( Kristrún Ósk Hlynsdóttir )
Fiskuð víti: 4 (Vera 3, Díana)
Utan vallar: 4 mínútur.
Staðan í einvíginu er 1-0 fyrir Val.
MMA Gunnar Nelson mun að öllum
líkindum skrifa undir nýjan fjög-
urra bardaga samning við UFC-
bardagadeildina. Munnlegt sam-
komulag hefur náðst um nýjan
samning að sögn Haraldar Dean
Nelson, föður og umboðsmanns
Gunnars.
„Viðræðum er nú lokið og munn-
legt samkomulag er í höfn,“ sagði
Haraldur í samtali við Fréttablað-
ið í gær. Gunnar á þó einn bardaga
eftir af núverandi samningi sínum
en hann hefur unnið þrjá fyrstu
bardaga sína í UFC.
„Þeir komu til okkar og vildu
framlengja samninginn strax, eins
og algengt er þegar einn bardagi
er eftir. Það sýnir hversu ánægðir
þeir eru með Gunnar, enda hefur
hann staðið sig vel,“ sagði Haraldur
en Gunnar er enn taplaus í þrettán
MMA-bardögum á ferlinum.
„Allt ferlið gekk mjög vel og
helst að togast var á um einhver
smáatriði,“ segir Haraldur, sem
á von á því að skrifað verði undir
nýja samninginn í næstu viku.
Samtímis verður einnig að vænta
tíðinda af næsta bardaga Gunnars
en líklegt er að hann fari fram í
Dublin á Írlandi þann 19. júlí.
„Við höfum margoft óskað eftir
því að komast á þetta „card“ og
hefur UFC veitt vilyrði sitt fyrir
því. En það er enn verið að skoða
þessi mál og er von á endanlegri
niðurstöðu í næstu viku,“ segir
Haraldur.
Gunnar er með írskan þjálf-
ara og hefur oft barist þar í landi.
Hann hefur sjálfur greint frá því í
viðtali við Fréttablaðið að margir
þar í landi telji að Gunnar sé írskur.
„Hann á mjög stóran hóp stuðn-
ingsmanna á Írlandi sem hafa lagst
í ýmiss konar herferðir til að fá
UFC til að fá Gunnar til Dublin í
sumar. Ég hef enga trú á öðru en
að UFC hlusti á þær raddir enda á
Dana White [forseti UFC] sjálfur
ættir að rekja til Írlands.“ - esá
Samkomulag í höfn um nýjan samning
Gunnar Nelson hefur margoft óskað eft ir því að fá að berjast á UFC-kvöldi í Dublin á Írlandi þann 19. júlí.
YFIRBURÐIR Gunnar vann síðast sigur á Rússanum Omari Akhmedov með heng-
ingu strax í fyrstu lotu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Fram hafnar í 8. sæti
Fram er stærsta spurningamerkið fyrir
tímabilið enda kemur liðið gríðarlega
mikið breytt til leiks, með nýjan þjálfara
og nýja stefnu í sínum knattspyrnu-
málum.
Bjarni Guðjónsson var ráðinn þjálfari Framara
en hann hefur ferilinn hjá einu stærsta félagi
landsins, sem fagnaði loksins titli í fyrra þegar liðið
varð bikarmeistari eftir 23 ára eyðimerkurgöngu.
Bjarni hefur algjörlega breytt liðinu hjá Fram og fékk til
sín mikið af ungum strákum og mikið af leikmönnum sem
spilað hafa í neðri deildum. Verkefnið er virkilega spenn-
andi í Safamýrinni en svo á eftir að sjá hvort það gangi
upp þar sem hópurinn er nýr og þjálfarinn reynslulaus.
Frammistaða Ögmunds Kristinssonar
síðasta sumar var ein helsta ástæða þess
að Fram hélt sæti sínu í deildinni en
liðið fékk á sig langfæst mörkin af
liðunum í kringum sig í fallbaráttunni
ásamt Ólsurum.
Ögmundur hefur sýnt undanfarin
tvö sumur að hann er orðinn einn af
albestu markvörðum deildarinnar
enda ekki að ástæðulausu að
erlend lið báru víurnar í hann.
Það var einfaldlega óheppni hjá
honum að meiðast þannig ekkert
varð úr yfirvofandi félagaskiptum.
Alexander Már Þorláksson (ÍA)
Ásgeir Marteinsson (HK)
Einar Bjarni Ómarsson (KV)
Einar Már Þórisson (KV)
Guðm. Magnússon (Víkingi Ó.)
Guðm. St. Hafsteinsson (Vík Ó.)
Hafsteinn Briem (Haukum)
Hafþór Mar Aðalgeirsson (Völs.)
Jóhannes Karl Guðjónsson (ÍA)
Ósvald Jarl Traustason (Breiðabl.)
Tryggvi S. Bjarnason (Stjörnunni)
FYLGSTU MEÐ ÞESSUM:
Arnþór Ari Atlason: Strákur fæddur
1993 sem hefur slegið í gegn í
vetur. Fljótur og hæfileikaríkur og
getur leyst margar stöður.
Bjarni Guðjónsson
er 35 ára gamall og
á sínum fyrsta ári
sem þjálfari. Hann
lagði skóna á hilluna eftir að
hafa orðið Íslandsmeistari
með KR á síðasta tímabili.
SPORT
1. sæti - ???
2. sæti - ???
3. sæti - ???
4. sæti - ???
5. sæti - ???
6. sæti - ???
7. sæti - ???
8. SÆTI - FRAM
9. sæti - Keflavík
10. sæti - Víkingur
11. sæti - Fylkir
12. sæti - Fjölnir
GENGIÐ SÍÐUSTU SEX TÍMABIL > 2008 (3. sæti) - 2009 (4. sæti) - 2010 (5. sæti) - 2011 (9. sæti) - 2012 (10. sæti) - 2013 (10. sæti) Íslandsmeistarar: 18 sinnum (síðast 1990) / Bikarmeistarar: 7 sinnum (síðast 2013)
➜ EINKUNNASPJALDIÐ VÖRNIN ★★★★★ SÓKNIN ★★★★★ ÞJÁLFARINN ★★★★★ BREIDDIN ★★★★★ LIÐSTYRKURINN ★★★★★ HEFÐIN ★★★★★
➜ Lykilmaðurinn ➜ Þjálfarinn ➜ Nýju andlitin
➜ Tölurnar í fyrra
Mörk skoruð 6. sæti (1,7 í leik)
Mörk á sig 1. sæti (1,1 í leik)
Stig heimavelli 7. sæti (17 af 33, 51%)
Stig á útivelli 1. sæti (26 af 33, 79%)
HEFST 4. MAÍ
Spá Fréttablaðsins
KÖRFUBOLTI Það er komið að
ögurstundu fyrir leikmenn
Grindavíkur í lokaúrslitarimmu
Dominos-deildar karla um Íslands-
meistaratitilinn í körfubolta. KR
vann fyrsta leik liðanna í rimm-
unni og með sigri í kvöld geta
Reykvíkingar tryggt sér titilinn
með því að vinna á heimavelli á
mánudagskvöldið.
„Við lítum á þennan leik sem
algjöran lykilleik fyrir okkur,“
sagði Jóhann Árni Ólafsson, leik-
maður Grindavíkur, við Frétta-
blaðið í gær. Hann segir að hans
menn eigi ýmislegt inni eftir slaka
frammistöðu í fyrsta leik.
„Í raun kom okkur á óvart hvað
við áttum góðan möguleika á sigri
miðað við hvernig við spiluðum.
Við vorum enn í bullandi séns
þegar fjórar mínútur voru eftir og
höfðum þá spilað vel undir getu,“
segir Jóhann Árni.
Grindvíkingar hafa notað vikuna
til að undirbúa leikinn í kvöld en
þó fyrst og fremst til að hvílast og
safna kröftum. „Það voru mörg lítil
atriði sem fóru úrskeiðis í fyrsta
leiknum og þau má alltaf laga með
meiri dugnaði og krafti. Við höfum
engan áhuga á að lenda 2-0 undir
og munum því leggja allt í sölurnar
til að jafna rimmuna.“
Sokkarnir hafa hjálpað til
Það hefur sífellt borið meira á
því að körfuboltamenn klæðist
svörtum sokkum og undirbuxum í
leikjum í úrslitakeppninni og hefur
borið mikið á því í liði Grinda víkur.
Jóhann Árni er einn þeirra sem
hafa notað þennan fatnað og segir
það gert af illri nauðsyn.
„Þetta eru svokallaðir „com-
pression“-sokkar sem eiga að
hjálpa manni að jafna sig á milli
leikja,“ útskýrir Jóhann Árni.
„Maraþonhlauparar hafa notað
þetta mikið og mér skilst að þess-
ari tækni hafi fleygt fram á síð-
ustu árum,“ segir hann og bætir
við að hann hafi í fyrstu ekki haft
mikla trú á þessu.
„Ég hef ekki haft mikla trú á
svona löguðu en ég finn mikinn
mun á mér eftir að ég byrjaði að
nota þetta. Ég hef því látið mig hafa
það að klæðast þessu þótt þetta sé
forljótt,“ segir hann og hlær.
Meðal annarra leikmanna sem
hafa klæðst sokkunum eru Ólafur
Ólafsson, Earnest Clinch, Sigurður
Gunnar Þorsteinsson og Daníel
Guðni Guðmundsson en framan
af tímabili létu þeir nægja að nota
búnaðinn á æfingum.
„Það er nokkuð hár meðalaldur
í liðinu og því hefur þetta hjálp-
að við að koma mönnum í gang
eftir erfiða leiki. En það hefur
svo reynst vel að klæðast þessu í
úrslitakeppninni með auknu leikja-
álagi.“
Fær margar spurningar
Jóhann Árni segir að sokkarnir og
buxurnar hafi vakið mikið umtal.
„Það er mikið spurt um þetta,“
segir hann í léttum dúr. „En það
truflar mig ekki. Svo lengi sem
þetta hjálpar okkur að vinna leiki
þá skiptir útlitið mig engu máli.“
Leikurinn í kvöld hefst klukkan
19.15 og er í beinni útsendingu á
Stöð 2 Sport. Jóhann Árni segir að
Grindvíkingar muni ekki breyta
neinu í sínum leik í kvöld og not-
ast áfram við þau vopn sem hafi
reynst liðinu vel í vetur.
„Við höfum náð góðum árangri
með okkar spilamennsku í vetur
og breytum henni ekki úr þessu,“
sagði hann. eirikur@frettabladid.is
Útlitið skiptir mig engu máli
Jóhann Árni Ólafsson og félagar í Grindavík líta á leikinn gegn KR í kvöld sem lykilleik í lokaúrslitunum um
Íslandsmeistaratitilinn. Nokkrir leikmenn liðsins nýta sér nýjustu tækni til að jafna sig fyrr á milli leikja.
Í SOKKUNUM Jóhann Árni segir að svokallaðir „compression“-sokkar geri það að verkum að hann nái sér fyrr eftir erfiða leiki.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
DÝRMÆTT Carlos Tevez fagnar marki
sínu í 2-1 tapi gegn Benfica í Evrópu-
deildinni. Þetta var fyrri leikur liðanna
og mark Tevez því dýrmætt.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP