Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 25.04.2014, Blaðsíða 54
25. apríl 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38 FOUNDING SPONSOR 20 22 N Í J Ú 42 0 1 M NIGHT SUN MUSIC FESTI LID VA L ÍKAUGARDALUR REYKJAV [UK] [US] [FR] [US] ...OG FJÖLDI ANNARA! MIÐASALA: [IS] [US] [UK] [US] [UK] [IS] [UK] THE [UK] [UK] [IS] [UK] „Þetta er lengsti og umfangs- mesti túr sem við höfum farið í og við hlökkum mikið til,“ segir Snæbjörn Ragnarsson, betur þekktur sem Bibbi, bassaleikari Skálmaldar. Sveitin heldur af stað í tónleikaferðalag um Evrópu, þar sem hún hitar upp fyrir eina þekktustu þjóðlagaþungarokks- hljómsveit í heimi, Eluveitie frá Sviss. Um er að ræða 37 tónleika í fjórtán löndum. „Við fengum boð frá bókunar- skrifstofunni okkar, Dragon Pro- ductions, um að fara í þennan túr og vorum heldur betur til í það, þetta er risaband,“ segir Bibbi spurður út í ferlið. Hann segist hafa þekkt Eluveitie mjög vel fyrir. „Ég hef vitað af bandinu í svona tíu ár. Ég veit að hljóm- sveitir bíða í röðum eftir því að fá að fara á túr með þeim,“ bætir Snæbjörn við. Skálmaldarmenn eru um þessar mundir lokaðir inni í æfingarhúsnæði sínu við laga- smíðar. „Við erum að semja á fullu og ætlum að vera komnir með plötu þegar við förum í þennan túr.“ Skálmöld stefnir á að gefa út nýja plötu í september- eða októbermánuði. - glp Lengsta tónleikaferðalagið til þessa Hljómsveitin Skálmöld heldur af stað í langt og strangt tónleikaferðalag í haust. Þar mun Skálmöld hita upp fyrir eina vinsælustu þjóðlagaþungarokksveit í heimi. KLÁRIR Í SLAGINN Hljómsveitin Skálmöld spilar á 37 tónleikum í 14 löndum í haust. MYND/LALLI SIG „Tökurnar gengu alveg glimrandi vel og við höfum verið í tökum víðs vegar um heiminn,“ segir leikarinn Ingvar E. Sigurðsson en hann er nýkominn heim eftir þriggja mánaða dvöl erlendis við tökur á kvikmyndinni Everest. Tökurnar á myndinni hafa farið fram víða en á meðal tökustaða eru Himalajafjöllin, ítölsku Alp- arnir, Cinecittà-stúdíóið í Róm og Pinewood-stúdíóið í London, ásamt fleiri merkum stöðum. „Ég var í þokkalegu formi fyrir tökurnar en fór þó í nokkr- ar fjallgöngur fyrir myndina og var þjálfaður á Ítalíu og Íslandi í því hvernig maður eigi að bera sig að með allan búnaðinn. Þetta voru oft erfiðar aðstæður og tók mikið á,“ segir Ingvar spurður út í erfiðið í tökunum. Eins og gengur eru aðstæður oft ákaflega erfiðar í slíkri háfjallagöngu og er ekkert til sparað í tökunum. „Það er þó gaman að takast á við náttúru öflin þótt þau séu ekki alltaf ekta.“ Eins og sönnum fjallagarpi sæmir var Ingvar dúðaður í dún- galla og gat því orðið ansi heitt í kolunum. „Það var bæði heitt og kalt, það gat verið kalt þegar maður var í fjöllunum en mjög heitt þegar maður var í stúdíó- unum,“ bætir Ingvar við en hann leikur rússneskan fjallgöngugarp sem þekkir hlíðar Everest vel. - glp Erfi tt að glíma við náttúruöfl in Ingvar E. Sigurðsson leikari er nýkominn til landsins eft ir tæplega þriggja mánaða dvöl ytra þar sem hann var við tökur á stórmyndinni Everest. INGVAR E. Nýkominn til landsins. „Við erum að sprengja húsið utan af okkur,“ segir Þorleifur Örn Arnars- son leikstjóri en hann er um þessar mundir að setja upp óperu Richards Wagner, Lohengrin, í leikhúsinu í Augsburg í Þýskalandi. Frumsýn- ing verður þann þriðja maí. „Þetta er gríðarlega stór sýning sem við höfum verið að undirbúa í marga, marga mánuði. Þeir hafa aldrei framleitt svona stóra sýn- ingu hérna,“ segir Þorleifur. Yfir 350 manns starfa að sýningunni, sem er tæpar fimm klukkustundir að lengd. „Við erum með 100 manna sin- fóníuhljómsveit, og það eru tæplega 120 manns á sviðinu þegar mest er. Auk þess eru um 100 manns sem vinna í húsinu, í tæknideild, bún- ingadeild, ljósadeild, sminki, hári og þar fram eftir götunum,“ bætir Þorleifur við. Þorleifur er þó ekki eini Íslend- ingurinn sem kemur að sýningunni, en um búninga sér Filippía Elís- dóttir, Jósef Halldórsson sér um leikmynd og Helena Stefánsdóttir og Arnar Steinn Friðbjarnarson sáu um að framleiða myndbönd sem eru hluti af óperunni. „Filippía hefur nú eiginlega ekki sést í þær fimm vikur sem við höfum verið hérna – hún hvarf inn í búningadeildina. Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með því, og það sama á við um Jósef með leikmynd- ina,“ segir hann, léttur í bragði. „Þetta er pínulítið eins og að stýra olíutankskipi yfir Atlants- hafið – stundum áttar maður sig á því að maður tók ákvörðun fyrir þremur vikum sem maður getur ekki auðveldlega dregið til baka – því þegar sýning er svona stór í sniðum er kannski búið að fram- kvæma kraftaverk í millitíðinni. Venjulega þegar ég leikstýri er ég oft að breyta öllu fram á síðustu stundu,“ útskýrir Þorleifur. „Svo er Richard Wagner nátt- úrulega eitt aðalóperutónskáld Þjóðverja, þannig að maður er að höndla með þeirra allra helgasta.“ Þorleifur sá fyrsta heildar rennslið fyrr í vikunni og segist nokkuð ánægður með útkomuna. „Þetta er skemmtilegt. Við erum með 350 búninga held ég – það er ekki hægt að láta fólk standa í sömu fötunum í marga tíma á sviði, þannig að það er nóg að gerast. Við erum með þrjár heilar leikmyndir, tugi lítra af blóði, vídjólistamenn og um það bil 270 hárkollur!“ segir Þorleifur að lokum og hlær. olof@frettabladid.is Tugir lítra af blóði og 270 hárkollur á sviði Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri setur upp Lohengrin eft ir Wagner í Þýskalandi. Að sýningunni, sem er tæplega fi mm klukkutímar, vinna um 350 manns. HÖNDLAR MEÐ ÞAÐ ALLRA HEILAGASTA Þorleifur Örn frumsýnir Lohengrin eftir Richard Wagner þann þriðja maí í Aubsburg í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR „Ég fæ mér að jafnaði bara gott kaffi í morgunmat. Það jafnast ekk- ert á við kaffi á fastandi maga.“ Hrafnkell Örn Guðjónsson, trommuleikari Agent Fresco og Highlands. MORGUNMATURINN Þetta er pínulítið eins og að stýra olíutank- skipi yfir Atlantshafið– stundum áttar sig á því að maður tók ákvörðun fyrir þremur vikum sem maður getur ekki auð- veldlega dregið til baka – því þegar sýning er svona stór í sniðum er kannski búið að fram- kvæma kraftaverk í millitíðinni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.