Fréttablaðið - 26.05.2014, Qupperneq 10
26. maí 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Getur þitt fyrirtæki
orðið Fyrirtæki ársins?
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | SÍMI 510 1700 | WWW.VR.IS
Leiðin að markmiðinu, Ólafía B.
Rafnsdóttir, formaður VR
Hvað er Fyrirtæki ársins? Tómas
Bjarnason, sviðsstjóri starfsmann a-
rannsókna hjá Capacent
Nova, Liv Bergþórsdóttir forstjóri
Johan Rönning, Haraldur Líndal
Pétursson forstjóri
Skref að betri mannauðsstjórnun,
Jakobína H. Árnadóttir, ráðgjafi hjá
Capacent
Samantekt og spurningar
Morgunverðarfundur VR og Capacent um hvernig nýta má
niðurstöður í könnun á Fyrirtæki ársins og mikilvægi mann-
auðsstjórnunar verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík
miðvikudaginn 28. maí kl. 8:30 til 10:15.
Skráning og morgunverður hefst kl. 8:00
Fundarstjóri er Ketill Berg Magnússon, framkvæmda stjóri Festu,
miðstöðvar um samfélagsábyrgð.
Fundurinn er opinn öllum. Verð: 2.900 kr.
Skráðu þig á vr.is
Mun fleiri hafa þurft á fjárhagsað-
stoð frá Reykjavíkurborg að halda
á þessu kjörtímabili en áður hefur
þekkst.
Ástæðan er einkum að þeir sem
eru atvinnulausir lengur en þrjú ár
missa rétt til atvinnuleysisbóta, en
eiga þá möguleika á að sækja um
fjárhagsaðstoð frá sveitarfélagi.
Fjárhagsaðstoð Reykjavíkur-
borgar er í dag allt að 164 þúsund
krónur á mánuði til einstaklings,
og 245 þúsund til hjóna eða fólks
í sambúð. Fullar atvinnuleysis-
bætur eru nokkuð hærri, um 178
þúsund krónur á mánuði til ein-
staklings. Upphæðirnar eru tals-
vert lægri en dæmigert neysluvið-
mið fyrir útgjöld einstaklings, eins
og það birtist á vef velferðarráðu-
neytisins. Það er um 235 þúsund
krónur á mánuði fyrir einstakling
á höfuðborgarsvæðinu.
Nokkur samhljómur er í stefnu
Samfylkingarinnar, Sjálfstæð-
isflokks og Bjartrar framtíðar.
Flokkarnir vilja allir að lögum
verði breytt svo hægt sé að setja
einhver skilyrði fyrir fjárhags-
aðstoð, til dæmis að sá sem hana
þiggur verði að taka vinnu við
hæfi bjóðist hún, eða sitja nám-
skeið.
Vinstri græn eru alfarið á
móti slíkri skilyrðingu, og leggja
áherslu á að hækka fjárhagsað-
stoðina. Píratar hafa einnig áhuga
á að hækka fjárhagsaðstoðina, sem
nær í dag ekki opinberum fram-
færsluviðmiðum.
Þarf að virkja sem flesta
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík
er ekki með það á stefnuskránni
að lækka fjárhagsaðstoðina. Hall-
dór Halldórsson, oddviti flokksins
í Reykjavík, segir að gera þurfi
meira til að virkja fólk til þátttöku
og koma því úr þeirri stöðu að
þurfa á þessari neyðaraðstoð frá
sveitarfélaginu að halda.
„Það þarf að virkja sem flesta
til þátttöku á atvinnumarkaði. Við
viljum gera meiri kröfur til þess-
ara einstaklinga,“ segir Halldór.
Hann hefur talað fyrir því að
reglum verði breytt svo skilyrða
megi aðstoðina að einhverju leyti.
Til dæmis þannig að einstaklingur
sem þiggur fjárhagsaðstoð verði
að taka vinnu við hæfi bjóðist hún,
hann þurfi að sækja námskeið og
annað í þeim dúr.
Þá megi hugsa sér að komið
verði til móts við fólk sem er að
reyna að koma sér út á vinnumark-
aðinn aftur, til dæmis með afslætti
af leikskólagjöldum og aðstoð við
samgöngur.
Skýr vilji til að hækka
Fjárhagsaðstoðin í Reykjavík er
ekki nægilega há, enda nær hún
ekki opinberum framfærsluvið-
miðum, segir Halldór Auðar Svans-
son, oddviti Pírata í Reykjavík. „Það
er ekki stefna Pírata, en það er skýr
vilji til að hækka þessa aðstoð eins
og hægt er,“ segir Halldór.
Hann segir kjarnann í stefnu
Pírata að efla fólk til virkni í sam-
félaginu. Gæta verði að því að ekki
séu settir merkimiðar á fólk, og
að það festist hvorki í fordóma- né
fátæktargildrum.
Þótt aukinn fjöldi hafi þurft á
fjárhagsaðstoð borgarinnar hefur
tekist að koma í veg fyrir verstu
sviðsmyndirnar, segir Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylkingar-
innar í Reykjavík. Það var gert með
því að setja mikinn kraft í samstarf
við Vinnumálastofnun og með því að
Sífellt fleiri þurfa fjárhagsaðstoð
Fjölgun í hópi þeirra sem fá bætur hjá Reykjavíkurborg á rætur sínar í því að fólk missir rétt til atvinnuleysisbóta eftir þrjú ár. Samfylking,
Sjálfstæðisflokkur og Björt framtíða vilja að lögum verði breytt til þess að hægt verði að segja skilyrði fyrir fjárhagsaðstoð borgarinnar.
REYKJAVÍK VELFERÐARMÁL 2 3 41
Brjánn
Jónasson
brjann@frettabladid.is
FJÖLDI SEM FÆR
FJÁRHAGSAÐSTOÐ
1.818 einstaklingar
í janúar 2014
FJÁRHAGSAÐSTOÐ SAMTALS
231 milljón króna
í janúar 2014
FJÁRHAGSAÐSTOÐ
REYKJAVÍKURBORGAR
164 þúsund krónur
fyrir einstakling
245 þúsund
fyrir hjón eða sambýlisfólk
ATVINNULEYSISBÆTUR
178 þúsund krónur
NEYSLUVIÐMIÐ STJÓRNVALDA
235 þúsund krónur
fyrir einstakling
Framsóknar-
fl okkurinn vill
samræma atvinnu-
mál fatlaðra og
ófatlaðra.
„Það er mikil-
vægt að endur-
skoða reglur borgarinnar
um velferðarmál.“
Sveinbjörg B. Sveinbjörnsdóttir.
FramsóknB
Vinstri græn telja
mikilvægt að
hækka fj árhagsað-
stoð þannig að það
sé hægt að lifa af
aðstoðinni.
„Við erum
algerlega
andvíg því að skilyrða fjár-
hagsaðstoðina.“
Sóley Tómasdóttir.
V Vinstri grænir
Píratar leggja mikið
upp úr því að efl a
fólk til virkni í
samfélaginu.
„ Það er skýr
vilji til að
hækka þessa
aðstoð eins og hægt er.“
Halldór Auðar Svansson.
PíratarÞ
Sjálfstæðis-
fl okkurinn vill virkja
sem fl esta til
þátttöku á vinnu-
markaði og fækka
fólki sem þarf
fj árhagsaðstoð frá
borginni.
„Við viljum gera meiri
kröfur til þessara einstak-
linga.“
Halldór Halldórsson.
SjálfstæðisflokkurinnD
Björt framtíð vill að
heimilað verði að
setja ákveðin
skilyrði fyrir
veitingu fj árhags-
aðstoðar.
„Við viljum að
öllum sem geta
unnið en eru á fjárhagsað-
stoð verði boðin vinna, eða
virkniúrræði.“
Sigurður Björn Blöndal.
Björt framtíðÆ
Samfylkingin vill að
lögum verði breytt
þannig að heimilað
verði að setja
skilyrði fyrir
veitingu fj ár hags-
aðstoðar.
„Okkur finnst ekki eðlilegt
að námsmaður geti rölt inn
á hverfamiðstöð og fengið
fjárhagsaðstoð yfir sumarið
í stað þess að fá sér vinnu.“
Dagur B. Eggertsson.
SamfylkinginS