Fréttablaðið - 26.05.2014, Qupperneq 58
26. maí 2014 MÁNUDAGUR| SPORT | 26
Lífeyr iss jóður
starfsmanna r ík is ins
Engjateigi 11
105 Reykjavík
Sími: 510 6100
lsr@lsr . iswww.lsr.is
Ársfundur LSR og LH verður haldinn þriðjudaginn 27. maí kl. 15:00
í húsnæði LSR við Engjateig 11. Fundurinn er opinn öllum
sjóðfélögum og launagreiðendum.
Dagskrá
Skýrslur stjórna
Tryggingafræðilegar úttektir
Fjárfestingarstefna
Ársreikningar 2013
Skuldbindingar launagreiðenda
Önnur mál
Ársfundur
LSR og LH
HANDBOLTI Landsliðskonan Birna
Berg Haraldsdóttir varð meistari
annað árið í röð um helgina þegar
hún tók þátt í því að tryggja Säve-
hof-liðinu sænska meistaratitil-
inn á sínu fyrsta ári sem atvinnu-
maður.
„Það er búið að vera svo ótrú-
lega góð stemning i liðinu und-
anfarið þannig að það kom mér
ekki á óvart að við tækjum þetta.
Úrslitadagurinn er þvílíkt stór
dagur hér í Svíþjóð og þetta er
mögulega eitt af því skemmti-
legasta ég hef gert,“ sagði Birna
Berg.
„Þetta er ótrúlegt lið og ótrú-
legir karakterar i þessu liði. Ég
er hrikalega stolt af því að spila
fyrir IK Sävehof,“ sagði Birna
Berg en þetta var sjötta árið í
röð sem Sävehof vinnur sænska
titilinn. „Ég er búin að kynnast
ótrúlegu sigurhugafari i þessum
klúbb og ég sjálf hef breytt því
hvernig ég hugsa,“ segir Birna
Berg en hvernig gekk?
„Fyrsti veturinn gekk upp
og niður. Það er alveg satt sem
maður heyrir að atvinnumennska
sé ekki bara dans af rósum.
Þegar ég hugsa til baka þá er ég
ágætlega sátt með mína frammi-
stöðu en þetta hefur verið lær-
dómsríkur vetur. Ég hef þrosk-
ast mikið síðan ég flutti út og hef
tekið framförum, bæði í hand-
bolta sem og í heimilisstörfun-
um,“ segir Birna í léttum tón.
Birna Berg varð Íslandsmeistari
með Fram í fyrra. „Þetta var allt
öðruvísi því ég handabrotnaði í
undanúrslitunum í fyrra og gat
ekki verið með í úrslitaeinvíginu.
Ég varð því að horfa á allt einvíg-
ið uppi í stúku en núna fékk ég að
vera með og það er allt önnur til-
finning,“ segir Birna Berg. Hún
segist hafa bætt sig á þessum
fyrsta vetri í Svíþjóð.
„Ég hef bætt mig á þessu tíma-
bili og þá helst sem varnarmað-
ur. Ég hef líka breytt hugarfari
mínu gagnvart varnarleik,“ segir
Birna og viðurkennir fúslega að
hafa ekki haft allt of gaman af
því að standa í vörninni þegar
hún spilaði á Íslandi. Birna Berg
segist líka vera sterkari andlega
eftir veturinn. „Oft átti ég erfitt
með að spila ef fyrsta skotið mitt
klikkaði en núna hugsa ég ekki
einu sinni um það ef ég klikka,“
segir Birna og næst á dagskrá er
að hjálpa íslenska landsliðinu að
komast á EM. „Ég ætla að gera
allt mitt til að við komumst á
EM,“ segir Birna. - óój
Bætti sig bæði í handbolta og heimilisstörfunum
Birna Berg Haraldsdóttir varð sænskur meistari í handbolta með Sävehof-liðinu um helgina.
MEÐ BIKARINN Birna Berg Har-
aldsdóttir fagnar hér til hægri titlinum
með Sävehof. MYND/ÚR EINKASAFNI
FÓTBOLTI Atli Viðar Björnsson
hefur ekki fengið margar mínút-
ur í sumar en honum hefur engu
að síður tekist að bjarga stigum
fyrir FH-liðið í tveimur leikjum
í röð. Markakóngur Pepsi-deild-
arinnar 2013 hefur ekkert kólnað
niður þrátt fyrir harðan vetur og
það er ekki síst honum að þakka að
FH-liðið situr nú í efsta sæti Pepsi-
deildarinnar að loknu fimm leikja
hraðmóti maímánaðar.
Heimir Guðjónsson hefur sent
Atla Viðar inná á 64. mínútu í síð-
ustu tveimur leikjum og Atli Viðar
hefur launað honum með mikil-
vægu marki í þeim báðum.
Í fyrri leiknum í stöðunni 0-0
á móti ÍBV þar sem Atli Viðar
skoraði sigurmarkið á fimmtu
mínútu í uppbótartíma. Í seinni
leiknum kom Atli Viðar inn á
umræddri 64. mínútu þegar FH-
liðið var bæði marki og manni
undir á útivelli á móti Keflavík.
Atli Viðar skoraði jöfnunarmark-
ið á 83. mínútu.
Keflvíkingar ættu reyndar að
vera orðnir vanir því að sækja
boltann í markið sitt eftir skot frá
Atla Viðari sem hefur nú skorað í
fimm leikjum í röð á móti Kefla-
víkurliðinu eða öllum leikjum
sínum gegn liði Bítlabæjarins frá
því sumarið 2010.
Atli Viðar fékk ekkert að koma
við sögu í fyrstu þremur leikjum
FH-liðsins en með því að skora í
báðum sínum leikjum hefur hann
nú náð að skora í sex síðustu leikj-
Hefur skorað á hálft íma fresti
Atli Viðar Björnsson er búinn að skora í sex leikjum í röð í Pepsi-deildinni.
INN Á MEÐ HANN Atli Viðar Björnsson
og Heimir Guðjónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ATLI VIÐAR MEÐ MARK Í SEX LEIKJUM Í RÖÐ
um sínum í Pepsi-deildinni og það
samtals 9 mörk.
Það merkilega er að Atli Viðar
hefur komið inn á sem varamaður
í fjórum af þessum sex leikjum og
skorað „úrslitamark“ í þeim öllum
eða tvö sigurmörk og tvö jöfnun-
armörk. Atli Viðar hefur aðeins
spilað í 272 mínútur (af 540 mögu-
legum, 50 prósent) í þessum sex
leikjum sem þýðir að hann hefur
skorað á hálftíma fresti í síðustu
sex deildarleikjum sínum.
Nú er Atli Viðar kominn með 92
mörk í efstu deild og nálgast óðum
hundrað marka kúbbinn. Atla
Viðar vantar tvö mörk til að jafna
Matthías Hallgrímsson í 5. sætinu
og þrjú mörk til að ná Hermanni
Gunnarssyni í 4. sætinu. - óój
mínútur
hjá Atla
90
30
0 16 24 90 90 26 26
Sigurmark
Jöfnunarmark
Mark
2013 2014
Flestir Þýskalandsmeistaratitlar íslenskra handboltamanna
ÍSLENSKIR ÞJÁLFARAR
6 sinnum - Alfreð Gíslason Magdeburg 2001 og Kiel 2009-10, 2012-2014
1 - Jóhann Ingi Gunnarsson Essen 1987
ALLIR ÞJÁLFARAR Í ÞÝSKU DEILDINNI
1. sæti Zvonimir Serdarusic 11 sinnum (með Kiel frá 1994 til 2008)
2. sæti Alfreð Gíslason 6 sinnum (með Magdeburg og Kiel)
3. sæti Klaus Zöll, Petre Ivanescu og Heiner Brand allir 3 sinnum
ÍSLENSKIR LEIKMENN
4 sinnum - Aron Pálmarsson með Kiel 2010, 2012, 2013, 2014
2 - Alfreð Gíslason með Essen 1986, 1987
2 - Guðjón Valur Sigurðsson með Kiel 2013, 2014
1 - Axel Axelsson og Ólafur H. Jónsson með Dankersen 1977
1 - Kristján Arason með Gummersbach 1988
1 - Ólafur Stefánsson með Magdeburg 2001
HANDBOLTI Fögnuður leikmanna
Kiel var rosalegur þegar þeir átt-
uðu sig að þeir höfðu unnið upp
sjö marka forskot Rhein-Neckar
Löwen og tryggt sér þýska meist-
aratitilinn þriðja árið í röð.
Alfreð Gíslason, þjálfari Kiel,
var að gera lið að þýskum meistur-
um í sjötta sinn á ferlinum en sjón-
varpsmyndirnar sýndu hann varla
trúa þessu fyrr en allir leikmenn
og starfsmenn Kiel voru farnir að
hoppa um í stjórnlausri gleði allt í
kringum hann.
Alfreð Gíslason átti ekki síður
stórleik en leikmennirnir hans í
fjórtán marka sigri á Füchse Berl-
in. Alfreð var á milljón á hliðar-
línunni allan leikinn og það rann
af honum svitinn í sjónvarpsvið-
tali eftir leik. Hann var búinn að
skrifa enn einn kaflann í titla-
bók sína og það á tímabili þegar
hver stórstjarnan á fætur annarri
yfirgaf Kiel.
Á sama tíma og leikmenn Kiel-
liðsins voru búnir að brjóta niður
alla mótstöðu hjá lærisveinum
Dags Sigurðssonar fóru strákarn-
ir hans Guðmundar Guðmunds-
sonar algjörlega á taugum á loka-
kafla síns leiks.
Alexander Petersson kom Ljón-
unum átta mörkum yfir, 32-24,
þegar sautján mínútur voru
eftir en í stað þess að hlaupa yfir
Gumm ersbach-liðið á lokakafl-
anum fór allt í baklás og Guð-
mundur þurfti að horfa upp á sína
menn skjóta markvörð Gummers-
bach í stuð. Í lokin munaði aðeins
fimm mörkum, 40-35, en átta
marka munur hefði dugað. Enda-
sprettur Kiel fær sinn sess í sögu-
bókunum.
„Þetta er sögulegt og einstakt,“
sagði Alfreð Gíslason í sjónvarps-
viðtali eftir leik. „Ég hef aldrei
upplifað svona og satt að segja þá
bjóst ég aldrei við þessu. Ég hélt
að síðasta markið þeirra hefði
farið með þetta en ég er ótrúlega
stoltur af liðinu sem gaf allt,“
sagði Alfreð við Sport 1.
Alfreð náði nú að vinna þrjú ár
í röð, fyrstur íslenskra þjálfara,
og um leið hjálpaði hann Aroni
Pálmarssyni að bæta sitt met því
Aron er eini íslenski handbolta-
maðurinn sem hefur orðið þýskur
meistari þrjú ár í röð. Með í för
eins og í fyrra var Guðjón Valur
Sigurðsson, sem var einnig að
vinna meistaratitil þriðja árið í
röð, tveir þeir síðustu komu með
Kiel en þann fyrsta vann hann í
Danmörku með AG vorið 2012.
Sigur Kiel er magnað afrek hjá
Einstök þrenna hjá Alfreð og Aroni
Kiel varð þýskur meistari í handbolta á ógleymanlegan hátt um helgina þegar liðið „stal“ titlinum af Ljónunum á síðustu stundu. Alfreð
Gíslason og Aron Pálmarsson urðu þar með fyrsti þjálfarinn og leikmaðurinn frá Íslandi til að vinna þýsku deildina þrjú ár í röð.
Alfreð á þessu „millibilsári“ eftir
að liðið missti heimsklassaleik-
mennina Thierry Omeyer, Daniel
Narcisse, Momir Ilic og Marc us
Ahlm. „Það er ótrúlegt að ná þessu
þrátt fyrir þennan missi. Frá því
að við töpuðum fyrir Löwen þá
höfum við spilað stórkostlega vörn
og verið í miklum ham,“ er haft
eftir Guðjóni Val í staðarblaðinu
í Kiel.
Alfreð var strax farinn að hugsa
um næsta verkefni um næstu helgi
og setti sínum mönnum strang-
ar reglur. Hann leyfði bara tvo
bjóra á mann í stuttri sigurhátíð í
miðbæ Kiel og skipulagði æfingu
fyrir hádegi daginn eftir. Undir-
búningurinn fyrir Meistaradeild-
ina hófst því strax. „Ef menn hefðu
farið að fagna núna þá ættum við
enga möguleika á því að vinna um
næstu helgi,“ sagði Alfreð.
ooj@frettabladid.is