Fréttablaðið - 26.05.2014, Page 62
26. maí 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 30
MORGUNMATURINN
… og passar með öllu
www.ms.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
„Kaffi, linsoðið egg og lárpera.“
Harpa Björnsdóttir, myndlistarmaður
„Þetta er allt handgert og unnið
í sameiningu,“ segir fatahönnuð-
urinn Guðmundur Jörundsson en
hann vinnur nú að fatnaði ásamt
myndlistarmanninum Haraldi
Jónssyni. „Þetta er svona mynd-
listartískublanda,“ segir Guð-
mundur en tvíeykið silkiprentar
grafík sem Haraldur gerir á buxur
sem Guðmundur hannar. „Það er
spennandi að tefla saman þess-
um tveimur heimum myndlistar
og tísku og sjá hvað gerist. Það
er fallegur árekstur“ segir Har-
aldur um samstarfið. „Hugmynd-
in fæddist eiginlega á vinnustof-
unni minni,“ segir listamaðurinn
sem hefur verið að vinna mikið
með samspil líkamans við heim-
inn og umhverfið. „Það var eigin-
lega uppsprettan að verkinu, sam-
skiptamunstur okkar og hvernig
við erum í hverju einasta skrefi að
taka ákvörðun um hvað við ætlum
að gera næst.“
Samstarfsmennirnir hafa unnið
að verkefninu í tvo mánuði og ætl-
uðu að sýna afraksturinn í sumar
en ákváðu að halda sýninguna
frekar á sama tíma og Listahátíð
Reykjavíkur er í fullum gangi og
bjóða því til veislu í verslun Guð-
mundar, JÖR, næsta fimmtudag
klukkan sex. „Það verður innsetn-
ing í búðinni, og smá partí,“ segir
Guðmundur en tískuáhugafólk
getur glaðst yfir því að gallabux-
urnar umtöluðu verða til sölu.
„Fólk getur keypt buxurnar í
mjög takmörkuðu upplagi, það
verða bæði dömu- og herragalla-
buxur,“ segir fatahönnuðurinn
og bætir því við að þetta sé kjör-
ið tækifæri til þess að kaupa sér
list sem hægt er að ganga í. „Svo
er líka hægt að ramma þær inn og
hafa þær upp á vegg, svona eins og
á Hard Rock.“ baldvin@365.is
Myndlistartískublanda
Fatahönnuðurinn Guðmundur Jörundsson hannar fatnað sem Haraldur Jónsson
silkiprentar list sína á en fötin verða til sýnis á fi mmtudaginn klukkan sex.
TVEIR HEIMAR Haraldur Jónsson hefur unnið mikið með samspil líkamans við heiminn og umhverfið. MYND/BALDUR KRISTJÁNSSON
Það er spennandi
að tefla saman þessum
tveimur heimum mynd-
listar og tísku og sjá
hvað gerist. Það er
fallegur árekstur.
„Prógrömm eins og þessi gefa ungu kvikmynda-
gerðarfólki meiri möguleika,“ segir leikstjórinn
Guðmundur Arnar Guðmundsson. Hann fór á kvik-
myndahátíðina í Cannes að kynna handrit stutt-
myndar sinnar, Hjartasteins, á vegum Cannes Res-
idence. Guðmundur fékk Cannes Residence í kjölfar
verðlauna sem hann hlaut fyrir stuttmynd sína
Hvalfjörð í fyrra, ásamt framleiðandanum Antoni
Mána Svanssyni. Cannes Residence býður upp á sex
mánaða dvöl í París til að vinna að handritsþróun,
hitta leikstjóra og taka þátt í ákveðnum díalóg.
„Þau einfalda ferlið og opna dyr. Það að hafa tæki-
færi til að taka góðan tíma í þróun eins og í gegn-
um Cannes Residence með aðgangi að fagaðilum er
ómetanlegt,“ segir Guðmundur.
Guðmundur og Anton áætla að hefja tökur á
Hjartasteini í byrjun næsta árs. Myndin segir frá
sterku vinasambandi tveggja stráka. Á meðan hinn
þrettán ára Þór er að yfirstíga óttann gagnvart stelp-
um með aðstoð besta vinar síns, Kristjáns, er Krist-
ján að horfast í augu við leyndarmál sem hann vill
ekki samþykkja. - igg
Aðgangur að fagaðilum ómetanlegur
Leikstjórinn Guðmundur Arnar Guðmundsson þróar nýja stuttmynd í Cannes.
Hvalfjörður hefur hlotið fjölmörg
verðlaun og var meðal annars valin
besta stuttmynd á Hamptons-kvik-
myndahátíðinni í Bandaríkjunum.
NÝ STUTTMYND Guðmundur fer í
tökur á Hjartasteini á næsta ári.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Það er ekki á hverjum degi sem
verða til lúðrasveitir á Íslandi en
gamlir skólafélagar úr Grafar-
vogi ákváðu að rifja upp gamla
takta og stofnuðu Brassband
Reykjavíkur á dögunum. „Við
tókum saman í fyrra eftir mikla
endurfundi,“ segir Guðmundur
Hreiðarsson, einn meðlima brass-
bandsins. „Stofnmeðlimir skóla-
hljómsveitarinnar komu saman
og spiluðu í tilefni 20 ára afmæl-
is hennar,“ segir Guðmundur en
flestir hljóðfæraleikararnir höfðu
ekki spilað í um áratug þegar tón-
leikarnir fóru fram. „Síðan gátum
við einfaldlega ekki hætt að spila
eftir tónleikana og úr varð Brass-
band Reykjavíkur,“ segir Guð-
mundur.
Brassbandið sker sig úr hefð-
bundnum lúðrasveitum þar sem
það eru einungis málmblásturs-
hljóðfæri í bandinu. „Brassið varð
til í Englandi þegar námumenn-
irnir voru sendir í brassbönd svo
þeir væru ekki að drekka sig fulla
á kvöldin,“ segir hljóðfæraleikar-
inn og hlær. „Síðan voru þeir látn-
ir spila á lúðra því það voru ódýr-
ustu hljóðfærin.“
Hljómsveitin fer ekki hægt af
stað en hún kemur fram á tón-
leikum næsta miðvikudag klukk-
an átta í Fella- og Hólakirkju.
„Þetta er ferlega skemmtilegt
fyrir okkur sem erum að spila og
ég vona að það sé það líka fyrir
þá sem hlusta,“ segir Guðmundur
og hlær.
Dusta rykið af
hljóðfærunum
Stofnmeðlimir Skólahljómsveitar Grafarvogs
stofnuðu Brassband Reykjavíkur.
RIFJA UPP GAMLA TAKTA Guðmundur Hreiðarsson er einn meðlima brass-
bandsins. MYND/ÚR EINKASAFNI