Fréttablaðið - 27.05.2014, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Þriðjudagur
14
GAMLIR FÓSTBRÆÐUR TAKA LAGIÐ
Karlakórinn Gamlir Fóstbræður og Jónas Ingimundar-
son koma saman í Salnum í Kópavogi á fimmtudag,
uppstigningardag, kl. 16. Kórinn leggur áherslu á að
flytja gömul og góð karlakórslög. Stjórnandi kórsins
er Árni Harðarson en Jónas Ingimundarson var um
árabil stjórnandi hans.
F æðan sem við neytum hefur áhrif á heilsu okkar og það sama er að segja um snyrtivörur. Húðin er stærsta líffærið okkar og allt sem við setjum á hana getur farið út í blóðrás-ina og haft áhrif á líkamsstarfseminStaðrey di
vörum sem við berum á húðina,“ segir
Elísabet Guðmundsdóttir, viðskipta-stjóri snyrtivöru hjá Gengur vel.
ENGIN EITUREFNI
NÝTT FRÁ BENECOSGENGUR VEL KYNNIR benecos-förðunarvörurnar sem hafa slegið í gegn og
nú eru komnir ferskir litir fyrir sumarið. Benecos eru lífrænt vottaðar snyrti-
vörur á verði sem kemur þér skemmtilega á óvart!
SÖLU-
STAÐIR
MEGA LAGERHREINSUN ÞRIÐJUDAG OG MIÐVIKUDAG
Buxur, galla og kvart á 5.000
Pils á 5 000
2 0 1 4
00000
w w w . v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
36 vötn
6.900 kr
MÓTORHJÓLÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2014
2 SÉRBLÖÐ
Mótorhjól | Fólk
Sími: 512 5000
27. maí 2014
123. tölublað 14. árgangur
SKOÐUN Hjalti Hugason
spyr hvort afturkalla eigi
lóðir trúfélaga. 15
MENNING Stórfenglegur
flutningur á þriðju sinfóníu
Mahlers á Listahátíð. 22
LÍFIÐ Vefsíðan Femme.is er
nýtt lífsstílsblogg sem sex
stelpur hafa stofnað. 30
SPORT Kári Árnason upp
um tvær deildir á tveimur
árum með Rotherham. 26
rjóminn af
sýrða rjómanum
gottimatinn.is
NÝTT
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
Bolungarvík 8° SV 6
Akureyri 12° SV 2
Egilsstaðir 14° SV 4
Kirkjubæjarkl. 12° S 3
Reykjavík 11° S 5
SKÚRIR VESTRA Í dag verða
suðvestan víðast 3-8 m/s. Víða bjart
með köflum en skýjað og skúrir vestra.
Hiti 8-16 stig. 4
GARÐABÆR Fyrirtæki í eigu Ásdísar
Höllu Bragadóttur, fyrrverandi bæj-
arstjóra í Garðabæ, er í tugmillj-
óna króna viðskiptum við Garða-
bæ á hverju ári án þess að útboð
hafi farið fram. Fyrirtæki hennar,
Sinnum ehf., sinnir heimaþjónustu
við aldraða í bænum. Keppinautur
fyrir tækisins segir Garðabæ hafa
horft framhjá sér.
Samningur milli Sinnum ehf. og
Garðabæjar var undirritaður 15.
janúar 2009. Bæjarfélagið greiddi
fyrirtækinu tæpar 85 milljónir
króna á síðustu tveimur árum, 47
milljónir fyrir árið 2013 og tæpar
38 milljónir fyrir árið 2012.
Innkaupareglur Garðabæjar
kveða á um að meginreglan sé sú
að beita skuli útboði við innkaup.
Skylt sé að viðhafa útboð þegar
áætluð samningsfjárhæð vegna
kaupa á þjónustu fer yfir 15 milljón-
ir króna. Einnig segir í reglum um
opinber innkaup á Evrópska efna-
hagssvæðinu að fari þjónustukaup
sveitarfélags yfir 33 milljónir þurfi
að bjóða þau út á opnum markaði.
Það var ekki gert í þessu tilviki og
hefur ekki verið gert hingað til.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, segir þetta eiga sér
eðlilegar skýringar. „Þegar við
ákváðum fyrst að koma þessu í
hendur einkaaðila könnuðum við
markaðinn og þá kom í ljós að
aðeins eitt fyrirtæki sinnir þessum
málum á einkamarkaði. Ákveðið
var að fara þessa leið á sínum tíma
til að bæta þjónustuna við þá sem
þurfa á félagslegri heimaþjónustu
að halda,“ segir Gunnar.
Hann vildi ekki fara út í hvern-
ig bærinn hefði staðið að athugun á
fyrirtækjunum.
Vinun ehf. hóf störf árið 2007, ári
áður en Sinnum ehf. var stofnað, og
sinnir svipuðum verkefnum. Fyrir-
tækin eru í samkeppni og Vinun var
á markaði þegar Garðabær skrifaði
undir samning við Sinnum. Gunn-
hildur Heiða Axelsdóttir, eigandi
Vinunar, telur Garðabæ hafa geng-
ið fram hjá henni. „Vinun fékk ekki
tækifæri á þessum tíma til að gera
tilboð í heimaþjónustu fyrir aldr-
aða,“ segir hún.
Ásdís Halla Bragadóttir vildi ekki
tjá sig um málið þegar eftir því var
leitað. sveinn@frettabladid.is
Fyrirtæki fyrrverandi bæjar-
stjóra fékk samning án útboðs
Fyrirtækið Sinnum ehf. er í viðskiptum við Garðabæ vegna samninga um heimaþjónustu. Þjónustan var ekki
boðin út eins og reglur kveða á um. Fyrrverandi bæjarstjóri er stjórnarformaður og stofnandi fyrirtækisins.
Þegar við ákváðum
fyrst að koma þessu í
hendur einkaaðila könn-
uðum við markaðinn og
þá kom í ljós að aðeins eitt
fyrirtæki sinnir þessum
málum á einkamarkaði.
Gunnar Einarsson,
bæjarstjóri Garðabæjar
STJÓRNMÁL Nokkrir forystumanna
Framsóknarflokksins gagnrýna
harðlega ummæli Sveinbjarg-
ar Birnu Sveinbjörnsdóttur, odd-
vita flokksins í Reykjavík, þess
efnis að taka eigi til baka lóð sem
múslímar hafa fengið úthlutað
fyrir mosku í Safamýri.
Gunnar Bragi Sveinsson, utan-
ríkisráðherra og þingmaður Fram-
sóknar, segir á fésbókarsíðu sinni
að hann taki undir með Sigrúnu
Magnúsdóttur þingflokksfor-
manni um að skoðanir Sveinbjarg-
ar Birnu endurspegli ekki afstöðu
flokksins. Gunnar Bragi er fyrsti
ráðherra Framsóknarflokksins
sem tjáir sig um málið. Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson, forsætisráð-
herra og formaður Framsóknar-
flokksins, vildi ekki tjá sig um
ummælin í gær.
Í stóru málunum á Stöð 2 í gær-
kvöld sagði Kristinn Þór Jakobs-
son, oddviti Framsóknarflokks-
ins í Reykjanesbæ, að ummælin
stríddu gegn grundvallarstefnu
Framsóknarflokksins og að
hann væri þeim ósammála.
Samkvæmt nýrri skoðana-
könnun MMR sem birt
var í gær er Framsókn-
arflokkurinn nálægt
því að ná inn fulltrúa í
borgarstjórn. Ólafur
Þór Gylfason, fram-
kvæmdastóri MMR,
segir að færi svo yrði
það á kostnað Sjálf-
stæðisflokksins, sem
fengi þá þrjá fulltrúa. Ólafur Þór
segir að sé miðað út frá gildum
atkvæðum greiddum í borgar-
stjórnarkosningum 2010 sé mun-
urinn eitt atkvæði.
Samkvæmt könnun MMR er
Samfylking með fimm borg-
arfulltrúa, Björt framtíð
og Sjálfstæðisflokkur með
fjóra, Vinstri græn og Pírat-
ar með einn borgarfulltrúa
hvor.
Könnunin var gerð
dagana 20. til 23. maí
eða áður en umdeild
ummæli Sveinbjarg-
ar Birnu féllu. -jme
Framsókn nálægt því að ná manni í borgarstjórn samkvæmt nýrri könnun:
Sverja orð oddvita af flokknum
SVEINBJÖRG BIRNA
SVEINBJÖRNSDÓTTIR
VEGUR BREIKKAÐUR Grafa frá verktakafyrirtækinu Ístak vinnur við breikkun á veginum um Kambana. Breikkunin er mikið
öryggisatriði, enda fara á bilinu sex til átta þúsund bílar um Hellisheiði daglega. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
VEGAGERÐ Unnið er að því þessa
dagana að breikka veginn um
Kambana fyrir ofan Hvera-
gerði, þannig að hann verði
tvær akreinar í báðar áttir.
Verkið er hluti af breikkun
hringvegarins á tæplega 15 kíló-
metra kafla á Hellisheiði, frá
Hamragilsvegamótum að hring-
torgi við Hveragerði.
Verktakafyrirtækið Ístak sér
um verkið. Á heimasíðu Ístaks
segir að að loknum framkvæmd-
um verði vegurinn um heiðina
2+1 vegur en 2+2 vegur í Kömb-
unum. Vegurinn verður með
aðskildum akreinum alla leið,
með miðjuvegriði.
Breikkun vegarins er mikið
öryggisatriði, enda fara á bilinu
6.000 til 8.000 bílar um Hellis-
heiði daglega og skyggni er oft
slæmt, jafnvel um hásumar má
gera ráð fyrir þoku. - jme
Framkvæmdir í Kömbunum:
Akreinum mun
fjölga um eina
Hótelskip í Hafnarfirði
Samningar vegna hótel- og veitinga-
skips í Hafnarfjarðarhöfn eru sagðir á
lokastigi. 2
Eiginmaður neitar sök Tvær
andlega fatlaðar konur hafa lagt fram
kæru gegn manni sem þær segja hafa
brotið gegn sér kynferðislega. 4
Úthlutun helmingi minni Bóka-
safnssjóður fékk í ár 22 milljónir
króna frá ríkinu en 42,6 milljónir í
fyrra. 6
Pólitískur jarðskjálfti Flokkar sem
vilja takmarka völd ESB fengu nærri
30 prósent þingsæta í kosningum til
Evrópuþingsins. 10