Fréttablaðið - 27.05.2014, Blaðsíða 4
27. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
4.776 krónur var meðal-verð á herraklipp-
ingu í febrúar síðastliðnum.
Klippingin kostaði 3.832 krónur í
febrúar 2010 og hefur því hækkað
um nærri 25 prósent í verði.
KJARAMÁL Í gær var skrifað
undir kjarasamning milli
Flugfreyjufélags Íslands og
Icelandair eftir 26 tíma lang-
an samningafund hjá ríkis-
sáttasemjara. Samið var til
ágústloka 2015.
Því verður ekki af verk-
falli sem átti að hefjast klukk-
an sex í morgun. Hins vegar
hefur verið boðað til verk-
falls 12. júní samþykki flugfreyjur
ekki samninginn. Sigríður Ása Harð-
ardóttir, formaður Flugfreyjufélags
Íslands, segir launahækkan-
ir vera í takt við hækkanir
flugmanna Icelandair. Guð-
jón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, segir allar
flugferðir félagsins nú vera á
áætlun. Guðjón segir óvíst
hvaða áhrif kjaradeilur Ice-
landair og starfsmanna hafi
á afkomu félagsins.
Enn er ósamið milli flug-
virkja og Icelandair. Þeim samninga-
viðræðum hefur verið skotið til ríkis-
sáttasemjara. - ih
Flug er á áætlun eftir að samningar náðust í kjaradeilu flugfreyja og Icelandair eftir 26 tíma fund:
Flugfreyjur gerðu samning út ágúst 2015
SAMNINGUR
Í HÖFN Samn-
ingurinn var
handsalaður
hjá ríkissátta-
semjara í gær.
FRÉTTBALAÐIÐ/VALLI
GUÐJÓN
ARNGRÍMSSON
ÍSRAEL Frans páfi lauk ferð sinni
um Mið-Austurlönd í gær þegar
hann heimsótti ýmsa helgidóma í
Jerúsalem.
Í Al-Asque-moskunni hvatti
páfi fólk af öllum trúarbrögðum
til að vinna saman að réttlæti og
friði. Því næst baðst hann fyrir við
Grátmúrinn þar sem hann skildi
eftir bréfmiða.
Forsetar Ísraels og Palestínu
hafa fagnað páfanum, og hafa
þeir báðir þegið fundarboð hans
til Vatíkansins.
Frans hélt einnig ræðu þar
sem hann minntist helfararinnar.
„Megi enginn misnota nafn guðs í
þágu ofbeldis framar. - kóh
Hvatti til friðar og réttlætis:
Páfi lýkur ferð
í Jerúsalem
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð Seyð-
isfjarðar tekur undir bókun bæj-
arstjórnar Fljótsdalshéraðs um
sameiningu sveitarfélaga á Aust-
urlandi. „Í því samhengi telur
bæjarráð að einn af vænleg-
ustu kostunum geti verið sam-
eining Seyðisfjarðarkaupstað-
ar og Fljótsdalshéraðs,“ segir
bæjarráðið sem kveður fulltrúa
Seyðisfjarðar hafa unnið af heil-
indum að verkefni á vegum Sam-
bands sveitarfélaga á Austur-
landi um að kanna kosti og galla
sameiningar allra sveitarfélaga
í fjórðungnum. Það sé miður að
verkefnið hafi lagst af. - gar
Seyðisfjörður vill sameinast:
Horfa yfir heiði
til Héraðsbúa
SEYÐISFJÖRÐUR Tækifæri í samein-
ingu upp á Egilsstaði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
GRÁTMÚRINN Páfi snerti múrinn,
baðst fyrir og skildi eftir bréfmiða í
glufu milli steinanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
NORÐUR-KÓREA Yfirvöld í Norð-
ur-Kóreu hafa líflátið fjóra
byggingarverkfræðinga eftir að
23 hæða bygging hrundi í Pjong-
jang, höfuðborg ríkisins.
Auk verkfræðinganna var
embættismaður hersins sem
hafði yfirumsjón með byggingu
hússins sendur í fangabúðir.
Þótt nákvæm orsök hrunsins
sé óþekkt, er líklegt að hunda-
vaðsháttur hafi verið í vinnu-
brögðum iðnaðarmanna sem
unnu að byggingu hússins.
Algengt er að ýmsum bygg-
ingarhráefnum sé stolið til sölu
á svörtum markaði. - kóh
Fjórir verkfræðingar líflátnir:
Háhýsi hrundi í
Norður-Kóreu
SAMFÉLAGSMÁL Samtök græn-
metisæta kusu um veitingu
hvatningarviðurkenninga fyrir
framúrskarandi þjónustu og
vöruframboð fyrir grænmetis-
ætur.
Í ár hljóta fyrirtækin Bulsur,
Ísbúðin Valdís og Gló hvatningar-
verðlaunin, og fá því afhent við-
urkenningarskjöl samtakanna.
Bulsur hlutu verðlaunin fyrir
vöruþróun og markaðssetningu
á grænmetispylsum, Valdís fyrir
framboð af vegan ísréttum og Gló
fyrir sífellda vöruþróun og gott
framboð grænmetisrétta. - kóh
Þrjú fyrirtæki verðlaunuð:
Hvatning til
grænmetisæta
LÖGREGLUMÁL Eiginmaður for-
stöðukonu sumardvalarheimilis
fyrir fatlaða, rétt utan við Sel-
foss, neitar að hafa brotið gegn
tveimur fötluðum konum sem
hafa kært hann fyrir kynferðis-
brot gegn sér.
Um tvö aðskilin mál er að ræða
en rannsókn annars þeirra er
lokið og er það nú til meðferðar
hjá ríkissaksóknara. Búist er við
að rannsókn síðara málsins klár-
ist í næsta mánuði.
Manninum er gefið að sök að
hafa brotið gegn konunum tveim-
ur, sem eru þroskahamlaðar, síð-
astliðið sumar. Forstöðukona
heimilisins greindi Fréttablaðinu
frá því að önnur konan hefði lýst
bílferð sem hún fór í ein með
manninum en sjálf vill forstöðu-
konan meina að slíkt hafi aldrei
átt sér stað. Jafnframt greindi
hún frá því að sér sé ætlað að
hafa komið að manni sínum við
eitt brotanna en konan harðneitar
að það hafi nokkru sinni átt sér
stað. Hún segist ekki leggja neina
trú á sögu kvennanna og segir
þær hafa eyðilagt starfsemi sína.
Maðurinn sem kærður hefur
verið fyrir brotið neitar sömuleið-
is sök. „Það á bara eftir að koma í
ljós hvernig þetta horfir við mér,“
segir maðurinn. „Þetta mál hefur
bara sinn gang og það verða vænt-
anlega dómstólar að skera úr um
það hvað er rétt og hvað er rangt
í þessu.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins er álitamál um grófleika
brotanna. Rannsókn málsins muni
leiða í ljós hvort um brot gegn 194.
grein almennra hegningarlaga sé
að ræða en samkvæmt því ákvæði
telst það nauðgun að notfæra sér
andlega fötlun manns til þess að
hafa við hann samræði eða önnur
kynferðismök. Einnig komi til álita
að brotin falli undir 199. grein lag-
anna en hún snýr að banni við kyn-
ferðislegri áreitni sem meðal ann-
ars felst í káfi á kynfærum eða
brjóstum annars manns innan
klæða sem utan.
Sumardvalarheimilið hefur
verið starfrækt um áratugaskeið.
Starfsemi þess var hætt þegar
ásakanirnar komu upp og segir
forstöðukona heimilisins að starfið
verði ekki tekið upp að nýju þegar
málinu lýkur.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var félagsmálayfirvöld-
um í nærliggjandi sveitarfélögum
greint frá því að rannsókn málsins
stæði yfir. Ekki hafa komið fram
fleiri ásakanir á hendur mannin-
um.
snaeros@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolli@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
*ATH. takmarkað magn á einstökum vörum.
sala@nyherji.is // 569 7700
Bleksprautuprentarar, fjölnotaprentarar, laserprentarar,
ljósritunarvélar og teikningaprentarar.
Prentaradagar
Allt að 40% afsláttur*
Eiginmaður forstöðu-
konu neitar allri sök
Tvær andlega fatlaðar konur hafa lagt fram kæru gegn manni sem þær segja
hafa brotið gegn sér kynferðislega. Maðurinn er búsettur á sumardvalarstað fyrir
fatlaða sem konurnar hafa heimsótt. Maðurinn neitar að brotin hafi átt sér stað.
ÁRALÖNG STARFSEMI Heimilið hefur tekið á móti fötluðu fólki í sumardvöl um
áratugaskeið. Samkvæmt heimildum hafa ekki komið fram ásakanir fyrr um kyn-
ferðisbrot.
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
MILT NÆSTU DAGA Ljómandi fínt veður næstu daga, einkum á morgun og á
uppstigningardag. Áfram suðlægar áttir ríkjandi og milt í veðri. Lítils háttar úrkoma
vestan til í dag en úrkomulítið og léttir til á morgun.
8°
6
m/s
10°
7
m/s
11°
5
m/s
11°
7
m/s
3-8 m/s.
Víðast
mjög
hægur
vindur.
Gildistími korta er um hádegi
28°
32°
18°
18°
18°
11°
16°
18°
18°
23°
17°
22°
22°
29°
21°
23°
17°
18°
12°
3
m/s
10°
5
m/s
14°
4
m/s
12°
3
m/s
12°
2
m/s
13°
4
m/s
5°
5
m/s
14°
12°
11°
10°
12°
11°
17°
15°
16°
13°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
Þetta mál hefur bara
sinn gang og það verða
væntanlega dómstólar að
skera úr um það hvað er
rétt og hvað er rangt í
þessu.
Maðurinn sem var kærður fyrir
kynferðisbrotið.