Fréttablaðið - 27.05.2014, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 27.05.2014, Blaðsíða 6
27. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 6 1. Í hvaða banka fannst myglusveppur? 2. Hver er meðalaldur starfsfólks við kennslu í grunnskólum? 3. Hver er heimsmeistari unglinga í bekkpressu? SVÖR: 1. Landsbankanum. 2. 46 ár. 3. Fanney Hauksdóttir. VERKIN TALA Opnar meistaravarnir og kynningar á rannsóknarverkefnum við tækni- og verkfræðideild Hádegiserindi verða flutt kl. 12:15-12:45 Dagskrá: Hvers vegna og hvernig eyðileggjast efnin í mannslíkamanum? - Magnús Kjartan Gíslason Notkun kísils til einangrunar á litarefni úr örþörungum Bláa lónsins - Halldór G. Svavarsson Nýtt meistaranám í raforkuverkfræði við Háskólann í Reykjavík - Ragnar Kristjánsson Does the perceived risk attitude among Icelandic decision makers correlate with the reality of cost overruns? - Þórður Víkingur Friðgeirsson Notkun gagna við ákvarðanatöku - Hlynur Stefánsson Meistaraverkefni í verkfræði - Opnar kynningar og varnir útskrifarnema Þriðjudagur 27. maí Stofa: V102 Miðvikudagur 28. maí Stofa: V102 Mánudagur 2. júní Stofa: V102 Þriðjudagur 3. júní Stofa: V102 Miðvikudagur 4. júní Stofa: V102 Fimmtudagur 5. júní kl. 9-17 í Háskólanum í Reykjavík 27. maí - 5. júní ALLIR VELKOMNIR! Á BÓKASAFNI Barnabækur eru mest lánaðar auk bóka mikilsvirtra þýðenda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MENNING Rithöfundar og aðrir sem rétt eiga á úthlutun úr bókasafns- sjóði vegna afnota verka þeirra á bókasöfnum fá í ár 17,85 krón- ur fyrir hvert útlán. Í fyrra var úthlutun fyrir hvert útlán 36,90 krónur. Í ár fékk sjóðurinn 22 milljónir króna frá ríkinu til úthlutunar en í fyrra var upphæðin 42,6 milljón- ir. Alls fá 423 úthlutað úr sjóðnum í ár. Hæstu greiðslur eru tæplega 700 þúsund krónur og fá tveir um það bil þá upphæð. Um 380 manns fá undir 100 þúsundum króna en um 40 fá yfir 100 þúsund krónur, þar af fá einungis ellefu höfundar hærra en 200 þúsund krónur. „ Þ et ta er u náttúrulega engir peningar sem höfundar eru að fá fyrir lán á verkum sínum. Þ eim finnst sárgræti- legt að kastað sé í sjóðinn eftir hendinni. Þetta fer eftir ákvörðunum fjárveit- ingavaldsins á hverju ári. Sænsk- ir höfundar eru með samningsrétt og hitta ríkisvaldið á hverju ári til að semja um upphæðina. Flest- ir sem fá einhverjar bókasafns- greislur hafa einhverja samnings- stöðu en það höfum við ekki,“ segir Ragnheiður Tryggvadóttir, fram- kvæmdastjóri Rithöfundasam- bands Íslands og ritari úthlutunar- nefndar greiðslna fyrir afnot bóka á bókasöfnum. Hún segir að úthlutunin í fyrra hafi verið gleðileg. „Þá spýttu menn í með fjárfestingaáætlun en svo var hún tekin af okkur og 1,1 milljón króna í viðbót. Þegar sjóð- urinn var stofnaður árið 1998 voru 17,3 milljónir í honum. Þá sagði í áliti nefndar um sjóðinn að stefna bæri að því að hann yrði 90 millj- ónir á nokkrum árum og var þá miðað við nágrannalöndin.“ Sjóðurinn er svokallaður deili- tölusjóður, að sögn Ragnheiðar. Um 800 manns eru skráðir í sjóðinn. Í fyrra fengu 603 úthlutun eða tæp- lega 200 fleiri en í ár. Samkvæmt lögum er lágmarksgreiðsla þrjú þúsund krónur og hækkar hún sam- kvæmt framfærsluvísitölu. „Lág- marksgreiðslan í ár er 4.437 kónur. Það eru yfirleitt um 200 höfundar sem aldrei ná lágmarki. Þeir eru kannski bara með eina bók.“ Ragnheiður segir að það séu bækur barnabókahöfunda og bækur mikilsvirtra þýðenda sem mest séu lánaðar á bókasöfnum. „En það eru ekki þeir sem fá sam- tals mestu starfslaunin. Barna- bókahöfundar fá til dæmis mjög sjaldan heilt ár úr launasjóði og þeir fá helmingi minna en „full- orðinshöfundar“ fyrir bókina sína þar sem barnabækur eru seldar á helmingi lægra verði. Ef það væru alvörutölur í þessum sjóðum gætu barnabókahöfundar verið að fá þrenn mánaðarlaun út úr þessu.“ Framkvæmdastjórinn getur þess að á fundi með menntamála- ráðherra í vikunni hafi verið ákveðið að skipa þriggja manna nefnd til að skoða hvort hægt sé að setja inn í lög hvernig ákvarða eigi fjárhæð í bókasafnssjóðinn. ibs@frettabladid.is Úthlutun til höfunda helmingi minni í ár Bókasafnssjóður fékk í ár 22 milljónir króna frá ríkinu en 42,6 milljónir í fyrra. Höfundar hafa enga samningsstöðu. Í ár fá 423 af um 800 á skrá úthlutað úr sjóðnum en 603 í fyrra. Hæstu greiðslur nema tæplega 700 þúsund krónum. RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR Rithöfundar, þýðendur, mynd- höfundar, tónskáld og eftirlifandi makar rétthafa eða börn (undir 18 ára aldri) látinna rétthafa geta sótt um hjá sjóðnum og fengið greitt árlega miðað við útlán verka. Undanþágur eru þó nokkrar. Hverjir fá úthlutað? Krónur Fjöldi höfunda Yfir 600 þúsund 2 Yfir 200 þúsund 11 Yfir 100 þúsund 29 Undir 100 þúsund 380 Úthlutun til höfunda í ár SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR Vísir hefur í mán- uðinum staðið fyrir Oddvitaáskorun Vísis, þar sem þeir 184 oddvitar, sem leiða lista sína í 74 sveitarfélögum, fá tækifæri á að kynna sig og áherslur flokka sinna á léttum nótum. Oddvitar víða um land hafa nýtt sér tækifærið og er hægt að skoða afraksturinn á kosningavef Vísis. Áskorunin gengur út á að svara nokkrum lau- fléttum spurningum, taka „selfie“ og að taka upp mínútulangt myndband þar sem farið er yfir áherslur flokksins. Allir fimm oddvitar Akraneskaupstaðar hafa tekið þátt í Oddvitaáskoruninni og hefur mikið verið lagt í öll myndböndin. Allt fram að sveitarstjórnarkosningunum 31. maí munu kynningar á oddvitum víðs vegar um landið verða birtar á Vísi. Allir oddvitar geta tekið þátt. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á netfanginu samuel@365.is. - skó Vísir birtir kynningar á oddvitum framboða á landsvísu fyrir kosningarnar: Áherslur kynntar á léttum nótum LÖGGÆSLA Þrjú mál komu upp hér á landi í alþjóðlegri aðgerð, sem er nýlokið, gegn fölsuðum og ólöglegum lyfjum sem seld eru á netinu. Embætti tollstjóra og Lyfjastofnun tóku sameiginlega þátt í aðgerðinni, sem stóð í viku. Um er að ræða stærstu alþjóð- legu aðgerð gegn sölu ólöglegra lyfja sem framkvæmd hefur verið. Meðal fölsuðu og ólöglegu lyfjanna sem fundust voru megr- unarlyf, krabbameinslyf, malar- íulyf og stinningarlyf. - jme Tóku þátt í stórri aðgerð: Fundu fölsuð og ólögleg lyf ÚKRAÍNA Úkraínskir aðskilnaðar- sinnar hertóku flugvöllinn í borg- inni Donetsk í austurhluta Úkraínu í gærmorgun. Aðskilnaðarsinnar tóku flugvöll- inn með hervaldi snemma morguns. Síðar um daginn gerðu úkraínskir hermenn loftárás á flugvöllinn til þess að reka uppreisnarmennina á brott og taka stjórnina á ný. Undir kvöld hafði skothríðina lægt, og svo virtist sem átökunum hefði lokið, að sögn fréttastofu BBC. Átökin áttu sér stað morgun- inn eftir að Petro Porósjenkó, sæl- gætisauðkýfingurinn sem verður nýr forseti Úkraínu, talaði um að binda enda á óeirðirnar í samráði við Rússa. Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sagði rússnesku ríkisstjórnina tilbúna að ræða við Porósjenkó, en aðeins að því gefnu að ofbeldi gegn aðskilnaðarsinn- um linnti. Porósjenkó hyggst funda með rússnesku leiðtogunum í byrjun júní, eftir fund með og Bandaríkj- unum og ESB Póllandi. - kóh Aðskilnaðarsinnar tókust á við úkraínska herinn í austurhluta landsins í gær: Hart barist á flugvelli í Donetsk MÓTMÆLI Aðskilnaðarsinnar berjast hart fyrir því að Luhansk-hérað í Úkraínu geti lýst yfir sjálfstæði. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.