Fréttablaðið - 27.05.2014, Side 8
27. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
www.volkswagen.is
Fullkominn ferðafélagi
Tiguan kostar aðeins frá
5.360.000 kr.
Volkswagen Tiguan eyðir aðeins frá 5,8l /100 km
Volkswagen Tiguan
Í Volkswagen Tiguan sameinast fullkomið fjórhjóladrif, sparneytin dísilvél
og einstakir aksturseiginleikar sem veita þér algjört ferðafrelsi. BlueMotion
tæknin frá Volkswagen leggur áherslu á lágmarks eyðslu eldsneytis og
hámarks umhyggju fyrir umhverfinu. Kynntu þér kosti Volkswagen Tiguan
og veittu þér sannkallað frelsi til að ferðast.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði
A
uk
ab
ún
að
ur
á
m
yn
d:
á
lfe
lg
ur
, s
va
rt
ir
þ
ak
bo
ga
r
og
lj
ós
ka
st
ar
ar
í
fr
am
st
uð
ar
a
.
ORKUMÁL Möguleikar til raforku-
vinnslu með vindmyllum virðast hag-
kvæmari við Búrfell en víðast hvar
annars staðar í Evrópu. Svæðið mun
verða fýsilegt til vindorkunýtingar
um ókomin ár þrátt fyrir að loftslags-
breytingar komi til með að hafa áhrif
á vindafar.
Þetta er meðal niðurstaðna tveggja
meistaranema í umhverfis- og iðn-
aðarverkfræði við Háskóla Íslands,
þeirra Birtu Kristínar Helgadóttur
og Birgis Freys Ragnarssonar,
sem kynntu meistaraverkefni sín á
meistaradegi Verkfræðistofnunar á
fimmtudag.
Birta Kristín rannsakaði möguleg
áhrif loftslagsbreytinga á vindorku-
nýtingu við Búrfell, en talið er að þær
muni hafa mikil áhrif á veðurfar og
auka tíðni ofsaveðra og hugsanlega
breyta vindorkunýtingu hérlendis. Rannsóknin var gerð
í samstarfi við Veðurstofu Íslands og Landsvirkjun og
nýtt voru gögn frá mastri við Búrfell sem mælir vind-
hraða í 10 metra hæð yfir jörðu.
„Mín meginniðurstaða er sú að að orkuþéttleikinn
muni minnka um u.þ.b. 10-23 prósent, allt eftir því fyrir
hvaða tímabil var reiknað. Mestu breytingarnar virtust
vera á seinni hluta aldarinnar, en þó ekki svo miklar
að það hafi mikil áhrif á orkuframleiðslu,“ segir Birta.
Birgir lagði mat á mögulega framleiðslu vindorku og
greindi kostnað vindorkukerfis í Búrfelli.
„Rannsóknin leiddi í ljós að nýtni vindmylla í Búrfelli
er rúm 40 prósent að meðaltali. Einnig kom í ljós að
Enercon E44-vindmyllur í Búrfelli framleiddu umtals-
vert meiri orku en útgefnar aflkúrfur framleiðanda
spáðu til um. Lykilniðurstöður voru að kostnaður vind-
orku í Búrfelli var metinn á meðal lægsta kostnaðar
á kílóvattstund fyrir vindorku í Evrópu,“ segir Birgir.
Birgir vill ekki nefna neinar tölur að svo komnu máli,
en segir þó að matið sé frekar íhaldssamt. „Þó svo að
ekki sé farið bjartsýnustu leið í kostnaðarmati þá var
niðurstaðan samt sem áður sú að Hafið í Búrfelli getur
framleitt vindorku á samkeppnishæfu verði miðað við
framleiðslu í Evrópu,“ segir Birgir. svavar@frettabladid.is
Hafið er ákjósanlegt
til vindorkunýtingar
Þrátt fyrir loftslagsbreytingar bendir allt til að Hafið við Búrfell verði ákjósanleg-
ur staður til vindorkunýtingar um ókomin ár. Allt bendir til að Hafið henti óvenju
vel til raforkuvinnslu í evrópskum samanburði, bæði er varðar nýtni og kostnað.
Á HAFINU Tvær vindmyllur eru við Búrfell nú þegar en þær
teygja sig 55 metra í loft upp. Hver spaði er 22 metrar á lengd.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BIRGIR FREYR
RAGNARSSON
BIRTA KRISTÍN
HELGADÓTTIR
VENESÚELA Rúmlega fjögur hund-
ruð þúsund fleiri heimili skilgrein-
ast nú sem fátæk í Venesúela en
fyrir einu ári.
Hlutfall þeirra heimila sem búa
við örbirgð í landinu hefur hækkað
úr 21 prósenti í 27 prósent eða úr
1,4 milljónum manna í 1,8 millj-
ónir, samkvæmt tölfræðistofnun
venesúelska ríkisins.
Hækkunin kemur í kjölfar þess
að verðbólga í landinu varð 56 pró-
sent. Hún hafði þau áhrif að kaup-
máttur neytenda fór þverrandi og
fátækt jókst til muna. - kóh
Úr 21,2% í 27,3% á einu ári:
Fátækt eykst
í Venesúela
NICOLAS MADURO Forseti Venesúela
hefur sætt gagnrýni fyrir efnahagsað-
gerðir sínar sem hafa stóraukið verð-
bólgu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
KÍNA, AP Ásakanir hafa gengið á
milli Japana og Kínverja eftir að
kínverskum herþotum var flogið
nærri japönskum flugvélum á haf-
svæði þar sem deilt hefur verið um
yfirráð. Um 30 metrar voru á milli
vélanna. Stjórnvöld í Kína segja
tvær japanskar eftirlitsvélar hafa
flogið inn á loftvarnarsvæði yfir
austur-kínversku hafsvæði. - kóh
Hættusamt flug veldur usla:
Ásakanir milli
Kína og Japans
SPÁNN, AP Íbúar spænska bæjar-
ins „gyðingavígbúðir“ kusu í
gær með því að breyta nafni
hans.
Kosningin fór svo að 29
manns kusu með breytingunni
en 19 vildu halda gamla nafn-
inu.
Kjósendur ákváðu eftir kosn-
ingu að nafn bæjarins skyldi
vera „Gyðingahóll“, en það ku
vera eldra nafn bæjarins.
Heitið Castrillo Matajuidos
eða „gyðingavígbúðir“ var tekið
upp á tímum spænska rann-
sóknarréttarins á 15. öld. Þá var
gyðingum gert að snúa sér til
kaþólskrar trúar ellegar flytja
af landi brott.
- kóh
Spænskur bær fær nýtt nafn:
Ekki lengur
„gyðingavíg“
JAFNRÉTTI Fjallað verður um
mikilvægi þess að fyrirtæki
setji jafnréttismál á oddinn út
frá viðskiptalegum forsendum
og samfélagsábyrgð, á ráðstefnu
sem haldin er í dag á vegum UN
Women, Festu-miðstöðvar um
samfélagsábyrgð og Samtaka
atvinnulífsins.
Rætt verður um nauðsyn þess
að hafa blandaðar stjórnir og
stjórnendur í fyrirtækjum bæði
út frá jafnréttissjónarmiðum
og af þeirri einföldu ástæðu
að teknar eru betri ákvarðanir
fyrir tækjum til heilla.
- jme
Setja jafnréttismál á oddinn:
Karla og konur
saman í stjórnir