Fréttablaðið


Fréttablaðið - 27.05.2014, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 27.05.2014, Qupperneq 30
27. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| MENNING | 22 Á sumarsýn- ingu Listasafns Reykjanesbæjar, Dæmisögum úr sumarlandinu, er að finna úrval nýlegra olíumál- verka eftir Karó- línu Lárusdóttur, sem fengnar eru að láni frá einka- aðilum. Sérstök áhersla er lögð á stærri verk listakonunnar, sem að jafnaði eru ekki eins aðgengileg og minni málverk hennar, grafík- myndir og vatnslitamyndir. Sýningarstjóri er Aðalsteinn Ing- ólfsson, sem er höfundur bókar um Karólínu sem kom út á síðasta ári. Dæmisögur úr Sumarlandinu verður opnuð í Duushúsum á upp- stigningardag, 29. maí, klukkan 14. Karólína í Reykjanesbæ KARÓLÍNA LÁRUSDÓTTIR MENNING TÓNLIST ★★★★★ Þriðja sinfónían Gustav Mahler SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS LÉK UNDIR STJÓRN OSMO VÄNSKÄ. EINSÖNGVARI: JAMIE BARTON. EINN- IG KOMU FRAM VOX FEMINAE OG STÚLKNAKÓR REYKJAVÍKUR UNDIR STJÓRN MARGRÉTAR PÁLMADÓTTUR. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ Í ELDBORG, HÖRPU. Það var sko enginn slagari sem var á dagskránni á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Listahátíð á föstudagskvöldið. Heldur þriðja sinfónía Mahlers, sem er fyrir einsöngvara, tvo kóra og hljómsveit. Hún tekur næstum tvo klukkutíma og er magnaður skáldskapur í sex köflum. Vafasamt er að fullyrða um hvað kaflarnir fjalla, enda er tón- list um eitthvað sem ekki er hægt að koma í orð. Fyrsti þátturinn er langlengstur, tekur næstum klukkutíma í flutningi. Hann ein- kennist af draumkenndri nátt- úrustemningu. Í fimmta kaflan- um koma söngvarar til sögunnar, fyrst syngur mezzósópran um nóttina úr Svo mælti Zaraþústra eftir Nietszche, en síðan taka kór- arnir við og syngja um himna- ríki. Hinir kaflarnir eru líka um heiminn í kringum okkur, eftir því sem ég kemst næst. Sá síð- asti er ofurhægur, en endar á því- líkum vímukenndum hápunkti að það er engu líkt. Náttúran hefur auðvitað annan tímaskala en maðurinn og þriðja sinfónía Mahlers er tvisvar sinn- um lengri en venjuleg, stór sin- fónía. Það merkilega er að á tón- leikunum á föstudagskvöldið leiddist manni ekki eitt augna- blik. Snilldin var þvílík að maður var bergnuminn allan tímann. Tónmál Mahlers er sérkennilegt, það er rómantískt án þess að vera yfirdrifið eða væmið, laglínurn- ar koma alltaf á óvart, raddsetn- ingin er ávallt frumleg og yfir öllu er einhver ævintýraljómi og framandi andrúmsloft sem er óviðjafnanlegt. Túlkun Osmo Vänskä var stór- brotin og lifandi og stjórnaði hann hljómsveitinni afar vel. Þar var margt einstaklega fal- lega leikið, og stóðu flestir hljóð- færaleikararnir sig frábærlega. Látum vera að málmblásturinn hafi ekki alltaf verið hreinn, það er varla hægt að ætlast til þess, svo mikið mæðir á hljóðfæraleik- urunum í lengri tíma. Látum líka vera að einhver hafi rekið sig í míkrófón sem átti að vera slökkt á á viðkvæmu augnabliki í sin- fóníunni. Það var sprenging sem maður hrökk við af. Þetta voru skuggar, örfáar snurður á annars fullkominni upplifun. Mezzósópraninn Jamie Bart on söng einsöng og gerði það stór- kostlega, röddin var þétt og hljómmikil, og túlkunin þrungin djúpri sannfæringu. Vox feminae og Stúlknakór Reykjavíkur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur stóðu sig líka prýðilega, heildar- hljómurinn var hreinn og í góðu jafnvægi. Útkoman var tær snilld og maður gekk út í nóttina á eftir í sætri skáldavímu. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Stórfenglegur flutn- ingur á þriðju sinfóníu Mahlers. Ævintýraljómi og náttúrustemning EINSÖNGVARINN „Mezzósópraninn Jamie Barton söng einsöng og gerði það stór- kostlega, röddin var þétt og hljómmikil, og túlkunin þrungin djúpri sannfæringu.“ MYND/NORDICPHOTOSGETTY 17.00 RIVER OF FUNDAMENT eftir Matthew Barney og Jona- than Bepler í Laugarásbíói. Myndin er 6 klukkustundir að lengd. Hún er bönnuð áhorfend- um innan 18 ára og er alls ekki fyrir viðkvæma. ➜ RIVER OF FUNDAMENT er nýjasta verk bandaríska myndlistarmannsins Matthews Barney, unnið í samstarfi við Jonathan Bepler tónskáld. Kvik- myndin er róttæk endursköpun á skáldverki Normans Mailer, Ancient Evenings. Í RoF tvinn- ast saman frásagnarkvikmynd, lifandi gjörningar, skúlptúr og ópera byggð á sögu Mailers um egypska guði og hin sjö stig end- urholdgunar. Inn í verkið er flétt- uð frásögn af risi og falli banda- ríska bílaiðnaðarins. LISTAHÁTÍÐ Í DAG LEIKLIST/TÓNLIST ★★★★★ Wide Slumber Valgeir Sigurðsson og Sigríður Sunna Reynisdóttir í samstarfi við a.rawlings. FRUMSÝNING Í TJARNARBÍÓI 24. MAÍ Tónleikhúsverkið Wide Slumber er afrakstur samvinnu Bedroom Community og VaVaVoom. Verkið er unnið upp úr ljóðabók Angelu Rawlings, Wide Slumber for Lepi- dopterists. Angela Rawlings eða a.raw- lings er kanadískt hljóðljóð- skáld og listamaður sem starfar meðal annars á Íslandi. Angela er áhugaverður listamaður, sem vel sómir sér á Listahátíð. Tónlist Valgeirs Sigurðssonar er orðin íslenskum leikhúsgestum að góðu kunn. Valgeir er gríðar- lega spennandi tónlistarmaður og gaman verður að fylgjast áfram með honum. Tónlistin í verkinu er eitt aðalsmerki sýningarinnar, sem er á mörkum tónleika og leik- húss. Hún er kröftug, skemmti- leg og epísk á köflum þar sem hljómsveitin, James Mc Vinnie, Liam Byrne og Ólafur Björn Ólafsson, stóð sig með prýði. Söngvarar höfðu misjafnan stíl, en voru hver öðrum betri. Þá kom sviðsreynsla Ásgerðar Júní- usdóttur henni vel. Á köflum var hrein unun að horfa á stílfærðar hreyfingar Ásgerðar og hlusta á hana. Gallinn er kannski sá að þetta er mikil sýning með íburðarmikilli sviðsmynd, stórbrotinni ljósanotk- un og myndböndum, sem hefðu mátt njóta sín svo miklu betur. Í myndböndunum, sem voru vel unnin og einstaklega falleg, voru sterkar og áhrifamiklar myndir sem áttu það þó til að kafna í ljós- unum á of litlu sviði Tjarnarbíós. Margt var fallegt og vel gert, en sýningin varð hálf kauðsk í svo ófullbúnum sal. Þarna hefði leikstjórinn mátt yrkja betur inn í rýmið. Meiri hreyfing hefði mátt vera á leikurum en sú kóreógrafía sem mátti sjá kom vel út. Einnig var fullmikið mis- ræmi í leik, sem einnig hlýtur að skrifast á leikstjórnina. Þá heyrð- ist textinn illa, sem ef til vill á ekki að koma að sök, en truflaði undirritaða töluvert. Ólöf Skaftadóttir NIÐURSTAÐA: Þegar á heildina er litið er Wide Slumber prýðis- sýning, sem var þess virði að sjá, en húsakynnin, sviðið og salurinn, sniðu henni of þröngan stakk. Hefði mátt yrkja betur inn í rýmið WIDE SLUMBER „ Í myndböndunum, sem voru einstaklega falleg, voru sterkar og áhrifamiklar myndir.“ MYND/ PIERRE-ALAIN GIRAUD Börn og nútímasamfélag - Dagvistunarmál og samþætting atvinnu- og fjölskyldulífs Opinn fundur á Hótel Reykjavík Natura, miðvikudaginn 29. maí kl. 8.30-10.00. Bandalag kvenna í Reykjavík í samstarfi við velferðarráðuneytið stendur fyrir opnum fundi um börn og nútímasamfélag. Fjallað verður um hvaða um- hverfi við erum að skapa börnunum okkar, dagvistunarmál og samþættingu atvinnu- og fjölskyldulífs. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir. Dagskrá: Fundarstjóri: Margrét Pála Ólafsdóttir, höfundur Hjallastefnunnar 08:30 Inngangsorð: Börn þurfa betri heim, Margrét Pála Ólafsdóttir, fundarstjóri 08:40 Kröfur samfélagsins til ungra barna Sæunn Kjartansdóttir, sálgreinir, Miðstöð foreldra og barna og höfundur bókarinnar Árin sem enginn man 09:00 Áhrif ytra umhverfis leikskólans á veruleika barna innan hans Kristín Dýrfjörð, lektor við Háskólann á Akureyri 09:20 Samræming fjölskyldulífs og atvinnu og stytting vinnudagsins Gunnar Örn Gunnarsson, framkvæmdastjóri SLFÍ og fulltrúi BSRB í vinnuhópi velferðarráðuneytisins um samræmingu fjölskyldulífs og atvinnu 09:30 - 10:00 Pallborðsumræður Í pallborðsumræðunum taka þátt ásamt fyrirlesurum, Hrefna Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra, og Sveinn S. Kjartansson, formaður Félags foreldra leikskólabarna. Allar nánari upplýsingar á heimasíðu BKR, bkr.is Dagskrá fundarins var undirbúin í samstarfi við Miðstöð foreldra og barna, Heimili og skóli – landssamtök foreldra, Félag dagforeldra, Félag foreldra leikskólabarna og Félag leik- skólakennara. Fundurinn er styrktur af velferðarráðuneytinu. www.lyfja.is Lægra verð í Lyfju w.lyfja.is Nanogen Hárvörur 20% afsláttur Gildir út maí Auka hárvöxt, þykkja og gefa fyllingu. Trefjar hylja skallabletti. Aukin vellíðan og meira sjálfsöryggi með góðri hárumhirðu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.