Fréttablaðið - 02.06.2014, Síða 6
2. júní 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Samfylkingin vinnur
mikinn sigur á Akureyri
og því erfitt að fara
fram hjá okkur í
meirihlutaviðræðum.
Logi Már Einarsson,
oddviti Samfylkingarinnar
➜ Þrír flokkar hafa hafið meirihlutaviðræður á Akureyri.
Sjálfstæðisflokkurinn er ekki einn þeirra þrátt fyrir að hafa
unnið stóran sigur í kosningunum og sé orðinn stærsti flokk-
urinn í bænum.
FISKIKÓNGURINN
HÖFÐABAKKA 1
v/Gullinbrú
SÍMI 555 2800
FISKIKÓNGURINN
S0GAVEGI 3
SÍMI 587 7755
www.fiskikongurinn.is
( lausfrystar )
AKUREYRI L-listi fólksins, Sam-
fylking og Framsóknarflokk-
urinn hafa hafið viðræður um
myndun meirihluta á Akureyri.
Oddvitar flokkanna hittust í tví-
gang í gær til að fara yfir stöðu
mála og samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins er ágætis gangur
í viðræðum milli flokkanna.
Níu nýliðar taka sæti í bæj-
arstjórn, aðeins Guðmundur
Baldvin Guðmundsson og Logi
Einarsson sátu sem aðalmenn
í bæjarstjórn við lok kjörtíma-
bilsins. Einnig er athyglisvert að
í fyrsta skipti í sögu Akureyr-
arkaupstaðar skipa konur meiri-
hluta bæjarstjórnar Akureyrar
en alls náðu sex konur kjöri.
Fylgi L-listans hverfur
Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin bættu við sig mestu
fylgi í sveitarstjórnarkosning-
unum á Akureyri á meðan fylgi
L-listans helmingaðist frá 2010.
A-listi Bæjarlistans hlaut 8,7
prósent atkvæða fyrir fjórum
árum, náði inn manni. A-listinn
sameinaðist L-lista fyrir kosn-
ingar. Því má segja að L-listinn
og A-listinn tapi samtals fimm
fulltrúum.
Sjálfstæðismenn bæta við sig
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
fjórðu ng a l l ra g reidd ra
atkvæða, tvöfaldaði fylgi sitt
og bætir við sig tveimur bæj-
arfulltrúum. Gunnar Gíslason,
oddviti Sjálfstæðisflokksins, var
að vonum ánægður með úrslit
kosninganna og sigur Sjálfstæð-
isflokksins en var að sama skapi
ekki ánægður með að vera ekki í
aðstöðu til að mynda meirihluta.
„Mín skoðun er sú að þeir flokk-
ar sem bættu við sig mestu og
sigruðu í kosningunum hefðu
átt að ræða saman fyrst um að
mynda meirihluta. L-listinn
tapar fimm bæjarfulltrúum og
er því hafnað af kjósendum á
Akureyri. Það er því undarlegt
að L-listinn skuli leiða meiri-
hlutaviðræður eftir slíkan ósig-
ur.“
L-listi fólksins tapar miklu
fylgi. Í síðustu sveitarstjórnar-
kosningum hlaut flokkurinn 45
prósenta fylgi og hreinan meiri-
hluta í bæjarstjórn Akureyr-
ar. Fylgi hans rúmlega helm-
ingast, fer í 21 prósent greiddra
atkvæða og tvo menn kjörna
í bæjarstjórn. Hann tapar því
fjórum bæjarfulltrúum. Ljóst er
að L-listi fólksins er taparinn í
þessum kosningum og flokkur-
inn stefndi á að fá meira fylgi
upp úr kjörkössunum.
Stærsti sigur Samfylkingarinnar
utan Reykjavíkur
Samfylkingin tvöfaldar fylgi
sitt líkt og Sjálfstæðisflokkur
frá því í kosningum 2010. Flokk-
Mynda meirihluta án
Sjálfstæðisflokksins
Níu nýliðar setjast í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningar. Í fyrsta skipti skipa
konur meirihluta bæjarstjórnar. Sjálfstæðisflokkur og Samfylking eru sigurvegar-
ar kosninganna meðan L-listinn tapar fjórum mönnum og fylgi hans helmingast.
urinn fékk 17,5 prósent atkvæða
í kosningunum í vor og verður
þetta að teljast stærsti kosninga-
sigur Samfylkingarinnar utan
Reykjavíkur. Flokkurinn fær
tvo menn kjörna í bæjarstjórn
en hafði einn á síðasta kjör-
tímabili. „Samfylkingin vinnur
mikinn sigur á Akureyri og því
erfitt að fara fram hjá okkur í
meirihlutaviðræðum. Þessir
þrír flokkar sem eru nú að tala
saman hafa talað á svipuðum
nótum í kosningabaráttunni,“
segir Logi Már Einarsson.
VG stefndi á meira fylgi
Framsóknarflokkurinn fékk
14,2 prósenta fylgi í kosningum
og bætir við sig manni í bæjar-
stjórn Akureyrar. Flokkurinn
fékk 12,8 prósent í síðustu kosn-
ingum svo að fylgisaukningin
er ekki mikil en nægileg til að
bæta við manni.
Vinstrihreyfingin - grænt
framboð hlaut næstum því
sama fylgi og í síðustu kosning-
um. Flokkurinn hlaut 10,5 pró-
senta fylgi og einn mann kjör-
inn í bæjarstjórn. Sóley Björk
Stefánsdóttir, oddviti VG, sagði í
samtali við fréttamann að stefn-
an hefði verið sett á meira fylgi
en nú væri verkefnið að bretta
upp ermar og vinna. Aðhald í
minnihluta væri alveg jafn mik-
ilvægt í lýðræðisríki og að vera
í meirihluta.
Björt framtíð er nýtt framboð
sem nær inn manni í bæjarstjórn
Akureyrar. Framboðið hlaut 9,4
prósent atkvæða. Margrét Krist-
ín Helgadóttir er oddviti Bjartr-
ar framtíðar. Hún sagði einnig
að markmiðin hefði verið sett
hærra en sem nýtt framboð á
Akureyri væru þau þakklát fyrir
hvert einasta atkvæði sem þau
fengu. Hún hlakkaði til að tak-
ast á við verkefnin fram undan
með því góða fólki sem hefði val-
ist inn í bæjarstjórn Akureyrar.
sveinn@frettabladid.is
Mín skoðun er
sú að þeir flokkar
sem bættu við sig
mestu og sigruðu í
kosningunum hefðu
átt að ræða saman fyrst um að
mynda meirihluta.
Gunnar Gíslason,
oddviti Sjálfstæðisflokksins
Skiptar skoðanir um meirihlutamyndun
KOSNINGAR H-listi framfarasinnaðra
Hólmara hlaut 56,7% atkvæða í sveit-
arstjórnarkosningunum á laugardag.
Slík kosning gefur listanum fjóra
menn í bæjarstjórn, sem nægir til að
mynda hreinan meirihluta.
Sturla Böðvarsson, sem áður
gegndi embætti bæjarstjóra í Stykk-
ishólmi á árunum 1974-1991, var
í fjórða sæti listans, en einnig var
hann bæjarstjóraefni hans.
Þar eð listinn myndar hreinan
meirihluta er víst að Sturla verður
bæjarstjóri Stykkishólms á ný, eftir
hlé frá stjórnarstörfum sem varað
hefur í næstum aldarfjórðung.
Mótframboð H-listans, L-listinn,
hlaut 43,3% atkvæða, og fær listinn
því þrjá menn í bæjarstjórn.
Dóttir Sturlu, Ásthildur Sturludótt-
ir, er bæjarstjóri í Vesturbyggð, en
þar var listi sjálfstæðismanna sjálf-
kjörinn. Verður þetta í fyrsta sinn
sem feðgin gegna embætti bæjar-
stjóra samtímis.
Alls voru 826 manns á kjörskrá í
Stykkishólmi og kjörsókn var 87,3%.
- kóh
Framfarasinnaðir Hólmarar hlutu 56,7% kosningu og hreinan meirihluta:
Sturla verður bæjarstjóri á ný
1. Hvað hétu nafnarnir sem útskrifuð-
ust úr Harvard á fi mmtudaginn?
2. Hvað námu viðskipti Garðabæjar
og IBM mörgum milljónum?
3. Með hvaða liði spilar Hörður
Björgvin Magnússon á Ítalíu?
SVÖR:
1. Friðrik Ársælsson og Friðrik Árni Hirst 2.
70 3. Spezia
Sveitarstjórnarkosningar
Akureyri
%
MEIRIHLUTI
FALLINN
3 222 21 0
Framsóknar-
fl okkur
Björt
framtíð
Dögun Bæjar-
listinn
Sjálfstæðis-
fl okkur
Listi
fólksins
Samfylkingin Vinstri
græn
25,7
21,0
17,5
10,5
14,2
9,4
1,4
Sveitarstjórnarkosningar
Stykkishólmur
4 3
4
56,6
43,4
%
H– Framfara-
sinnaðir
Hólmarar
L– L-listinn
GRÝTUBAKKAHREPPUR Guðný Sverrisdóttir mun 15. júní næstkom-
andi hætta sem sveitarstjóri Grýtubakkahrepps en hún hefur gegnt
því starfi síðastliðin 27 ár. Hún er því einn þaulsætnasti sveitarstjóri
Íslandssögunnar.
Guðný segir að gengið hafi á ýmsu gegnum árin. Hún segist þó skila
góðu búi. Atvinnulífið sé öflugt, þjónusta við íbúa góð og fólki fari
fjölgandi í hreppnum.
Guðný bætir við að nú taki við gott sumarfrí. Að öðru leyti sé fram-
tíðin óráðin. - ih
Guðný skilar góðu búi og ætlar nú í gott sumarfrí:
Hætt eftir 27 ár sem sveitarstjóri
27 ÁR SEM SVEITARSTJÓRI Guðný er einn þaulsætnasti sveitarstjóri Íslandssög-
unnar.
STYKKISHÓLMUR Góð kjörsókn var í
Hólminum á laugardag.
REYKJAVÍK Lítið var um útstrik-
anir á kjörseðlum Reykvíkinga.
Ekki var hægt að greina nánar
frá fjölda útstrikana í gærkvöldi
en Hildur Lilliendahl Viggós-
dóttir, verkefnastjóri í Ráðhús-
inu, segir fjöldann vera óveru-
legan.
„Það er útilokað að breytingar
og útstrikanir hafi áhrif á röð
frambjóðenda,“ segir Hildur.
Þegar yfirferð lýkur verður
greint frá hvaða framboð og
frambjóðendur fengu flestar
útstrikanir. - ebg
Engin áhrif á úrslit kosninga:
Ekki mikið um
útstrikanir
KOSNINGAR A-listi í Þingeyjarsveit
tapaði 0,1 prósentustigi milli kosn-
inga 2010 og 2014. Árið 2010 buðu
fram N-listi og A-listi í Þingeyjar-
sveit. Þá fóru kosningar svo að N-
listi hlaut 165 atkvæði og A-listi
hlaut 364. 549 greiddu atkvæði.
Í ár bauð hinn nýstofnaði T-
listi fram gegn A-lista. Sem fyrr
greiddu 549 manns atkvæði, en í
þetta sinn hreppti Samstaða 360
atkvæði, meðan Sveitungar nældu
sér í 166 atkvæði. Þetta þýðir að
Samstaða tapaði 0,1 prósentustigs
fylgi. - kóh
Nánast alveg óbreytt fylgi:
Samstaða tapar
0,1 prósentustigi
VEISTU SVARIÐ?