Fréttablaðið - 02.06.2014, Page 18

Fréttablaðið - 02.06.2014, Page 18
FÓLK|HEIMILI FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal Hönnun: Silja Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434 Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512 5447 Burðarplastpokar eru óendur-vinnanlegir og samkvæmt bókinni Cradle to cradle: Re- making the Way We Make Things, eftir Braungart og William McDono- ugh, eigum við að hugsa efnisheim- inn í tveimur mengjum; lífrænu mengi og gerviefnamengi. Ef við notum plast innan síns mengis og blöndum því ekki við hið nátt- úrulega mengi er það „í lagi“. Hug- myndin snýst um að framleiða ekki meira af plastpokum heldur umbreyta þeim. Ég kem með tillögu að leið til að nota þá plastpoka sem þegar eru til,“ útskýrir Katrín Magnúsdóttir, nýútskrifaður vöru- hönnuður frá Listaháskóla Íslands. Lokaverkefnið hennar er spuna- vél sem snýr saman plastpoka í þráð. „Venjulega enda plastpokar í landfyllingu, í náttúrulega menginu þar sem við viljum ekki hafa þá. Með spunavélinni umbreyti ég pok- unum í þekkjanlegan efnivið sem fólk á auðveldara með að skilja hvernig má nýta áfram. Það mætti til dæmis snúa hann aftur og aftur saman í þykkt reipi.“ Katrín segir spunavélina vel geta orðið að verkfæri inni á heimilum til að endurvinna plast. Hún sér einnig fyrir sér frekari útfærslur á vélinni, meðal annars fyrir land- búnað. „Bændur gætu til dæmis snúið saman rúlluplast og vír og búið þannig til rafmagnsgirðingu. Það er ýmsir möguleikar opnir.“ Katrín viðurkennir að hafa ekki verið sérstaklega meðvituð um endurvinnslu áður en hún hóf námið við LHÍ. Námið hafi opnað augu hennar fyrir ábyrgð hönnuða í samfélagi og á umhverfinu. Hún stefni frekar í átt að upplifunar- hönnun en iðnhönnun. „Ég heillaðist af upplifunarhönn- un eftir fyrirlestur hjá Hlín Helgu Guðlaugsdóttur. Þeirri hugmynd að vera ekki endilega að búa til fleiri stóla og borð, nóg er nú til, heldur að rannsaka umhverfið og hanna það með upplifun í huga. Annars er framtíðin frekar óráð- in hjá mér. Nú er ég bara að pústa eftir skólatörnina. Það gæti verið gaman að fara í eitthvert starfsnám í útlöndum eftir sumarið.“ ■ heida@365.is ENDURVINNUR PLASTPOKA ÍSLENSK HÖNNUN Katrín Magnúsdóttir, nýtútskrifaður vöruhönnuður, hann- aði spunavél, sem snýr saman gamla plastpoka í þráð, sem lokaverkefni. ÞEKKJANLEGUR EFNIVIÐUR Katrín hannaði spunavél sem snýr saman gamla plastpoka í þráð. Þráðinn má svo nýta til ýmissa hluta, til dæmis sem fiskilínu eða í þykkari reipi. MYND/ÖRN EYJÓLFSSON VÖRUHÖNN- UÐUR Katrín Magnúsdóttir er nýútskrifaður vöruhönnuður. Hún segir námið hafa opnað augu sín fyrir ábyrgð hönnuða í sam- félaginu. MYND/STEFÁN SPUNAVÉL Vélin gæti orðið að verkfæri inni á heimilum til að endurvinna plast- poka. Þá sér Katrín fyrir sér að útfæra hana svo bændur gætu snúið saman rúlluplast og vír og búið til rafmagns- girðingu. ENDURVINNSLA Burðarplastpokar brotna ekki niður í náttúrunni. ■ MARGFÖLD VIRKNI Margir hversdagslegir hlutir sem hafa skýrt og afmarkað hlutverk geta leynt á sér. Ef hugmyndafluginu er gefinn laus taumur og hugs- að út fyrir kassann má sjá annan tilgang með þessum hlutum og nota þá í önnur verk en vant er. Glært naglalakk getur virkað eins og ósýnilegt lím og því gott að nota það til dæmis til að festa tölur eða litlar skrúfur. Gamlir förðunarburstar eða litlir penslar eru tilvaldir til að hreinsa lyklaborð með. Þegar blásið er til veislu er sniðugt að setja klakana í sigti yfir skál. Þannig verður vatnið af klakanum eftir í skálinni og drykkurinn ekki útþynntur. Pappírshólka innan úr klósettrúllum má nota til koma í veg fyrir að snúrur flækist saman. Snúrunum er þá rúllað upp og þær settar inn í pappírshólkana. Vínglös má nota sem fínustu kertastjaka til borðskreytinga. Bæði má setja kertin ofan á fót glass sem snúið hefur verið á hvolf eða inn í glas á hvolfi. Í ÖÐRUVÍSI HLUTVERKUM Skipholti 29b • S. 551 0770 15% afsláttur af öllum vörum frá Max Mara Max Mara dagar 22. maí-2. júní Verið velkomin Fylgist með okkur á facebook.com/Parisartizkan Save the Children á Íslandi ÉG ENDURNÝJA BODY SCRUB Ég er kornahreinsir sem hreinsar, mýkir og sléttir húðina þína. Ekki fara í sturtu eða bað án mín—þú munt sakna mín. Flott blanda sem inniheldur meðal annars ilmolíur úr myntu og sjávarsöltum til að fá áferð og lykt sem heillar. Made in Italy www.master-line.eu Fæst í apótekum og Hagkaup

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.