Fréttablaðið - 02.06.2014, Qupperneq 41
MÁNUDAGUR 2. júní 2014 | MENNING | 25
ASKJA · Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík · Sími 590 2100 · askja.is
Viðurkenndur sölu- og þjónustuaðili KIA á Íslandi.
Þú finnur „Kia Motors Ísland“
á Facebook
ORKUBÚNT
FUJITSU GÆÐARAFHLÖÐUR
Fujitsu alkaline rafhlöðurnar eru öflugar,
endast vel og eru auðvitað á góðu verði.
Skútuvogi 1c · 104 Reykjavík · Sími 550 8500 · Fax 550 8510 · vv@vv.is · www.vv.is
Fást í fjölda verslana um land allt. Dreifing á Íslandi:
Tökulið þáttanna 1 Way Ticket
eyddi hér átta dögum í síðasta
mánuði, þar af fóru fjórir í tökur
á þáttunum. Í þáttunum er pörum
komið á óvart með ókeypis ferð til
framandi staða. Þegar á staðinn
er komið fylgja pörin vísbending-
um sem leiða þau í æsispennandi
ævintýri.
Þátturinn sem var tekinn hér
upp er svokallaður „pilot“-þátt-
ur og verður sýndur á sjónvarps-
stöðinni Travel Channel á árinu.
Tökuliðið tók upp við Þríhnjúka-
gíg, leyfðu parinu heppna að
fara í vélsleðaferð á Langjökli
og svamla um á „paddle board“ á
Jökulsárlóni. Þá fór parið einnig í
fallhlífarstökk á Klambratúni sem
vakti mikla athygli vegfarenda en
sérstakt leyfi þurfti fyrir stökkið.
Tökulið 1 Way Ticket var hér á
vegum íslenska framleiðslufyrir-
tækisins Sagafilm en annað töku-
lið frá Travel Channel heimsótti
land og þjóð fyrir stuttu, þá til að
taka upp þáttinn Booze Traveler.
Tökuliðið eyddi hér tíu dögum,
með kynninn Jack Maxwell
fremstan í fararbroddi. Sá hefur
leikið í sjónvarpsþáttum á borð
við 24, Lost, House og Ugly Betty.
Kynnti tökuliðið sér íslenska vín-
menningu en þátturinn verður
sýndur í sumar.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins eru ekki fleiri verkefni
fyrirhuguð hjá Travel Channel á
Íslandi en greinilegt að forsvars-
menn stöðvarinnar eru afar hrifn-
ir af landinu.
liljakatrin@frettabladid.is
Sjónvarpsstöðin Travel
Channel elskar Ísland
Tökulið þáttanna 1 Way Ticket eyddi átta dögum á Íslandi, þar af fj órum í tökur
á þættinum. Stutt er síðan tökulið Booze Traveler tók upp þátt hér á landi.
MIKILL HASAR Tökuliðið vakti athygli á Klambratúni.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
MJÚK LENDING Ferðin var eflaust eftirminnileg fyrir parið
heppna.