Fréttablaðið - 02.06.2014, Síða 42

Fréttablaðið - 02.06.2014, Síða 42
2. júní 2014 MÁNUDAGUR | SPORT | 26 Ég tók bara eina holu í einu og spilaði hana eins vel og ég gat. Ragnar Már Garðarsson, GKG Aðalfundur stuðningsmannaklúbbs Manchester United á Íslandi verður haldinn fimmtudagskvöldið 12. júní 2014 kl. 20. Fundurinn fer fram í sal félagsheimilis Sjálfstæðismanna í Mjódd, Álfabakka 14a. Atkvæðarétt á aðalfundi hafa þeir sem greitt hafa ársgjaldið 2013 - 2014. Aðalfundur Dagskrá 1. Kosning fundarstjóra og fundarritara 2. Skýrsla stjórnar 3. Reikningar lagðir fram til samþykktar 4. Lagabreytingar 5. Kosning stjórnarmanna 6. Önnur mál Stjórnin Hafðu samband og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður Hrísmýri 8 800 Selfoss Malarhöfða 10 110 Reykjavík Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær Sími 4 400 400 www.steypustodin.is Steypustöðin býður upp á mikið úrval af fallegum hellum og mynstursteypu fyrir heimili, garða, göngustíga og bílaplön. 20 YFIR TEGUNDIR AF HELLUM Allar hellur Steypustöðvarinnar eru framleiddar samkvæmt viðurkenndum stöðlum. HANDBOLTI Ísland vann fimm marka sigur á Portúgal, 33-28, í fyrsta æfingaleik liðanna af þremur hér á landi. Leikurinn fór fram á Ísafirði en liðin mætast í Mosfellsbæ í kvöld og Austurbergi á morgun. Bjarki Már Elísson var einn þeirra leikmanna sem fengu tækifæri með landsliðinu í gær og hann nýtti það með því að skora átta mörk úr tíu skotum. Aron Kristjánsson landsliðs- þjálfari var ánægður með niður- stöðuna. „Það var fínt að fá þennan leik til að slípa til vörnina en það var engu að síður ágætur heildarbragur á henni,“ sagði Aron við Fréttablaðið í gær. „Sóknarleikurinn var kafla- skiptur og við létum verja of oft frá okkur úr dauðafærum. Við þurfum stundum að sýna meiri þolinmæði í okkar leik en það var engu að síður gott að klára leikinn með fimm marka sigri.“ Aron hrósaði heimamönnum á Ísafirði fyrir góða umgjörð. „Það var vel mætt og sumir komnir einum og hálfum tíma fyrir leik. Ég þakka Ís- firðingum fyrir frábæra skemmtun,“ sagði þjálfarinn. Leikurinn í Mosfellsbæ hefst klukkan 19.00 í kvöld. - esá Góður heildarbragur á varnarleik íslenska liðsins ARON KRISTJÁNSSON GOLF „Það koma dagar þar sem maður dettur í „zone-ið“. Þá vill allt ganga upp hjá manni,“ sagði Ragnar Már Garðarsson, kylfing- ur úr GKG, við Fréttablaðið í gær eftir að hann tryggði sér glæst- an sigur á öðru móti sumarsins á Eimskipsmótaröðinni en það fór fram á Hellu í gær. Aðstæður voru erfiðar á Hellu um helgina og kylfingar náðu ekki sínu besta fram fyrstu tvo keppn- isdagana. Besti dagurinn var á lokadeginum í gær og þá hrökk Ragnar Már í gírinn. Hann spil- aði á 62 höggum, átta undir pari vallarins, og bætti vallarmet Ólafs Björns Loftssonar um eitt högg. Hann fékk alls níu fugla en hring- urinn dugði honum til að sigra á mótinu með tveggja högga forystu á Gísla Sveinbergsson, GK, sem varð annar. Sló mjög vel „Ég tók bara eina holu í einu og spilaði hana eins vel og ég gat,“ sagði hinn hógværi Ragnar Már en hann er á nítjánda aldursári. „Ég var að slá mjög vel, bæði hélt mér á braut og setti nálægt pinna í innáhögginu. Púttin gengu líka vel og þá komu fuglarnir,“ segir hann en Ragnar vann einnig fyrsta mót ársins um síðustu helgi, einnig eftir öflugan lokahring. Hann segist hafa unnið mikið í því að styrkja andlega þátt- inn í sínu spili. „Ég reyni að vera mjög þolinmóður því það er helsti áhættuþátturinn. Ég hef unnið í þessu með þjálfara mínum og það hefur hjálpað til,“ segir Ragnar. Hann segir að árangurinn hafi komið nokkuð á óvart. „Markmiðin voru bara að vera ofarlega í mót- unum og gera mitt besta. Hitt kom bara að sjálfu sér og ég vona bara að ég nái að halda mínu striki.“ Ragnar er þrátt fyrir ungan aldur kominn í háskólanám í Bandaríkjunum en hann hélt utan síðasta haust eftir að hafa klárað verslunarpróf frá VÍ. „Það gekk mjög vel úti,“ segir hann. „Námið gekk vel og golfið var upp og niður, eins og það vill oft vera. En lið- inu mínu gekk vel og skólinn náði sínum besta árangri í tíu ár.“ Fyrsti hringurinn í barnavagni Ragnar þekkir vel til á Hellu en faðir hans er frá Hvolsvelli og fór oft með hann á þennan völl. „Ég fór minn fyrsta golfhring hér en þá var ég reyndar í barna- vagni,“ segir Ragnar í léttum dúr. „Svo spilaði ég mikið hér sem krakki og þykir því vænt um að hafa bætt vallarmetið. Það var mjög skemmtilegt.“ eirikur@frettabladid.is Þolinmæðin mikilvæg Ragnar Már Garðarsson, GKG, hefur unnið tvö fyrstu mót sumarsins á Eim- skipsmótaröðinni í golfi . Hann bætti vallarmetið á Hellu á lokahringnum í gær. SLÆR TIL SIGURS Ragnar Már á Strandavelli í gær en þá bætti hann vallarmetið með því að koma í hús á 62 höggum. MYND/GSÍ KÖRFUBOLTI Ísland átti fjögur yngri landslið á Norðurlanda- mótinu sem lauk í Solna í Svíþjóð um helgina. U16-lið kvenna vann alla sína leiki og varð því Norður- landameistari en Sylvía Hálfdán- ardóttir var valin besti leikmaður mótsins. U-18 lið karla varð í öðru sæti og Jón Axel Guðmundsson, leik- maður Grindavíkur, fékk sömu viðurkenningu og Sylvía. U-18 lið kvenna og U-16 liða karla lentu svo bæði í fjórða sæti í sínum flokkum. Alls áttu Íslendingar fimm leik- menn í úrvalsliðum mótsins. - esá Jón Axel og Sylvía best Eitt gull og eitt silfur á Norðurlandamótinu í Solna. SPORT HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU 10 DAGAR Í FYRSTA LEIK TVEIR LEIKMENN hafa að margra mati unnið HM í fótbolta nánast upp á eigin spýtur, Brasilíumaður- inn Garrincha á HM í Síle 1962 og Argentínumað- urinn Diego Maradona á HM í Mexíkíó. Garrincha var með 4 mörk og 3 stoðsendingar á HM 1962 en hann skoraði tvö mörk í sigri á Englandi í 8 liða úrslitunum og tvö mörk í sigri á Síle í undanúrslit- unum. Maradona var með 5 mörk og 5 stoðsendingar í sjö leikjum Argentínu 1986 og átti því beinan þátt í 10 af 14 mörkum liðsins. Maradona skoraði öll mörkin 8 liða úrslitunum (2-1 sigur á Englandi) og undanúrslitum (2-0 sigur á Belgíu) auk þess að leggja upp sigurmarkið fyrir Jorge Burruchaga í úrslitaleiknum.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.